Söluauglýsing: 1203856

Smárarimi 110

112 Reykjavík

Verð

159.900.000

Stærð

219

Fermetraverð

730.137 kr. / m²

Tegund

Einbýli

Fasteignamat

132.950.000

Fasteignasala

Domusnova

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 9 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Domusnova og Ingunn Björg  kynna einstaklega fallegt og vel skipulagt 6 herbergja einbýlishús á einni hæð innst í botnlanga við Smárarima 110. Birt stærð skv. fasteignaskrá HMS er 219 m2, þar af er 34,8 m2 innbyggður bílskúr. Húsið skiptist í  forstofu, sjónvarpsrými, rúmgott eldhús, stofu, fjögur rúmgóð svefnherbergi og tvö baðherbergi, annað þeirra er með góðri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Innangengt í mjög rúmgóðan bílskúr. Aukin lofthæð er í sjónvarpsholi, stofu og eldhúsi með innfelldri lýsingu. Falleg verönd með heitum potti , grasflötur og matjurtargarðar. Hér er um að ræða einstaklega spennandi eign fyrir barnafjölskyldu í þessu vinsæla hverfi í Grafarvogi.

Mikið endurnýjuð eign !
  • Nýleg gólfefni á öllum gólfum nema bílskúr
  • Nýleg eldhúsinnrétting ásamt tækjum
  • Nýlegar innréttingar og tæki á báðum baðherbergjum
  • Nýlegar innihurðar
  • Nýleg útihurð ásamt bílskúrshurð
  • Þakkantur endurnýjaður 2022 og þak málað á sama tíma
Nánari upplýsingar veitir:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / [email protected]

Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Forstofa með góðum fataskáp og dökkum flísum.
Sjónvarpsrými: Rúmgott og bjart með mikilli lofthæð og þakglugga. Innfelld lýsing.
Eldhús: Falleg og mjög rúmgóð nýleg hvít innrétting, viðar borðplötur, bakaraofn í vinnuhæð, stór eyja með vaski, helluborði og háfi. Dökkar flísar á gólfi. Aukin lofthæð með innfelldri lýsingu. Tvöföld hurð út á verönd frá eldhúsi. 
Stofa / borðstofa: Mjög rúmgott rými með aukinni lofthæð og innfelldri lýsiingu. Frá borðstofu er gengið út á verönd og í garð.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með gluggum á tvo vegu, mikið skápapláss.
Barnaherbergi 1: Mjög rúmgott og bjart með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Barnaherbergi 2: Mjögrúmgott og bjart með harðparketi á gólfi.
Barnaherbergi 3: Mjög rúmgott og bjart með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi 1:  Með fallegri sérsmíðaðri ljósri innréttingu, walk inn sturtu, sérsmíðaðri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Upphengt salerni. 
Baðherbergi 2: Með fínni innréttingu og  upphengdu salerni. 
Bílskúr: Stór og fínn bílskúr með geymslulofti að hluta.
Bílaplan: Hellulagt bílaplan með snjóbræðslu fyrir tvo bíla.  
Verönd og garður: Verönd hefur nýlega verið stækkuð, heitur pottur, fallegur gróinn garður með matjurtargörðum.

Ath! Skúr á lóð fylgir ekki með í kaupum. 

Nánari upplýsingar veita:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / [email protected]
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband