Söluauglýsing: 1216270

Klausturhvammur 34

220 Hafnarfjörður

Verð

129.900.000

Stærð

213.9

Fermetraverð

607.293 kr. / m²

Tegund

Rað/Par

Fasteignamat

116.650.000

Fasteignasala

Ás

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 24 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Fallegt og vel skipulagt raðhús á tveimur hæðum með skjólgóðum garði bæði að framanverðu og aftanverðu.  Stærð eignarinnar er 213,9 fm sem skiptist þannig að neðri hæðin er 111,1 fm, efri hæðin 55,7 fm, sólstofa 17,5 fm og bílskúrinn 29,6 fm.  Húsið er einkar vel staðsett og hannað fyrir fjölskyldur. Aukin lofthæð að hluta á neðri hæð og einnig á þeirri efri. Fjögur stór og rúmgóð svefnherbergi, eitt á neðri hæð og þrjú á efri hæð. Tvö baðherbergi, bæði með sturtu og annað einnig með nuddbaðkari. Efri hæð að hluta undir súð, sem nýtt er sem geymslur og því ekki talið með í fermetrum eignarinnar, en nýtist samt vel sem slíkt. Mikið geymslupláss er í húsinu. Tvær hleðslustððvar eru í innkeyrslu fyrir rafbíla. 3ja fasa rafmagn er í bílskúr fyrir hleðslustöðvarnar og einnig fyrir heita pottinn og öfluga hitara á yfirbyggðum palli í bakgarði sem hægt er að nýta allan ársins hring til útiveru.

Neðri hæð:  Beykiparket á öllum gólfum, nema þvottahúsi, baðherbergi og garðstofu, þar sem eru flísar.
Gengið inn í litla flísalagða forstofu með góðu skápaplássi.
Borðstofa: Rúmgóð og stendur á milli eldhús og stofu.
Stofa: Björt með miklu gluggaplássi. Gengið niður eina tröppu úr borðstofu. Mikil lofthæð. Góður arinn, sem virkar vel. Innangengt í sólstofu.
Sólstofa: Hlýleg með gluggaplássi og útgengi á pall í framgarði. Gott geymslupláss er fyrir ofan sólstofuna sökum lofthæðar. Flísar á gólfi.
Eldhús: Stórt og rúmgott. Eldri Alno innrétting, innbyggð Miele uppþvottavél, extra stórt spanhelluborð, Witt háfur og Siemens ofn. Stór búrskápur. Innangengt í þvottahús.
Þvottahús: Sérhönnuð innrétting fyrir bæði þvottavél og þurrkara. Gott skápa og borðpláss og útgengi í bakgarð. Skolvaskur.
Svefnherbergi: Stórt og rúmgott með inngengi í sérbaðherbergi með sturtu.
Baðherbergi: Nýlega baðinnrétting frá Brúnás.með handlaug, sturta, upphengt wc, handklæðaofn og gólfhiti. Inngengt í lítið og vel skipulagt fataherbergi. Flísar og gólfi og veggjum.
Fataherbergi: Með nýlegri innréttingu frá HTH. Parket á gólfi. Innangengt í þvottahús.

Efri hæð:  Gengið upp tréstiga úr borðstofu. Massíft eikarparket er á allri hæðinni nema baðherbergi.
Langur gangur sem nýtist vel. Geymslupláss er undir súð meðfram allri súðinni. Mjög mikið geymslupláss. Nokkrir inngangar.
Herbergi I: Mjög stórt og með aukinni lofthæð. Fataskápur.
Herbergi II: Ágætlega stórt með aukinni lofthæð og leikpalli (millilofti) fyrir krakka.
Herbergi III. Mjög stórt með aukinni lofthæð og stórum leikpalli (millilofti) fyrir krakka. Fataskápur.
Baðherbergi: Góð innrétting, wc, sturta og nuddbaðkar. Flísar á gólfi og veggjum.
Ágætis vinnuskot er á ganginum með góðu skápaplássi fyrir ofan. Útgengi á svalir í suðaustur.

Fallegur skjólgóður framgarður með timbur palli. Gras og undirlag allt endurnýjað fyrir ca. 4 árum. Góð girðing sem hentar vel fyrir smáhunda. Steypt innkeyrsla með snjóbræðslu. Næg bílastæði í og við húsið.
Bakgarður: Einstaklega fallegur, hannaður af Stanislav Bohic landslagsarkitekt. Timburpallur sem er yfirbyggður á tveimur stöðum að hluta. Hellur á restinni sem líta út líkt og flísar. Snjóbræðsla undir hellum. Mikið um tréblómaker, góð lýsing (LED) á vetrarkvöldum með sjálfvirkum ræsibúnaði (sólúr).  Heitur pottur með nuddi og frostfrí útisturta. Öflugir hitarar eru undir yfirbyggingunni á pallinum þannig að hægt er að nota pallinn allan ársins hring til útivistar. Algjör paradís.
Bílskúr er með rafmagnsopnara. Öflug LED lýsing. Útgengi í bakgarð úr bílskúr.
Útiljós að framan á fótosellu (birtustýrð) og útiljós að aftan (LED) á sólúri.

Helstu framkvæmdir á sl árum:
Skipt um þak yfir stofuálmu fyrir ca. 6 árum vegna leka sem kom upp. Innbrennt ál. Restin af þaki máluð af fagmönnum árið 2022. 
Skipt var um megnið af gluggum og hurðum á framhlið hússins á árunum 2019-2020. Gluggar málaðir á efri hæð á bakhlið 2022.
Skipt um gras og undirlag í garði að framan fyrir ca. 4 árum.
Skipt um innréttingu á baði niðri (Brúnás) og fataherbergi (HTH) fyrir ca. 4 árum.
Gólf á svölum múrað og sílanborið fyrir ca. 3 árum.

Eignin er einkar vel staðsett fyrir fjölskyldur með börn á skólaaldri þar sem grunnskóli er í ca. 200 metra fjarlægð (ekki farið yfir neina götu) og leikskóli er einnig í næsta nágrenni. Sömu eigendur s.l. 36 ár.

Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / [email protected] og Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / [email protected]

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband