07.12.2023 1192205

Söluskrá FastansBjörkurstekkur 9

800 Selfoss

hero

19 myndir

83.700.000

500.898 kr. / m²

07.12.2023 - 29 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 05.01.2024

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

167.1

Fermetrar

Fasteignasala

Husfasteign Fasteignasala

[email protected]
864-8090
Bílskúr
Gólfhiti
Sólpallur
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

HÚS fasteignasala kynnir í einkasölu: Björkurstekkur 9. Fimm herbergja, nýtt vandað og staðsteypt endaraðhús tilbúið til innréttinga.

Fullbúið að utan með vandaðri klæðningu og einangrað. Að innan skilast húsið tilbúið til innréttinga skv nánari skilalýsingu hjá fasteignasala.
 Lóð frágengin, steypt innkeyrsla með snjóbræðslulögnum, þökulögð lóð og sólpallur í suðurgarði, örstutt í nýjan grunnskóla, Stekkjarskóla.

Innra skipulag skv teikningu. Forstofa, gangur, fjögur svefnherbergi, eldhús og stofa í opnu rými, baðherbergi, þvottahús geymsla og bílskúr.


Björkurstekkur 9 – 13 er raðhúsalengja með þremur íbúðum.  Nýbyggður grunnskóli örstutt frá húsinu. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd að utan með viðhaldslitlum klæðningum. Allt með vönduðum hætti. Íbúðirnar eru með mismunandi innra skipulagi.

Tilbúið til afhendingar.

Skilalýsing:

Utanhússfrágangur:
Útveggir: Húsið er fulleinangrað að utan.  Veggir eu klæddir með mjög vandaðri 2mm sléttri álklæðningu sem er brotin upp í eins konar panela.
Gluggar og útihurðir: Allir gluggar eru ál/tré gluggar, hvítmálað timbur að innan en álklæddir að utan.
Þak: Svokallað viðsnúið þak. Tvöfalt lag af asphalt pappa er heilsoðið á steypta þakplötu sem er formuð með halla að niðurföllum. Ofan á dúkinn kemur 200 mm einangrunarlag, slimline dúkur ofan á einangrunina og loks malarfarg.
Skilveggir í lóðamörkum á milli íbúða eru steyptir með standandi borðaklæðningaráferð.

Innanhússfrágangur 
Útveggir: Steyptir veggir, slípaðir ,spartlaðir og grunnmálaðir
Innveggir: Burðarveggir, bílskúrsveggir og veggir á milli íbúða eru steyptir, slípaðir ,spartlaðir og grunnmálaðir.  Léttir milliveggir er gifsveggir klæddir tvöföldu gifsi, spartlaðir og grunnmálaðir
Frágangur lofta: Loft eru steypt, slípuð spörtluð og grunnmáluð
Raflagnir: Heimtaug rafmagns tengd og frágengin. Pípur fyrir raf- og boðlagnir milli taflna og tengidósa fullgerðar.  Rafmagnstafla fullgerð með tilliti til vinnuljósa og uppsetts rafbúnaðar.  Vinnuljós tengd í hverju herbergi
Útiljós fylgja öllum íbúðum.
Ljósleiðaralagnir eru komnar inn í allar íbúðir
Pípulagnir:  Fráveitulagnir innanhúss fullgerðar og frágengnar frá niðurföllum og þrifatækjum. Neysluvatnslagnir fullgerðar og frágengnar að tækjum. Gólfhiti er í öllum íbúðum og eru þær lagnir steyptar í botnplötu, kerfið er fullfrágengið en án stýringa.
Lagnaleið er fyrir pott.
Snjóbræðslukerfi í bílaplani
Loftræsikerfi : Þakventlar eru á þaki samkvæmt hönnun en gert er ráð fyrir vélrænni loftæstingu út úr votrýmum og gluggalausum rýmum. Loftræsiventill er út úr vegg í hverri íbúð til að varna undirþrýstingsmyndun.
Geymslur eru inni í öllum íbúðum.
 
Lóð:
Lóð er fullfrágengin samkvæmt teikningu, þökulögð en án trjágróðurs.
Sólpallar fylgja öllum íbúðum
Hitalagnir eru í innkeyrslum og stéttum að húsi. 
Plön framan við húsin eru steypt og vélslípuð
Sorpskýli fyrir 3 tunnur fylgja hverri íbúð.

Hönnun og framkvæmd verks
Arkitektateikningar: Mbyggingar – Ragnar Magnússon
Burðarþol og lagnahönnun: New Nordic engineering ehf.
Raflagnir: LUMEX
Eigandi framkvæmdar: Pálmatré ehf.
Byggingaraðili: Pálmatré ehf.
Kaupendur greiða skipulagsgjald sem er 0,3 % af brunabótamati íbúðar. Gjaldið er lagt á eftir lokaúttekt. 
Kaupandi skal áður en hann hefur framkvæmdir ráða nýjan byggingarstjóra að húsinu, sama gildir um alla aðra iðnmeistara að húsinu. 

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali s. 864-8090 eða [email protected]

 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.



 

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010101

Raðhús á 1. hæð
167

Fasteignamat 2025

74.750.000 kr.

Fasteignamat 2024

73.600.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband