27.01.2024 1209494
Bláengi 5
816 Ölfus
21 myndir
70.000.000
399.772 kr. / m²
27.01.2024 - 240 dag á Fastanum - Enn í birtingu
4
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
175.1m²
Fermetrar
Tegund
Rað/ParByggingarár
2023Fasteignamat
46.000.000Inngangur
SérinngangurFastanúmer*
2343711Byggingarnúmer*
1117311Brunabótamat
-Verðmat Fastans
Reiknar verðmat...
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Nýtt parhús á fallegum stað í Ölfusi.
EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA
Húsið er 5 herbergja (4 svefnherbergi), 175,1 fm. þar af er bílskúr 37,8 fm.
Eignin skilast á byggingastigi 5 (skv. ÍS-51-2001 staðli). ATH. Nema ef um annað er samið
Bláengi er innan við 2 kílómetra frá Hveragerði.
Í SAMRÁÐI VIÐ BYGGINGARAÐILA ER HÆGT AÐ FÁ EIGNINA AFHENTA STYTTRA, EÐA LENGRA KOMNA, EN SEM NEMUR BYGGINGASTIGI 5.
Eignin skiptist í:
Forstofu
Fjögur svefnherbergi
Tvö baðherbergi
Rúmgott þvottahús
Eldhús opið við stofu
Innbyggður 37,8 fm. bílskúr.
Húsið er timburhús á einni hæð á staðsteyptum sökkli.
Húsið hvílir á þjappaðri fyllingu. Botnplata er staðsteypt með innsteyptum gólfhitalögnum.
Lóð og bílaplan verða grófjöfnuð. Búið verður að ganga frá frárennslis og ídráttarlögnum að heitum potti á garðpalli.
Frágangur utanhúss: (sjá nánar í skilalýsingu, nema ef um annað er samið)
Útveggir: Timburgrind, klætt að utan með hvítri og grári ál báruklæðningu
Þak: Hefbundið kraftsperruþak með valma. Aluzink þakklæðning, þakrennur eru utanáliggjandi.
Gluggar og útihurðir: Gluggar og hurðir eru pvc frá Gluggavinum, hvítir að innan en dökkgráir að utan.
Bílskúrshurð er frá Héðins hurðum ásamt rafdrifnum bílskúrshurðaropnara.
Aðgengi og lóð: Lóð og bílaplan eru grófjöfnuð.
Frágangur innanhúss: (sjá nánar í skilalýsingu, nema ef um annað er samið)
Gólf: Gólf eru afrétt en gera má ráð fyrir óverulegri flotun.
Veggir og loft: Veggir skilast með plötuklæðningu tilbúnir undir spörtlun og málun. Hurðargöt miðast við yfirfelldar hurðir.
Loft innan íbúða eru með tvöfaldri raflagnagrind, klædd með einföldu gifslagi.
Hitalögn: Botnplata með innsteyptum gólfhitalögnum, gólfhiti verður tengdur en án stýringa.
Rafmagn: Búið verður að leggja ídráttarrör og dósir í botnplötu auk milliveggja og draga fyrir vinnurafmagni. Aðaltafla verður komin en ófrágengin.
Annað:
Seljandi greiðir tengigjöld rafmagns og hita og gatnagerðargjöld.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er innheimt við endanlegt brunabótamat (0,3%)
Byggingaraðili er Gunnar Albert Traustason húsasmíðameistari.
Nánari upplýsingar veita:
Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali s: 898-6822 / [email protected]
Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / [email protected]
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 79.980,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 1209494
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 70.000.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 0
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 46.000.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 399.772
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 175.1
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 27.01.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar :
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur :
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 816
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Bláengi 5A
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : raðpar
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 2023
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 4
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 4
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 0
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 2
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Sérinngangur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Bláengi
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 5
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
010101
Parhús á 1. hæð
175 m²
Fasteignamat 2025
65.800.000 kr.
Fasteignamat 2024
62.000.000 kr.
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina