Söluauglýsing: 1197964

Straumsalir 9

201 Kópavogur

Verð

74.900.000

Stærð

105.3

Fermetraverð

711.301 kr. / m²

Tegund

Hæðir

Fasteignamat

76.850.000

Fasteignasala

Trausti

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 21 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Virkilega falleg íbúð, vel skipulögð með sérgangi og fallegu í þríbýli með útsýni á þessum vinsæla stað í Salahverfi í Kópavogi.
Göngufæri í alla þjónustu, skóla, leikskóla, íþróttahús og sundlaug. 
Eignin getur verið laus við kaupsamning. 


Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 105,3 fm og þar af 6.9 fm sérgeymsla.

Eignin skiptist í anddyri, eldhús, þvottahús/geymslu, stofu, svalir með útgengið bæði úr stofu og svefnherbergi, baðherbergi með sturtu og baðkari og tvö svefnherbergi.

Nánari lýsing: 
Forstofa komið er inn í forstofu um sérinngangi Flísar á gólfi og fataskápur sem nær upp í loft.
Stofa/borðstofa er rúmgóð stofa með fallegum útsýni. Parket á gólfi og gengið út á svalir.
Eldhús er með smekklegri innréttingu og góðum borðkrók, parket á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum, parketi á gólfi og með útgengni út á svalir.
Barnaherbergi er rúmgott með skápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi er með baðkari og sturtu. Góðri innréttingu og flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús er inn af eldhúsi er rúmgott þvottahús með glugga.
Sérgeymsla sem er rúmgóð geymsla er í sameign ásamt hjóla og vagnageymslu. 
Nýtt parket var sett á alla íbúðina 2023 frá Agli Árnasyni.
Þakið og gluggar voru málaðir 2023 og húsið steypulagað og borið á það árið 2022.

Stutt í alla helstu þjónustu sem svo skóla, leikskóla, frístundir og íþróttaiðkun, heilsugæslu, verslanir ofl. 
Gengið er inn í íbúðina beint af bílastæði og er hiti í stétt fyrir framan húsið og því auðvelt aðgengi allt árið um kring.


Allar nánari upplýsingar veita Inga Reynis lgfs í síma 820-1903 eða á netfanginu [email protected] eða Kristján Baldursson á netfanginu [email protected].

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband