Söluauglýsing: 1180072

Skógarbraut 918

262 Reykjanesbær

Verð

43.900.000

Stærð

71.3

Fermetraverð

615.708 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli

Fasteignamat

26.350.000

Fasteignasala

RE/MAX

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 2 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

RE/MAX Senter fasteignasala kynna til sölu: Björt, rúmgóð og vel skipulögð þriggja herbergja 70,0 fm íbúð á 2. hæð (nr. 0215) við Skógabraut 918, 262 Reykjanesbæ. Íbúðin er mikið endurnýjuð og afhendist með gólfefnum. Eigninni fylgir 1,3 fm geymsla (144). Samtals stærð er 71,3 fm. Íbúðin samanstendur af tveimur svefnherbergjum, forstofu, stofu, borðstofu, eldhúsi, og baðherbergi. Sér geymsla ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu eru á 1 hæð.
Bókaðu skoðum 
Pétur 8936513
Sýni samdægurs



Innbyggður ísskápur og uppþvottvél fylgir

Eignin uppfyllir skilyrði fyrir hluteildarlán HMS

Birtar myndir eru af íbúð sem er á efstu hæð ( íbúð merkt 301 )


Nánari lýsing:
Anddyri er með parket og fataskáp.
Eldhúsið er með fallegri innréttingu og flísar á milli skápa og parket á gólfi.
Hjónaherbergið er með parket á gólfi og fataskáp.
Barnaherbergið er með parket á gólfi og fataskáp.
Stofan er með parket á gólfi og með útgengi út á suður svalir
Baðherbergi er mjög rúmgott með flísum á gólfi með sturtu. Fallegar hvítar innréttingar og tengi fyrir þvottavél.

Íbúðirnar voru byggðar árið 1978 og farið var eftir þágildandi reglugerð. Á meðan á endurbótum stóð voru sendar inn breytingar á aðaluppdráttum og lagnateikningum og þær samþykktar af byggingarfulltrúa. Íbúðum er skilað fullbúnum með gólfefnum. Harðparket á gólfum frá Húsasmiðjunni, flísar á baðherbergi eru frá Álfaborg. Innihurðar eru frá Húsasmiðjunni. Fataskápar í herbergjum eru frá Ikea. Ofnakerfi hússins er tengt sameiginlegu forhitarakerfi tengt í tækniherbergi 1.hæð, ofnar eru voryl ofnar, nýir frá Ofnasmiðju Suðurnesja (Byko). Led ljóskúplar á baðherbergi eru frá Rönning. Greinatafla er í alrými hverrar íbúðar en aðaltafla hússins og mælatafla fyrir hverja íbúð er í tækniherbergi 1.hæð. Veggir eru ýmist byggðir upp á eftirfarandi máta. Á milli íbúða eru þeir ýmist steyptir eða hlaðnir og uppfylla núgildandi brunakröfur. Veggir inni í íbúðinni hefðbundnir gifsveggir. Langir hafa verið endurnýjaðir,neysluvatn ofnalagnir og frárennsli út fyrir sökkul. Dregið hefur verið nýtt raflagnaefni í þær lagnaleiðir sem voru til staðar og nýjum leiðum bætt við að hluta.

Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðaðar og eru frá Parka, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur valkostur en eru ekki innifalin í verði en tækin eru Electrolux frá Húsasmiðjunni. Blástursofn og keramik helluborð eru einnig Electrolux frá Húsasmiðjunni. Innbyggð vifta er fyrir ofan helluborð og kemur frá Parka. Hreinlætistæki eru frá Byko.
Baðherbergi Innréttingar, vaskaskápur með skúffu og speglaskápur með led lýsingu að neðan eru frá Parka. Öll hreinlætistæki eru frá Byko. Flísar eru á gólfum og hluta af veggjum. Vélrænt útsog með stýringu í tækniherbergi 1 hæð.

Sjá má nánari upplýsingar í skilalýsingu seljanda sem kemur með söluyfirliti.

Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson  löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / [email protected] og Gunnar Sverrir löggiltur fasteignasali í síma 862-2001 / [email protected]

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband