18.10.2023 1173151

Söluskrá FastansNaustabryggja 28

110 Reykjavík

hero

39 myndir

124.900.000

549.736 kr. / m²

18.10.2023 - 66 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 22.12.2023

5

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

227.2

Fermetrar

Fasteignasala

Höfði Fasteignasala

[email protected]
896-3038
Bílskúr
Kjallari
Há lofthæð
Svalir
Verönd

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Höfði fasteignasala kynnir:

GLÆSILEGT FJÖLSKYLDUVÆNT ENDARAÐHÚS Á ÞREMUR HÆÐUM OG TVÖFÖLDUM BÍLSKÚR Á ÞESSUM EFTIRSÓTTA STAÐ Í BRYGGJUHVERFINU. 

Um er að ræða endaraðhús á þremur hæðum byggt árið 1999 með sér íbúðarherbergi á jarðhæð, tvöföldum 40,7 fm bílskúr, sólskála, afgirtri verönd og stórum suður svölum ásamt minni svölum á efstu hæðinni. Á efstu hæðinni eru fjögur góð svefnherbergi og baðherbergi. Á miðhæðinni er mjög rúmgott eldhús þar sem útgengt er út á stórar suður svalir, tvær stofur og borðstofa. Á jarðhæðinni er íbúðarherbergi, anddyri og baðherbergi, innangengt er inn í bílskúrinn og þvottaaðstöðuna. Einnig er útgengt út í sólstofuna og veröndina.

Samkvæmt skráningu Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 227,2 fm.  
Fyrirhugað fasteignamat 2024 er kr. 106.850.000,-


Forstofa/anddyri: Flísalagt með fatahengi, innangengt í bílskúrinn og salernið á jarðhæðinni, einnig er útgengi út í sólskálann og veröndina.
Íbúðarherbergi á jarðhæð: Stórt herbergi með parketi á gólfi, eldhúskrókur inn af og innangengt í bílskúrinn og þvottaaðstöðuna.
Baðherbergi: Flísalagt með sturtuklefa, skápur, lítill vaskur og gluggi.
Miðhæð:
Eldhús:
Rúmgott með fallegri innréttingu og góðu skápaplássi, lýsing undir efri skápum, gaseldavél, parket á gólfi og útgengt út á suður svalir.
Stofur: Stofurnar eru bjartar rúmgóðar með parketi á gólfum og einstöku sjávarútsýni.
Efsta hæð: Mikil lofthæð og góðir fataskápar á ganginum.. 
Svefnherbergin: Hjónaherbergið er rúmgott með góðum fataskáp, parket er á gólfi og fallegt sjávarútsýni. Hin herbergin eru þrjú, eitt mjög rúmgott með svölum og tvö minni, parket á gólfum.
Baðherbergi: Flísalagt, sturta og opnir neðri skápar, upphengt salerni, handlaug með neðri skáp, handklæðaofn og gluggi.
Tvöfaldur bílskúr: Rúmgóður, búið er að gera þvottaaðstöðu inn af skúrnum og litla fataherbergi.
Þvottur:  Á jarðhæð, inn af bílskúrnum.

- Búið er að setja sólskála á hluta verandarinnar.
- Endaraðhús með stærri garði en gengur og gerist í Bryggjuhverfinu, mjög fallegt útsýni er frá húsinu.

Allar nánari uppl. og skoðun veitir: Jóhann Friðgeir, lgf  GSM: 896-3038 eða [email protected]

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

Pnr.HeimilisfangKaupverðStærðFermetraverðTegundFastan.Dags.Noth.
70.500.000 kr.227.20 310.299 kr./m²225406618.10.2017

123.000.000 kr.227.20 541.373 kr./m²225406624.06.2024

Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007

Sótt frá Þjóðskrá

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010101

Raðhús á 1. hæð
227

Fasteignamat 2025

111.150.000 kr.

Fasteignamat 2024

106.850.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband