Söluauglýsing: 1208499
Bauganes 26
102 Reykjavík
Verð
Stærð
Fermetraverð
Tegund
Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 27 daga.
- Dagsetning skráningar: 26.01.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: Fjarlægt þann 23.02.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Birtingartími: 27 dagar
Hversu lengi auglýsingin hefur verið / var inni.
Staðsetning
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Húsið skiptist m.a. í forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, 6 svefnherbergi, 3 baðherbergi og þvottahús.
Auk þess er 2ja herb. íbúð með sér inngangi á aðalhæð hússins. Íbúðin er mikið endurnýjuð, nýtt parket, eldhúsinnrétting og tæki, hurðir, loftaklæðning, rafmagn og allt ný málað. Íbúðin er í útleigu og leigusamningur getur fylgt. Í kjallara hússins er mjög stórt óskráð rými sem er nýtt sem geymslurými. Hiti er í bílaplani og stétt fyrir framan húsið. Seljendur skoða möguleika á að taka ódýrari íbúð/íbúðir uppí.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun er hjá Guðbjörgu G. Sveinbjörnsdóttur lgfs. fasteignasali s. 899-5949 eða á netfanginu
[email protected]
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 316,3fm. og þar af er bílskúr skráður 36,3fm.
Nánari lýsing:
Forstofa rúmgóð með fatahengi og flísar á gólfi.
Gestasnyrting er inn af forstofu, flísar á gólfi.
Hol með parketi á gólfi. Úr holi liggur stigi niður á neðri hæð hússins.
Arinstofa/fjölskylduherbergi (svefnherbergi 1) er með parketi á gólfi. Áður var rýmið opið við holið og því
auðvelt að opna það aftur. Útgengt er út í garð úr herberginu.
Svefnherbergi 2 (húsbóndarými skv. teikningum) mjög rúmgott og parket á gólfi. Frá holi er gengið upp nokkur þrep í stofur og eldhús.
Stofa/borðstofa eru samliggjandi, rúmgóðar og bjartar með mikilli lofthæð og parketi á gólfi. Stórir gluggar til suðvesturs.
Eldhús hefur nýlega verið endurnýjað með fallegri innréttingu. Öll tæki eru ný, innbyggð uppþvottavél, ísskápur og vínkælir. Parket á gólfi. Eldhús er opið við borðstofu. Búr er inn af eldhúsi.
Stigi liggur niður úr holi niður á neðri hæð hússins. Einnig er sérinngangur er á neðri hæðina.
Neðri hæð:
Á hæðinni er forstofa, fjögur rúmgóð svefnherbergi, tvö baðherbergi (annað með sturtu en hitt með
baðkari), sjónvarpshol, skrifstofurými og þvottahús.
Forstofa með fatahengi og flísum á gólfi.
Rúmgott hol, er nýtt í dag sem gott sjónvarpsrými.
Hjónaherbergi (svefnherbergi 3) er rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. Baðherbergi er inn
af hjónaherbergi. Útgengt út í garð úr herberginu.
Baðherbergi inn af hjónaherbergi er með sturtuklefa, glugga, handklæðaofni og flísalagt í hólf og gólf.
Svefnherbergi 4 rúmgott með parketi á gólfi.
Svefnherbergi 5 rúmgott með parketi á gólfi.
Svefnherbergi 6 rúmgott með parketi á gólfi. Útgengt er út í garð úr herberginu.
Baðherbergi með baðkari, nýju blöndunartæki og handklæðaofni. Upprunaleg innrétting, flísalagt gólf.
Þvottahús er á jarðhæð.
Óskráð rými í kjallara er mjög stórt og býður upp á margvíslega notkunarmöguleika.
Auka 2ja herbergja íbúð á aðalhæð hússins sem er í útleigu og getur leigusamningur fylgt
Inngangur í íbúðina er við hlið aðalinngangs í húsið.
Íbúðin er mikið endurnýjuð; nýtt parket, ný loftaklæðning, nýtt rafmagn, nýtt eldhús og tæki, nýjar innihurðir og allt ný málað.
Forstofa er parketlögð.
Stofa er rúmgóð og björt með parketi á gólfi og stórum gluggum sem snúa í vestur.
Eldhús er opið við stofuna, ný eldhúsinnrétting og tæki og parket á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott með innangengri sturtu, tengi fyrir þvottavél, flísalagt í hólf og gólf.
Bílskúr:
Bílskúr er rúmgóður skráður 36,3fm., innangengt er í bílskúrinn úr húsinu og hurð liggur út í garð.
Bílaplan og stétt fyrir framan húsið er með hitalögn.
Húsið er steypt og með epoxy klæðningu á steypu.
Járn á þaki var endurnýjað fyrir u.þ.b. 16 árum síðan.
Frábær staðsetning á rólegum stað í Skerjafirði. Stutt í fallegt útivistarsvæði og göngufæri í miðbæ Reykjavíkur.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu [email protected]
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Ljósmyndir
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
- Eignanúmer: 1208499
Einnota auðkenni fyrir hverja eign. - Verð: 0
Ásett verð eignarinnar í krónum. - Brunabótamat: 138.050.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati. - Áhvílandi: 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni. - Fasteignamat: 201.350.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar. - Verð á fermetra: 0
Verð eignarinnar á hvern fermetra. - Fermetrar: 316.3
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum. - Dagsetning skráningar: 26.01.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: 23.02.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Skráningardagur: 26.01.2024
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega. - Póstnúmer: 102
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett. - Heimilisfang: Bauganes 26
Fullt heimilisfang eignarinnar. - Tegund eignar: einb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús. - Byggingarár: 1978
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð. - Herbergi: 10
Heildarfjöldi herbergja í eigninni. - Svefnherbergi: 7
Fjöldi svefnherbergja í eigninni. - Stofur: 0
Fjöldi stofa í eigninni. - Salerni: 4
Fjöldi salerna í eigninni. - Inngangur: Margir inngangar
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar. - Bílskúr: 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt). - Heitur pottur: 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt). - Verönd: 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt). - Auka íbúð: 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt). - Sýnileg: 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt). - Heiti heimilisfangs: Bauganes
Heiti eignar eða byggingar. - Húsnúmer: 26
Húsnúmer eignarinnar.