Söluauglýsing: 1210202

Smáragata 26

900 Vestmannaeyjar

Verð

59.900.000

Stærð

167.5

Fermetraverð

357.612 kr. / m²

Tegund

Einbýli

Fasteignamat

58.000.000
hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 87 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Heimaey fasteignasala kynnir fallegt og vel skipulagt einbýlishús að Smárgötu 26, 900 VM. Eignin er 167,5 m2 með bílskúr. Eignin er byggð á steyptum grunni og er timburhús, byggt  árið 1974 – kallað SUNHOUSE. Hvolfþak er á húsinu og hefur verið sett alusink á það. Eignin stendur hátt með stórkostlegu útsýni. Eignin var töluvert endurnýjuð árið 2010 með nýrri eldhúsinnréttingu, snyrtingu, gólfefnum, og útidyrahurð. Einnig voru gluggar endurnýjaðir. Árið 2016 var gerð auka snyrting með sturtu í svefnherbergi með hjólastólaaðgengi, upphengdu WC og handklæðaofni og flísalögð í hólf og gólf.
Eignin er einangruð og klædd að utan með steníplötum og hvittuðum panil. 



Eignin telur:
Anddyri, korkflísar á gólfi, fatahengi
Þvottahús, korkflísar á gólfi, gott geymslurými einnig. Vaskur ofl.  Geymsluloft yfir hluta af þvottahúsinu.
Snyrting, neðri skúffu innrétting, skápur, sturta, korkflísar á gólfi.
Sjónvarpsrými, parket á gólfi.
Borðstofa, á milli sjónvarpsrýmis og stofu, parket á gólfi, útgangur (tvöföld hurð) út á afgirtan sólpall til vesturs. Útgangur af sólpalli út á norðurlóð, einstakt útsýni.
Stofa, parket á gólfi, stórir gluggar með miklu útsýni.
Eldhús, mjög stórt og gott, og eintaklega góð vinnuaðstaða. Góð innrétting, með flísum á borðum. Eyja út á miðju gólfi, þar sem er eldavél, ofn og skúffur.
Herbergi 1, stórt og gott, parket á gólfi. Auka svefnrými ofan á skápainnréttingu, stigi til að komast upp í “kojurnar
Herbergi 2, gott herbergi, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3, mjög stórt og gott, góðir skápar. Snyrting í herberginu, handklæðaofn upphengt WC, vaskaborð, skápur, aukasturta með aðgengi fyrir fatlaða. Flísar í hólf og gólf. Geymsluloft yfir snyrtingunni.
Bílskúr, nýendurnýjaður, gluggahlið nýklædd, nýlegt gler og nýleg bílskúrshurð. Hægt að breyta í stórt herbergi (4. herbergið), eða stúdíórými. Geymsluloft í bílskúr.
Afgirtur sólpallur, vestan eignar með útgangi (tvöföld hurð), úr stofu. Þar er heitur pottur sem fylgir ekki með en möguleiki að kaupa hann einnig.
Þetta er ein af þeim fáu eignum sem gefur manni þá tilfinningu að hún sé stærri að innan, en utanfrá séð.
Góð eign á frábærum stað með miklu útsýni. Eign sem vert er að skoða betur.



 

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband