Söluauglýsing: 1208000

Norðurbakki 5A

220 Hafnarfjörður

Verð

88.900.000

Stærð

114.3

Fermetraverð

777.778 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli

Fasteignamat

80.150.000

Fasteignasala

Hraunhamar Fasteignasala

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 6 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Hraunhamar fasteignasala og Ársæll Ó Steinmóðsson löggiltur fasteignasali s:896-6076 kynna í einkasölu vandaða og fallega 114,3 fm 3 herbergja endaíbúð á 1. hæð í lyftuhúsi við Norðurbakka 5a, á vinsælum og fallegum stað í  miðbæ Hafnarfjarðar. Sérstæði í lokaðri bílageymslu fylgir eigninni. Samkvæmt birtum fm er íbúðin 106,7 fm og sér geymsla í kjallara 7,6 fm. Hellulagður sólpallur fylgir eigninni er útgengt á hann bæði úr hjónaherbergi og úr yfirbyggðri sólstofu. Húsið er klætt að utan og fyrir framan hús eru góð bílastæði.

 Frábær staðsetning í göngufæri við höfnina og miðbæ Hafnarfjarðar með fallegum gönguleiðum meðfram sjónum, kaffihúsum, veitingastöðum fjölbreyttum verslunum.

Skipting eignarinnar: Forstofa, hol, stofa, borðstofa, eldhús, tvö svefnherbergi, þvottahús, sólpallur, sólstofa og geymsla. Auk þessi fylgir stæði í lokaðri bílageymslu. Gólfefni eru parket og flísar.

Húsið er klætt að utan  gluggar álklæddir og því er það frekar viðhaldslétt. Á þaki eru sameiginlegar þaksvalir með fallegu útsýni yfir miðbæinn og höfnina sem innangengt er á frá stigaganginum.  Myndavélakerfi er í stigagangi og í bílageymslu er dekkjageymsla.

Lýsing eignarinnar:
Forstofa með fataskápum, parketi gólfi.
Hol/gangur er með parketi á gólfi.
Þvottahús er inn af forstofu og með ljósri innréttingu með vaski. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum og er útgengt á hellulagðan sólpall.
Baðherbergi  er með vandaðri innréttingu, sturtuklefa og baðkari, handklæðaofni. Flísar á veggjum og gólfi.
Svefnherbergi er með parekti á gólfi og fataskáp.
Eldhús er opið með parketi á gólfi. Innréttingu með viðarlituðum neðri skápum og ljósum efri skápum. Helluborð, háfur og bakaraofn í vinnuhæð. Góð borðstofa við hlið eldhúsins. 
Stofa er stór, björt og rúmgóð með parketi á gólfi og innfelldri lýsingu í hluta af lofti. Úr stofu er útgengt í flísalagða sólstofu og úr henni er útgengt á hellulagðan sólpall.
Geymsla í kjallara er með hillum.

Vönduð og góð eign á flottum stað í miðbæ Hafnarfjarðar.

Athygli er vakin á því að seljandi hefur ekki búið í eigninni og þekkja því ekki ástand hennar að öðru leyti en fram kemur í söluyfirliti. Seljandi getur ekki veitt frekari upplýsingar um ástand hennar en hægt er að kynna sér við almenna skoðun og skv. söluyfirliti. Seljandi bendir því væntanlegum kaupendum á að gæta sérstakrar árvekni við skoðun á eigninni og að þeir leiti sér aðstoðar sérfræðinga til að meta ástand eignarinnar. 


Allar nánari upplýsingar veitir Ársæll Ó. Steinmóðsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6076 eða sendið tölvupóst á netfangið [email protected] 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Stimpilgjald af veðskuldabréfi - 0% af höfuðstól skuldabréfs. 
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
5. Umsýslugjald til fasteignasölu kr.68.200.-m.vsk.

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983 og fagnar því 40 ára afmæli á árinu 2023. 
Hraunhamar, í fararbroddi í 40 ár. – Hraunhamar.is 


Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband