26.01.2024 1208609

Söluskrá FastansFjarðargata 16

470 Þingeyri

hero

35 myndir

53.000.000

258.537 kr. / m²

26.01.2024 - 77 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 12.04.2024

6

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

205

Fermetrar

Fasteignasala

Dixon Fasteigna & Jarðasala

[email protected]
839-1100
Bílskúr
Gólfhiti
Sólpallur
Heitur pottur
Verönd
Garðskúr
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

DIXON - Fasteigna & Jarðasala kynnir;

Stórt og gott fjölskylduhús við Fjarðargötu 16 á Þingeyri með útsyni út á fjörð.

* Búið er að endurnýja ÞAK, SKOLP,  VATNSLAGNIR & ENDURNÝJA GLER.
* Nýlegur sólpallur er við húsið ásamt heitum pott og garðskúr.
* Óhindrað útsýni er út á sjó 
* 4 - 6 svefnherbergi eru í húsinu
* Ný steypt bílastæði er fyrir framan hús
* GÓLFHITI er í öllu húsinu


Gengið er inn á miðpall hússins,
Forstofan er með flísum á gólfi og rúmgóðum forstofuskáp.
Frá anddyri er gengið inn í alrými hússins. Eldhús er á hægri hönd og þaðan er hægt að ganga inn í borðstofu.
Stofan er stór og rúmgóð, hátt er til lofts í stofu og búið er að legjja metnað í sjónvarpsvegginn mep plötum úr ÞÞ með led lýsingu á bakvið.  Útgengt er út á nýlega sólpall með heitum pott. Pallurinn er nýlegur og verið er að leggja lokahönd á 20 fm grillskúr sem er á pallinum.
Eldhúsið er með veglegri innréttingu og gashelluborði, eyja er i miðjunni sem gefur gott vinnupláss. 
Úr alrými er gengið upp á efri pall/svefngang þar sem eru þrjú sverfnherbergi, 2 herbergin eru mjög rúmgóð og eitt minna ásamt sér fataherbergi sem mætti nýta sem lítið barnaherbergi.
Aðal baðherbergið er hið glæsilegast, það er ný uppgert, með fallegum flísum, upphengt salerni, stórt baðkar og Walk in sturta ásamt innréttingu með vask. Sérlega fallegur handklæðaofn er á baðherberginu, einnig er hallogen lýsing í lofti.
Gengið er úr alrými niður á neðri hæð þar sem er lítið herbergi á vinstri hönd, sem nýtist sem geymsla í dag. Bílskúr er 23,7 fm en búið er að breyta bílskúrnum í unglingasvítu / hægt er að breyta honum aftur í bíslkúr.
Gert er ráð fyrir öðru baðherbergi á neðri hæðinni. (Allt efni til þeirra framkvæmda til staðar og fylgir með í kaupum, þar á eftir að leggja gólfhitann).
Við enda gangsins er nýlegt þvottahús með innréttingu og varmadælu. Stýringar fyrir gólfhita eru í þvottahúsi og köld geymsla þar fyrir innan.

Þetta er einstaklega skemmtilegt fjölskylduhús þar sem hátt er til lofts í alrými, hallogenlýsing er í öllu húsinu og nýlegur sólpallur setutur punktinn yfir.
Eiegndur eru búin að nostra mikið við húsið, hér má sjá upptalningu yfir það sem búið er að gera:
 
Upptalning á framkvæmdurm;
Árið 2006: Vatnslagnir endurnýjaðar (allt í álpex). 
Skipt um klóak í húsinu (lagt í pvc), sett 200mm einangrun, rakasperra og ný rafmagnsgrind í loft. Loft voru klædd með eldtefjandi loftaklæðningu ásamt því að eldvarnarvír var settur undir einangrun. 
Á árunum 2006-2007 var nánast allt rafmagn dregið nýtt í að undanskildum nokkrum lögnum í kjallara. Rafmagnstafla var endurnýjuð að mestu leiti, skipt var um öll öryggi og lekaliða 
Árið 2013: Settur gólfhiti í allt húsið að undanskildu baðherbergi niðri og eldhúsi en gert er ráð fyrir tengingu á báðum stöðum. Steyptar voru nýjar tröppur fyrir framan húsið.
Árið 2016: Baðherbergi var fært og gert stærra árið 2016. Sturta og baðkar komið fyrir.
Árið 2017: Varmadæla var keypt og endurnýjuð í Thermia Atec frá Verklögnum.
Árið 2020: Um það bil100 fermetra verönd byggður og er að mestu tilbúinn. Skjólgirðing er í kringum veröndina. Heitur pottur (nuddpottur) var keyptur nýr 2020.
2020. Utandyra var skipt um þak á húsinu með álzink þakplötum. 
Fals á gluggum voru dýpkaðir og lagaðir, skipt um glerlista og sett K-gler í glugga.
Árið 2021: Stofa lagfærð og settar Virco steypuplötur á sjónvarpsvegg. Bílskúr var breytt í unglingaherbergi. Auðvelt er að breyta til baka. 12 fermetra garðhús byggt á verönd, ólokið (á eftir að setja hurð og gerefti) og notað sem útigeymsla.
Árið 2022: Tengt nýtt vatnsinntak niður í götu. Drenlögnum komið fyrir í kringum húsið, sökkull einangraður og takkadúkur settur yfir. Bæjarlækur, sem var lagður í steyptri lögn undir húsið, lagður í nýrri plastlögn fyrir innan hús. Lagað þar sem raki frá læknum var farin að gera vart við sig í þvottahúsi þar sem lögn var fallin saman. Húsgrunnur fékk að standa opinn til þurrkunar þar til rakamælingar voru komnar niðurfyrir tilskylin mörk. Í sumar var tengd ný klóaklögn frá brunni niður í götu.
Árið 2023: Þvottahús endurnýjað, bílaplan steypt og pallur málaður koxgrár.

Næst á dagsrá er að klára garðinn og múra húsið að utan.
 

Allar frekari upplýsingar um eignina gefur Steinunn Sigmundsdóttir Lg. Fasteignasali
Hægt er að ná í mig í síma 839-1100 eða á [email protected]


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv verðskrá.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

Engir þinglýstir kaupsamningar fundust á þessari eign

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010101

Íbúð á 1. hæð
205

Fasteignamat 2025

33.650.000 kr.

Fasteignamat 2024

28.750.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.


    Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).

    PóstlistiÁbendingarHafa samband