11.12.2023 1193582

Söluskrá FastansÁrakur 23

210 Garðabær

hero

45 myndir

Tilboð

0 kr. / m²

11.12.2023 - 46 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 26.01.2024

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

248.9

Fermetrar

Fasteignasala

Sunna

[email protected]
7772882
Bílskúr
Svalir
Verönd
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

SUNNA FASTEIGNASALA  og Marta Jónsdóttir  lögfr. og lögg. fasteignasali kynna vandaða eign í einkasölu; Árakur 23,  248.9 fm 6 herb. raðhús á tveimur hæðum. Einstaklega fjölskylduvæn og vel skipulögð eign í Akrahverfinu í Garðabæ.
Eignin er skráð sem hér segir hjá Fasteignaskrá HMS; Fastanr. 229-7119. Íbúðin er skráð 219,5  fm. og bílskúrinn 29,4 fm. birt heildarstærð 248.9 fm. 
Eignin skiptist í: Forstofu/hol, 4 svefnherbergi, 2 stofur, eldhús og 2 baðherbergi, sjónvarpshol og bílskúr sem innangengt er í. 
Nánari lýsing; Komið er inn í flísalagða forstofu með góðum fataskápum. Úr holi við forstofu er gengið inn í svefnherbergi, baðherbergi og bílskúr og opið alrými í framhaldi af því.
Herbergi með glugga í norður og fataskápum (merkt geymsla á teikningu).
Baðherbergi á hæðinni er flísalagt í hólf og gólf, flísar úr náttúrusteini á gólfi, góð sturtuaðstaða og innrétting.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu og björtu alrými með góðum gluggum mót suðri. Eldhús er með nýlega endurnýjað á vandaðan hátt með hvítri innréttingu, Quartz steini á borðplötum og góðu vinnu og skúffuplássi, eyja skilur að eldhúsið og borðstofuna. Innrétting er frá HTH, eldhústæki vönduð tæki frá Siemens.
Stofa; Rúmgoð borðstofa er í framhaldi af eldhúsinu. Stofan er rúmgóð með gólfsíðum gluggum, frá henni er gengið út á afgirta hellulagða verönd og skjólgóðan garð mót suðri.
Efri hæð :  Á hæðinni eru í dag 3 stór svefnherbergi en þau gætu verið 4 (minnka sjónvarshol).
Hjónaherbergi er rúmgott (26.3 f,) með sér fataherbergi / fataskápum, útgengt er á suð-austur svalir frá hjónaherberginu.
Tvö barnaherbergi á efri hæð með parketi á gólfum, herbergið næst sjónvarspholinu er 20 fm en hitt 15,3 fm. 
Á hæðinni er stórt og rúmgott baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, þar er hvortveggja baðkar í yfirstærð og góð sturtu, innrétting fyrir handlaug.
Sjónvarpsherbergið er rúmgott og möguleiki að breyta þessu rými í fimmta svefnherbergið. Út frá sjónvarpsrýminu er gengið út á stórar svalir
Þvottahús er flísalagt með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. 
Innangengt er í rúmgóðan bílskúri (29,4 fm) frá forstofu, hann er með heitu og köldu vatni og góðum vaski,og nýtist vel sem bæði geymslurými og bílskúr.
Þetta er vel staðsett eign í hinu vinsæla Akrahverfi í Garðabænum, stutt er í skóla, leikskóla og íþróttað- og tómstundastarfsemi, nýlega verslun Krónunnar og aðra þjónustu.
Nánari lýsing eignarinnar: Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lögg. fasteignasali, í síma 7772882, tölvupóstur [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

Pnr.HeimilisfangKaupverðStærðFermetraverðTegundFastan.Dags.Noth.
57.000.000 kr.248.90 229.008 kr./m²229711925.11.2011

148.000.000 kr.248.90 594.616 kr./m²229711916.05.2022

160.000.000 kr.248.90 642.828 kr./m²229711904.07.2024

Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007

Sótt frá Þjóðskrá

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010101

Raðhús á 1. hæð
248

Fasteignamat 2025

161.600.000 kr.

Fasteignamat 2024

156.100.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.


    Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).

    PóstlistiÁbendingarHafa samband