02.11.2023 1178135
Ránargata 46
101 Reykjavík
52 myndir
117.900.000
700.535 kr. / m²
02.11.2023 - 8 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 10.11.2023
4
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
168.3m²
Fermetrar
Tegund
FjölbýliByggingarár
1987Fasteignamat
88.650.000Inngangur
SameiginlegurFastanúmer*
2000900Byggingarnúmer*
1014416Brunabótamat
74.600.000Verðmat Fastans
Reiknar verðmat...
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Fasteignamiðlun og Hreiðar Levý lögg. fasteignasali kynna Glæsilega og vel skipulagða 168,2fm, 6 herbergja íbúð á 2 hæðum í litlu fjölbýlishúsi byggðu árið 1987 í gamla Vesturbænum að Ránargötu 46, 101 Reykjavík. Íbúðin var endurbætt 2007, nýjar inréttingar í eldhúsi og baðherbergum, hiti í baðgólf, gluggar á efri hæð stækkaðir en þaðan er tilkomumikið og fallegt útsýni. Húsið er þrjár hæðir og eru aðeins 5 íbúðir í húsinu. Húsinu fylgir 3 bílastæði á bílaplani bakvið hús. Hefð er fyrir því að bílastæðið lengst hægra megin fylgi og sé í notkun af íbúum íbúðarinnar. Eignin skiptist í Neðri hæð: Gangur, eldhús, stofa, baðherbergi og tvö herbergi. Efri hæð: Stofurými, baðherbergi með sturtu, tvo rúmgóð herbergi þar sem möguleiki er að nota annað sem stofu eða jafnvel skrifstofu. Útgengi út á suðvestursvalir úr borðstofu á neðri hæð en uppi eru svalir út frá hjónasvítu og franskarsvalir í herbergi/sjónvarpsrými með háum glugga og útsýni út á höfnina og á Esjuna. Virkilega spennandi og falleg íbúð í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi í gamla Vesturbænum. Skólar á öllum stigum í nágrenninu ásamt fjölbreyttri verslun og þjónustu allt í kring. Verið er að klára að mála húsið, en það var múrviðgert í vor 2023. Borgast þær framkvæmdir að fullu af seljendum.
Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða [email protected]
Fasteignamat fyrir árið 2024 er skv. HMS 98.050.000
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er húsið skráð samtals 168,3 fm, neðri hæð 81,9 fm og efri hæð 81,3 ásamt sérgeymsla á jarðhæð sem er 5,1 fm. Heildargólfflötur er 180,3 fm en 12, 6 fm af efri hæð eru undir súð og eru því ekki taldir með í fermetramælingu íbúðarinnar.
Nánari Lýsing:
Neðri hæð:
Gangur: Opinn í báða enda. Gengið í svefnherbergi, baðherbergi og alrými í báða enda.
Alrými: Opið, bjart og rúmgott alrými með samliggjandi eldhúsi og stofu.
Eldhús: Hvítlökkuð innrétting með gráum bekkjum. Opnir efriskápar og gler á milli efri og neðri skápa. Ofn er í vinnuhæð. Eldhúseyjan er með granít borðplötu og gashelluborði. Opnanlegur gluggi í eldhúsi. Flísar á gólfi.
Borðstofa: Opin, björt og rúmgóð í góðri tengingu við eldhús. Gengið út á rúmgóðar svalir til sem snúa til suðurs og vesturs. Fallegur parketlagður járnstigi uppá rishæð.
Herbergi I: Gengið í herbergi úr borðstofu.
Herbergi II: Rúmgott. Rennihurð er á milli herbergja. Möguleiki á að tengja saman.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með baðkari m/sturtu og gleri, upphengt wc, granít borðplata undir vask. Inn af er þvottahús bakvið speglarennihurðir. Flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús: Innaf baðherbergi, bakvið speglarennihurðir. Innrétting með skúffum ásamt aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Gluggi með opnanlegu fagi. Flísar á gólfi og veggjum.
Rishæð: Gengið upp fallegan, parketlagðan járnstiga úr stofu.
Setu-/sjónvarpsstofa: Opin og björt með Fallegri gluggasetningu til suðurs og vesturs. Stór og fallegur kvistur. Fallegt útsýni til vesturs út á haf og alla leið út á Snæfellsjökul þegar skyggni er gott.
Herbergi III: Rúmgott með góðu skápaplássi. Útgengt út á suðursvalir.
Herbergi IV/Stofa: Mjög rúmgott herbergi sem skv. teikningum er það skráð sem stofa. Afar bjart og fallegt rými með gas arinn, glæsilegum stórum kvisti með gólfsíðum gluggum og frönskum svölum. Gullfallegt útsýni út á höfnina og á Esjuna út um kvistglugga. Útsýni út á sjó og til Snæfellsjökulls úr vesturglugga þegar skyggni er gott. Er í dag nýtt sem svítuherbergi.
Baðherbergi: Ljós innrétting með marmaraborðplötu, hvítum veggflísum, upphengdu wc, vask og sturtu með glerhurð. Opnanlegur þakgluggi. Flísalagt í hólf og gólf.
Geymsla: Sérgeymsla á jarðhæð. 5,1fm
Bílastæði: 3 bílastæði á bakvið hús. Bílastæði lengst til hægri hefur skv. hefð verið nýtt af íbúum eignarinnar.
Garður: Afgirtur, tyrfður garður bakvið hús.
Gólfefni: Parket á öllum rýmum að undanskyldum baðherbergjunum, eldhúsi og svefnherbergi á efri hæð sem eru flísalögð.
Glæsileg eign á besta stað í borginni með miðborgina og Grandann í nokkra mínútna göngufjarlægð. Öll helsta þjónusta, verslun, kaffi- og veitingahús allt í kring ásamt fjölbreyttu menningarlífi. Skólar á öllum stigum í nágrenninu.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignamiðlun því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6616021, tölvupóstur [email protected]
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 1178135
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 117.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 74.600.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 88.650.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 700.535
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 168.3
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 02.11.2023
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 10.11.2023
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur : 02.11.2023
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 101
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Ránargata 46
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 1987
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 6
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 4
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 0
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 2
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Ránargata
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 46
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina