Söluauglýsing: 1185857
Reykjabraut 16
815 Þorlákshöfn
Verð
Stærð
Fermetraverð
Tegund
Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 23 daga.
- Dagsetning skráningar: 21.11.2023
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: Fjarlægt þann 15.12.2023
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Birtingartími: 23 dagar
Hversu lengi auglýsingin hefur verið / var inni.
Staðsetning
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Marta Jónsdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða [email protected]
Eignin skiptist í; Efri hæð: Forstofa, hol, stofu/borðstofa, eldhús, svefnherbergisgangur, 3 svefnherbergi og baðherbergi. Neðri hæð: Þvottahús, svefnherbergi, vinnuherbergi/geymsla og bílskúr.
Nánari lýsing eignar:
Efri hæð: Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu með nýlegri útihurð.
Opið hol/alrými tengir saman stofurými, eldhús og svefnherbergisgang. Þar er góður fataskápur..
Stofan er opin og björt með gluggum á tvo vegu, gott rými fyrir bæði borðstofu og setustofu.
Eldhús með góðri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, eldhústhæki frá AEG og góður borðkrókur við glugga. Náttúruflísar á gólfi.
Svefnherbergisgangur: Úr holi er gengið upp þrjú þrep með gólflýsingu inn í svefnherbergisgang.
Hjónaherbergi: Með nýlegum fataskáp, útgengt er út á norðaustur svalir með nýlegu handriði og parket á gólfi. Nýlega skipt um glugga og svalahurð.
Svefnherbergi 2: Rúmgott svefnherbergi með nýlegum Ikea fataskáp og harðparket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Rúmgott svefnherbergi með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Snyrtilegt, flísalagt með baðkari, upphengdri sturtu, nýlegri innréttingu og upphengdu salerni, þar er gluggi með opnanlegu fagi.
Úr holinu er gengið niður steyptan stiga á neðri hæðina.
Þvottahús: Rúmgott með innréttingu og flístum á gólfi, þaðan er gönguhurð út í garðinn aftan við húsið.
Bílskúr: Með nýlegri aksturshurð, þar eru einnig góðir gluggar og innangengt úr þvottahúsi. Þar hefur áður verið innréttað herbergi innst í bílskúrnum.
Vinnuherbergi / geymsla: Gott vinnuherbergi með glugga er inn af þvottahúsinu, það býður upp á ýmsa möguleika í nýtingu.
Garður: Gróinn skjólgóður garður með og tveimur stórum sólpöllum. Bílaplan tekur 3-4 bíla, malarlegt en stétt fyrir framan húsið er steypt.
Allar frekari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir s. 777-2882 eða [email protected]
Töluvert hefur verið endurnýjað í húsinu að sögn fyrri eigenda;
- Skipt hefur verið um járn, þakpappa og vindskeiðar á þaki (ártal liggur ekki fyrir).
- Húsið klætt að utan að hluta með bárujárni (ártal liggur ekki fyrir)
- Búið er að skipta um nær alla glugga og gler (ártal liggur ekki fyrir)
- Forstofuhurð og svalahurð endurnýjaðar
- Allar innihurðar eru nýjar
- Búið er að endurnýja allt frárennsli.
- Skipt hefur verið um alla rafmagnsrofa og tengla sem og rafmagnsefni í töflu, öryggi ofl.
- Skipt var um neysluvatnslagnir fyrir ca 16 árum
- Hitaveitugrind var endurnýjuð fyrir ca 16 árum
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Húsakostur bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Ljósmyndir
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
- Eignanúmer: 1185857
Einnota auðkenni fyrir hverja eign. - Verð: 53.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum. - Brunabótamat: 63.900.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati. - Áhvílandi: 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni. - Fasteignamat: 45.250.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar. - Verð á fermetra: 347.070
Verð eignarinnar á hvern fermetra. - Fermetrar: 155.3
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum. - Dagsetning skráningar: 21.11.2023
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: 15.12.2023
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Skráningardagur: 21.11.2023
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega. - Póstnúmer: 815
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett. - Heimilisfang: Reykjabraut 16
Fullt heimilisfang eignarinnar. - Tegund eignar: einb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús. - Byggingarár: 1963
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð. - Herbergi: 5
Heildarfjöldi herbergja í eigninni. - Svefnherbergi: 3
Fjöldi svefnherbergja í eigninni. - Stofur: 0
Fjöldi stofa í eigninni. - Salerni: 1
Fjöldi salerna í eigninni. - Inngangur: Tveir inngangar
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar. - Bílskúr: 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt). - Heitur pottur: 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt). - Verönd: 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt). - Auka íbúð: 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt). - Sýnileg: 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt). - Heiti heimilisfangs: Reykjabraut
Heiti eignar eða byggingar. - Húsnúmer: 16
Húsnúmer eignarinnar.