30.01.2024 1211038

Söluskrá FastansVetrarbraut 11

815 Þorlákshöfn

hero

9 myndir

46.400.000

352.049 kr. / m²

30.01.2024 - 24 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 23.02.2024

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

131.8

Fermetrar

Fasteignasala

Fasteignasala Suðurlands

[email protected]
483 3424
Bílskúr

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir: Vetrarbraut 11, Þorlákshöfn.  Glæsilegt, nýtt 131,8m2 parhús með bílskúr, staðsett á frábærum stað í nýju hverfi í Þorlákshöfn, í rólegu hverfi en örstutt frá allri þjónustu og ósnortri náttúru!  
Garður snýr í Suður/vestur svo sólar nýtur við nær allan daginn.   

Húsið er úr timbri, klætt að utan með svartri ál-smábáru og eru gluggar og hurðar einnig svartir, úr ál/tré.  Á þaki er svart þakjárn.
Húsið afhendist fokhelt 1.apríl  2024

**  Allar nánari upplýsingar má fá á [email protected] og í síma 483 3424 **

Húsið telur skv. teikningu:
*  2 mjög rúmgóð svefnherbergi.
* Stóra stofu og eldhús í opnu rými
*  Baðherbergi. Utangengt er af baðinu.
*  Þvottahús og geymslu.  Úr þvottahúsinu er innangengt í bílskúrinn.
*  Bílskúr. 

Húsið afhendis fokhelt skv. neðangreindri lýsingu:

Sökklar eru steyptir og einangraðir að innan.
Gólfplata er steypt og einangruð með gólfhita í. Neysluvatnslagnir eru lagðar skv. verkfræðiteikningum, rör í rör.
Útveggir: Allir útveggir hússins eru úr timburgrind.
Húsin eru klætt að utan með litaðri ál-smábáru frá Húsasmiðjunni (RAL 9005 - svart).
Gluggar og hurðir: Allir gluggar og útihurðir eru úr ál/tré. Tvöfalt verksmiðjugler frá viðurkenndum framleiðanda er í húsinu og flyst ábyrgð þess áfram til kaupenda. Framleiðandi er Ideal Combi. Litur að utan er RAL 9005 (svart).
Þak: Tvíhalla þak eru á húsinu klætt með Isola D-class pappa, og svörtu þakjárni.
Þakkantur: Þakkantur er timburklæddur með listum.
Niðurföll og þakrennur: Þakniðurföll eru úr áli frá Hagblikk og rennur eru úr plasti frá Húsasmiðjunni.
Lóð: Lóð afhendist grófjöfnuð.

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !
Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott -  hagnýtar upplýsingar:


Við Þorlákshöfn er rómaður golfvöllur sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna!
Hér eru einstaklega góður grunn- og leikskóli þar sem tekin eru inn börn niður í 18 mánaða!
Verslun og þjónusta:
Hér má m.a. finna:
Apótekarann.
Bakaríið Kaffiskjóðan (facebook:  café sól)
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook:  kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Kr.-verslun með yfir 2.000 helstu vöruliði á Krónuverði
Veitingastaðina:
Thai Sakhon veitingahús (facebook:  Thai Sakhon Restaurant)
Caffe Bristól (facebook:  Caffe Bristól)
Svarta Sauðinn (facebook:  svarti sauðurinn)  og 
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar.    Einnig er Olís hér með ÓB-stöð.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins: 
Mjög gott bókasafn (facebook:  Bæjarbókasafn Ölfuss)
Landsbankinn 
Tómstundir og afþreying: 
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga. Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook:  fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook:  Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton, motorcrossá braut rétt utan við bæinn, hestamennska (facebook:  hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring og golf á rómuðum golfvelli.  Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.   
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl.  Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk.
Jógastúdíó (Jógahornið).
Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna:  
Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. 
Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér.
Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.  
Einnig er hér:
Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).
Hinir ýmsu kórar (facebook:  Tónar og Trix, Kyrjukórinn,  ofl.)
Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook:  Kiwanisklúbburinn Ölver)
O.sfr. o.s.frv. o.s.frv.  :)
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á:  www.hafnarfrettir.is

Ljósmyndir

Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010102

Parhús á 1. hæð
131

Fasteignamat 2025

38.850.000 kr.

Fasteignamat 2024

38.700.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband