13.10.2023 1171689
Jöfursbás 11
112 Reykjavík
24 myndir
35.900.000
743.271 kr. / m²
13.10.2023 - 7 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 20.10.2023
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
48.3m²
Fermetrar
Tegund
FjölbýliByggingarár
2021Fasteignamat
42.600.000Inngangur
SameiginlegurFastanúmer*
-Byggingarnúmer*
-Brunabótamat
28.900.000Verðmat Fastans
46.300.000 - 47.000.000
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna fallega og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á 5. og efstu hæð í góðu lyftuhúsi að Jöfursbás 11. Sérinngangur frá sameiginlegum svölum. Frábær kaup fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur í náttúruparadís við sjóinn. Glæsliegt útsýni.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Fyrirhugað fasteignamat 2024 er 46.400.000 kr.
Samkvæmt HMS er eignin skráð 48,3 fm.
Nánari lýsing:
Forstofa rúmgóð með góðum skáp og flísar á gólfi.
Stofa og eldhús í góðu alrými með parket á gólfi. Útgengt á góðar vestursvalir og er þar glæsilegt útsýni.
Eldhús með góðri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og viftu yfir helluborði. Frábært útsýni.
Svefnherbergi er rúmgott með góðum skápum og parket á gólfi.
Baðherbergi með dúk á gólfi, sturtuklefa, upphengt salerni, góða innréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Nánari upplýsingar gefur Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu [email protected]
Byggð Þorpsins-Vistfélags í Jöfursbási 11 í Gufunesi er brotin upp í þriggja til fimm hæða þyrpingu íbúðarhúsa sem hverfist um miðlægt torg og garða. Íbúðir eru samtals 137. Göngustígar í nágrenni eru tengdir inn og í gegnum í svæðið. Áhersla er á vandaða hönnun og góða rýmisnýtingu íbúðanna sem eru af fjórum gerðum; stúdíó, tveggja, þriggja og fjögurra herbergja. Þrír stiga- og lyftukjarnar eru í íbúðarhúsunum og eru þau tengd saman um svalaganga og brýr. Byggðin hefur létt yfirbragð og er fjölbreytt í lita- og efnisvali. Um er að ræða 5 íbúðarhús, 3ja hæða í suðurhluta og 4ra hæða í vestur- og miðhluta og 5 hæða í austurhluta lóðarinnar.Staðsetning húsa innan hverfisins er ákvörðuð eftir veðurfræðilegri ráðgjöf til að mynda skjól um sólríka garða og torg.
Húsin eru verksmiðjuframleidd úr steyptum einingum sem gerðar eru innanhúss við bestu aðstæður. Burðarkerfi húsanna er byggt upp með forsteyptum svokölluðum samlokueiningum í útveggjum. Undirstöður eru forsteyptar en botnplata er staðsteypt. Innveggir á milli íbúða og íbúða og gangs eru úr forsteyptum einingum. Einangrun útveggja er forsteypt í samlokuútveggjaeiningarnar. Gluggar og hurðir eru úr timbri, formálaðir og settir í eftirá. Svalir og svalagangar eru úr forsteyptum einingum sem sitja á stálsúlum.
Sameiginleg sameign allra áfanga eru byggðir í öðrum áfanga utan hjóla- og vagnagreymslu sem er byggð samhliða fjórða áfanga.
Íbúðirnar eru á sjávarlóð nyrst í Gufunesi. Frá lóðinni er glæsilegt útsýni yfir Geldinganes og Viðey. Í hverfinu og meðfram lóðinni verða göngu- og hjólastígar á borgarlandi meðfram ströndinni sem tengjast grónum íbúðasvæðum í Grafarvogi fyrir sunnan og ofan þessarar nýju byggðar. Megin stígar innan lóðar eru malbikaðir, við aðkomu og innganga eru stéttar hellulagðar. Lögð er áhersla á algilda hönnun þar sem aðgengi allra er tryggt. Gert er ráð fyrir trjágróðri við megin gönguleiðir og til rýmismyndunar við dvalarsvæði. Íbúðarhúsin mynda garðrými fyrir skjólgott torg, leikvöll og grasfleti. Torgið er við aðalinngang hverfisins við sameiginleg rými íbúa. Leik- og dvalaraðstaða er norðan megin gegnt ströndinni. Tekið er tillit til sólarátta og byggð skipulögð þannig að garðrýmin eru í góðu skjóli fyrir veðri og vindum.Lögð er áhersla á sameiginlegan frágang allra garðrýma.
Við íbúðarbyggðina eru matjurtagarðar í landi Reykjavíkurborgar til afnota fyrir íbúa til ræktunar. Þar er heimilt að gera vermireiti og gróðurskýli.
Deiliskipulag fyrir Gufunes, nýjasta hverfi Reykjavíkur, byggir á verðlaunatillögu hollensku arkitektastofunnar jvantspijker + Felixx sem árið 2016 hreppti fyrstu verðlaun í hugmyndasamkeppni um Gufunessvæðið. Í vinningstillögunni segir að Gufunes eigi að verða eins konar ventill fyrir ungt fólk sem kýs grósku og borgarbrag í stað úthverfa. Tillagan nýtir óhefluð umhverfisgæði og staðaranda sem grunn að samfélagi þar sem tækifæri, hagkvæmni og upplifun verða í forgrunni.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Verðmat
46.300.000 - 47.000.000Fjöldi samninga
38Áætl. fermetraverð
972.625 kr./m²Staðalfrávik
6.77%
Ath. að Verðmat Fastans er enn í þróun og byggir í dag á mjög grunnum upplýsingum.
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
Pnr. | Heimilisfang | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Tegund | Fastan. | Dags. | Noth. |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
27.092.000 kr. | 48.30 m² | 560.911 kr./m² | Fjölbýli | 2509785 | 16.04.2021 | ✅ | ||
27.092.000 kr. | 48.30 m² | 560.911 kr./m² | Fjölbýli | 2509784 | 16.04.2021 | ✅ | ||
27.092.000 kr. | 48.30 m² | 560.911 kr./m² | Fjölbýli | 2509820 | 16.04.2021 | ✅ | ||
27.092.000 kr. | 48.30 m² | 560.911 kr./m² | Fjölbýli | 2509812 | 05.05.2021 | ✅ | ||
23.075.000 kr. | 48.30 m² | 477.743 kr./m² | Fjölbýli | 2509794 | 08.04.2021 | ✅ | ||
23.075.000 kr. | 48.30 m² | 477.743 kr./m² | Fjölbýli | 2509669 | 08.04.2021 | ✅ | ||
27.092.000 kr. | 48.30 m² | 560.911 kr./m² | Fjölbýli | 2509811 | 16.04.2021 | ✅ | ||
27.092.000 kr. | 48.30 m² | 560.911 kr./m² | Fjölbýli | 2509793 | 12.05.2021 | ✅ | ||
27.092.000 kr. | 48.30 m² | 560.911 kr./m² | Fjölbýli | 2509802 | 16.04.2021 | ✅ | ||
28.118.000 kr. | 48.30 m² | 582.153 kr./m² | Fjölbýli | 2509803 | 05.05.2021 | ✅ |
Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007
Sótt frá Þjóðskrá
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Verðsaga
Byggt á þinglýstum kaupsamningum
Byggir á kaupsamningum sem deila heimilsfangi og stærð
Sótt frá Þjóðskrá
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Auglýsingasaga
Endurskráningar sömu eignar á mismunandi verð- og tímabilum
Fjöldi skráninga | Ásett verð | Fermetraverð | Tímabil. |
---|---|---|---|
5 skráningar | 42.271.193 kr. | 875.180 kr./m² | 10.05.2024 - 17.05.2024 |
Eignin hefur verið auglýst / endurskráð 5 sinnum síðan 2014.
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 1171689
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 35.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 28.900.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 42.600.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 743.271
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 48.3
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 13.10.2023
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 20.10.2023
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur : 13.10.2023
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 112
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Jöfursbás 11C
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 2021
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 2
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 1
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 0
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 1
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Jöfursbás
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 11
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
Ekki tókst að sækja eignir.
