06.10.2023 1169435

Söluskrá FastansRökkvatjörn 6

113 Reykjavík

hero

33 myndir

82.900.000

752.269 kr. / m²

06.10.2023 - 7 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 13.10.2023

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

110.2

Fermetrar

Fasteignasala

Fasteignaland

[email protected]
6923344
Há lofthæð
Svalir
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Hrönn Ingólfsdóttir lgfs. s.692-3344, [email protected] og Fasteignaland kynna í einkasölu:  

Einstaklega bjarta of vel skipulagða og afar sjarmerandi fimm herbergja íbúð á tveimur hæðum með sérinngangi og mjög fallegu útsýni við Rökkvatjörn 6 í Úlfarsárdal. Eignin er skráð alls 110,2 fm að stærð. Eignin skiptist þannig: Forstofa, tvö baðherbergi, eldhús, stofa og borðstofa, fjögur góð svefnherbergi og geymsla innan íbúðar. Tvennar suður svalir, aðrar úr stofu og hinar út frá svefnherbergi. Mikil lofthæð á efri hæð íbúðarinnar. Þetta er frábærlega vel staðsett eign við rætur Úlfarsfells og vart hægt að komast nær náttúrunni. 
Þetta er eign sem vert er að skoða á frábærum stað í Úlfarsárdal með sérinngang, stutt er í verslun, skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hrönn Ingólfsdóttir lgfs í síma: 692-3344 og [email protected].


Nánari lýsing eignar.
Neðri hæð:

Forstofa: komið er inn um sérinngang í afar rúmgóð forstofa með góðum skápum.
Herbergi: Þrjú rúmgóð herbergi eru á neðri hæðinni. Útgengi er úr einu herbergjanna út á suður svalir.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með sturtu. Góð innrétting og handklæðaofn. Flísalagt í hólf og gólf. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingunni.
Geymsla: Góð lokuð geymsla er undir stiganum sem liggur uppá aðra hæð.
Efri hæð:
Gengið er uppá aðra hæðina um fallegan teppalagðan stiga með stórum glugga sem gefur íbúðinni einstakan sjarma og mikla birtu.
Eldhús: Allar innréttingar eru frá VOKE 3 og eru skúffur og skápar með ljúflokun, hitaþolin borðplata. Skápar í mjúkum gráum tón. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja. 
Stofa + borðstofa: Stofan er einstaklega björt og flýtur fallega saman með eldhúsi. Útgengi út á suður svalir.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjóna herbergi með góðum skápum..
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með sturtu. Falleg innrétting og handklæðaofn. Flísalagt í hólf og gólf.
Húsið er sérlega vel skipulagt og með lítilli sameign að undanskilinni hjóla- og vagnageymslu sem er frístandandi á lóð. Fjöldi bílastæði eru á lóðinni. Húsið er klætt með rafbrynjaðri báru á móti viðahaldslítilli bambus viðarklæðningu. Burðarvirki hússins er CLT burðarkerfi sem er krosslímt gegnheilt timbur og er sagður heilsueflandi og umhverfisbætandi byggingarmáti.

Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér og í s.692-3344.

Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hrönn Ingólfsdóttir lgfs í síma: 692-3344 og [email protected]
 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010101

Íbúð á 1. hæð
51

Fasteignamat 2025

47.200.000 kr.

Fasteignamat 2024

44.900.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband