02.10.2023 1167823

Söluskrá FastansAkraland 22

800 Selfoss

hero

26 myndir

80.900.000

652.946 kr. / m²

02.10.2023 - 39 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 10.11.2023

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

123.9

Fermetrar

Fasteignasala

Husfasteign Fasteignasala

[email protected]
8931984
Bílskúr
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Jens Magnús Jakobsson löggiltur fasteignasali s: 8931984 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu Akraland 22, Selfossi. Þriggja herbergja endaraðhús í vinsælu hverfi á Selfossi. Eignin er virkilega skemmtilega hönnuð og að fullu frágengin. Útisvæði eignarinnar er frábært, búið er að steypa stétt fyrir framan og pall fyrir aftan, einnig er búið að gera girðingu allan hringinn í kringum stóran garð. Búið er að þökuleggja garðinn og útbúa útieldhús á pallinum.

Að innan er húsið fallegt með 2 svefnherbergjum, fataskápur er í hjónaherbergi. Forstofa er með flísum á gólfi og skáp. Baðherbergi er flísalagt í hólf og golf með salerni, sturtu og fallegri innréttingu. Þvottahús er með innréttingu og innangengt er þaðan í bílskúr. Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu rými. Eldhúsið er opið með fallegri innréttingu þar sem búið er að koma fyrir lýsingu undir. Útgengi er úr stofu út á pall. Allir veggir eru gifs klæddir og dúkur er í loftum. Öll ljós er innfelld. Parket er á öllum gólfum nema votrýmum, þar eru flísar. Bílskúrinn er með bílskúrshurð með opnara, epoxy á gólfi og búið er að koma fyrir innréttingu í bílskúrnum. Herbergi/geymsla er inn af bílskúr með parketi á gólfi og útgengi út á pall. Húsið er skráð skv. fasteignaskrá 123.9 fm og þar ef bílskúr 29,5 fm

Snjallkerfi er í húsinu.

Útisvæði eignarinnar er mjög fallegt, þar sem búið er að steypa allt bílaplanið og koma fyrir hita í það. Girðingin í kringum húsið er gerð úr timbri og klædd með bárujárni. Pallurinn á bak við húsið er steyptur og með útieldhúsi.

Heilt á litið mjög falleg eign sem vert er að skoða. Fallegur frágangur er á eigninni.

Nánari upplýsingar er hjá Jens Magnúsi lgf. í síma 893-1984 eða [email protected].


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, 0,4 % fyrir fyrstu kaupendur.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS Fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

Pnr.HeimilisfangKaupverðStærðFermetraverðTegundFastan.Dags.Noth.
23.500.000 kr.123.90 189.669 kr./m²236833215.01.2018

25.750.000 kr.123.90 207.829 kr./m²236833213.03.2018

79.800.000 kr.123.90 644.068 kr./m²236833218.06.2024

Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007

Sótt frá Þjóðskrá

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

060101

Raðhús á 1. hæð
123

Fasteignamat 2025

71.850.000 kr.

Fasteignamat 2024

71.100.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.


    Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).

    PóstlistiÁbendingarHafa samband