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina
- ✅
Umsókn / FyrirspurnSamþykkt
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um leyfi til að breyta matshlutanúmerum í erindi BN057456 þannig að mhl. 01 verður mhl. 01 og 02, mhl. 02 verður mhl. 03 og mhl. 03 verður mhl. 04 á lóð nr. 11 við Jöfursbás.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi. 11
- ✅
Íbúðarhús - mhl.01, mh.02, mhl.03, mhl.04Samþykkt
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um leyfi til að byggja fimm steinsteypt íbúðarhús í þremur matshlutum, í mhl.01 eru 45 íbúðir, í mhl.02 eru 41 íbúð og sameiginleg aðstaða og í mhl.03 eru 51 íbúð, hjóla- og vagnageymsla er mhl.04 á lóð nr. 11 við Jöfursbás. Erindi fylgir greinagerð Eflu um brunahönnun dags. 17. mars 2020 og teikning B1000, útfærsla á algildri hönnun eftir íbúðum, dags. 17. mars 2020. Einnig fylgir bréf frá Þorpinu-vistfélag ehf dags. 20. apríl 2020 og bréf SBB með afriti af lóðaleigusamningi og kvaðayfirlýsingu dags. 21. apríl 2020. Stærðir: Mhl.01: A-rými 2.717,6 ferm., B-rými 623,5 ferm, 7.671,0 rúmm. Mhl.02: A-rými 2.367,6 ferm., B-rými 569,0 ferm, 6.593,7 rúmm. Mhl.03: A-rými 3.037,3 ferm., B-rými 544,2 ferm, 8.659,1 rúmm. Mhl.04: A-rými 86,6 ferm., B-rými 0,0 ferm, 253,3 rúmm. Samtals stærðir á lóð: A-rými 8.209,1 ferm., B-rými 1.736,7 ferm, 23.177,1 rúmm.
Íbúðarhús - mhl.01, mh.02, mhl.03, mhl.04Frestað
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um leyfi til að byggja fimm steinsteypt íbúðarhús í þremur matshlutum, í mhl.01 eru 45 íbúðir, í mhl.02 eru 41 íbúð og sameiginleg aðstaða og í mhl.03 eru 51 íbúð, hjóla- og vagnageymsla er mhl.04 á lóð nr. 11 við Jöfursbás. Erindi fylgir greinagerð Eflu um brunahönnun dags. 17. mars 2020 og teikning B1000, útfærsla á algildri hönnun eftir íbúðum, dags. 17. mars 2020. Stærðir: Mhl.01: A-rými 2.717,6 ferm., B-rými 623,5 ferm, 7.671,0 rúmm. Mhl.02: A-rými 2.367,6 ferm., B-rými 569,0 ferm, 6.593,7 rúmm. Mhl.03: A-rými 3.037,3 ferm., B-rými 544,2 ferm, 8.659,1 rúmm. Mhl.04: A-rými 86,6 ferm., B-rými 0,0 ferm, 253,3 rúmm. Samtals stærðir á lóð: A-rými 8.209,1 ferm., B-rými 1.736,7 ferm, 23.177,1 rúmm.
Íbúðarhús - mhl.01, mh.02, mhl.03, mhl.04Frestað
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um leyfi til að byggja fimm steinsteypt íbúðarhús í þremur matshlutum, í mhl.01 eru 45 íbúðir, í mhl.02 eru 41 íbúð og sameiginleg aðstaða og í mhl.03 eru 51 íbúð á lóð nr. 11 við Jöfursbás. Erindi fylgir greinagerð Eflu um brunahönnun dags. 17. mars 2020. Stærðir: Mhl.01: A-rými 2.717,6 ferm., B-rými 623,5 ferm, 7.669,2 rúmm. Mhl.02: A-rými 2.367,6 ferm., B-rými 569,0 ferm, 6.593,7 rúmm. Mhl.03: A-rými 3.037,3 ferm., B-rými 544,2 ferm, 8.655,5 rúmm. Mhl.04: A-rými 86,6 ferm., B-rými 0,0 ferm, 253,3 rúmm. Samtals stærðir á lóð: A-rými 8.209,1 ferm., B-rými 1.736,7 ferm, xxxxxx rúmm.
Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).