Söluauglýsing: 1175764
Dverghólar 3
800 Selfoss
Verð
Stærð
Fermetraverð
Tegund
Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 5 daga.
- Dagsetning skráningar: 26.10.2023
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: Fjarlægt þann 01.11.2023
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Birtingartími: 5 dagar
Hversu lengi auglýsingin hefur verið / var inni.
Staðsetning
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Díana s.895 9989 og Hulda s.771 2528 fasteignasalar kynna í einkasölu: Dverghóla 3, 4ra herbergja vandað raðhús í fjölskylduvænu hverfi stutt frá skóla og leikskóla.
Húsið er steypt, einangrað að utan og klætt með duropal. Bárujárn er á þaki.
Samkvæmt HMS er eignin 157,4m2 þar af er bílskúr 36m2.
Smelltu hér ef þú vilt fá söluyfirlit strax.
Eignin skiptist niður í anddyri, stofu, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, sjónvarpshol, þvottahús og stóran bílskúr með geymslulofti.
Nánari lýsing:
Fyrir framan hús: Falleg aðkoma að húsi, upphituð hellulögð stétt fyrir framan hús, tvö bílastæði.
Anddyri: Hiti er í gólfi með flísum og fataskáp.
Stofa: Rúmgóð og björt, gegnheilt eikarparket á gólfi og upptekið loft með glugga. Útgengi í skjólsaman suðurgarð með fallegum palli.
Eldhús: Hiti er í gólfi með flísum. Falleg eikarinnréttinga með góðri vinnuaðstöðu tengi fyrir uppþvottavél.
Baðherbergi: Hiti er í gólfi með flísum á gólfi og veggjum, baðkar með sturtu, upphengt salerni, handklæðaofn og snyrtileg innrétting með handlaug.
Sjónvarpshol:Gegnheilt eikarparket á gólfi. Geymslurými fyrir ofan ganga.
Þvottahús: Flísar á gólfi og hillur.
Svefnherbergi: Þrjú rúmgóð herbergi. Fallegt hjónaherbergi með gegnheilu eikarparketi á gólfi og fataskáp. Tvö barnaherbergi með gegnheilu eikarparketi á gólfi og fataskáp.
Bílskúr: Steypt gólf og málaðir veggir. Gönguhurð í bakgarð. Gott geymsluloft.
Stór garður: Gróinn garður með trjám, skjólbeltum og stórum fallegum sólpalli er fyrir aftan hús. Opið svæði er fyrir aftan garðinn.
Loftgluggar og aukin lofthæð í flestum rýmum, tæpir 4.metrar.
Falleg og vel skipulögð eign, vel staðsett stutt frá skóla og leikskóla.
Nánari upplýsingar veita:
Díana Arnfjörð löggiltur fasteignasali
[email protected] s: 895 9899
Instagram: dianaarnfjordlfs
Hulda Ósk löggiltur fasteignasali
[email protected] s: 771 2528
Instagram: huldaosklfs
Hafðu samband ef þú vilt skoða eign eða með eign sem við getum aðstoðað þig við sölumeðferð á.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður
Ljósmyndir
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
- Eignanúmer: 1175764
Einnota auðkenni fyrir hverja eign. - Verð: 82.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum. - Brunabótamat: 71.800.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati. - Áhvílandi: 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni. - Fasteignamat: 73.200.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar. - Verð á fermetra: 526.684
Verð eignarinnar á hvern fermetra. - Fermetrar: 157.4
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum. - Dagsetning skráningar: 26.10.2023
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: 01.11.2023
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Skráningardagur: 26.10.2023
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega. - Póstnúmer: 800
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett. - Heimilisfang: Dverghólar 3
Fullt heimilisfang eignarinnar. - Tegund eignar: raðpar
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús. - Byggingarár: 2002
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð. - Herbergi: 4
Heildarfjöldi herbergja í eigninni. - Svefnherbergi: 3
Fjöldi svefnherbergja í eigninni. - Stofur: 0
Fjöldi stofa í eigninni. - Salerni: 1
Fjöldi salerna í eigninni. - Inngangur: Margir inngangar
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar. - Bílskúr: 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt). - Heitur pottur: 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt). - Verönd: 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt). - Auka íbúð: 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt). - Sýnileg: 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt). - Heiti heimilisfangs: Dverghólar
Heiti eignar eða byggingar. - Húsnúmer: 3
Húsnúmer eignarinnar.