31.08.2023 1157984
Urriðaholtsstræti 40
210 Garðabær
22 myndir
72.900.000
878.313 kr. / m²
31.08.2023 - 8 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 08.09.2023
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
83m²
Fermetrar
Tegund
FjölbýliByggingarár
2022Fasteignamat
58.450.000Inngangur
SameiginlegurFastanúmer*
2514403Byggingarnúmer*
1143289Brunabótamat
68.300.000Verðmat Fastans
Væntanlegt
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Íbúð 0202: Vel skipulögð, flott og vönduð þriggja herbergja 78,3 fm. íbúð á á 2. hæð frá aðalinngangi í nýju 10 íbúða lyftufjölbýli við Urriðaholtsstræti 40, 210 Garðabæ.
Í íbúðinni er eitt rúmgott svefnherbergi. Íbúðin er þó með möguleika á að hafa tvö svefnherbergi - Það fylgir með hurð og karmur í geymslu íbúðar ef kaupandi kýs að nota rýmið sem er inn af stofu sem svefnherbergi í stað þess að hafa það opið rými inn í eldhús og stofu.
Steinn á borði, gólfhiti, innfelld blöndunartæki í sturtu, góð lofthæð og sérsmíðaðar innréttingar ásamt sér 6,6 fm. timburverönd sem snýr vel á móti sól í suður.
Sér stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni merkt B01 ásamt 4,7 fm. sér geymslu í sameign merkt 0103. Samtals heildarstærð á íbúð og geymslu er 83,0 fm.
Allar íbúðir í húsinu eru komnar með gólfefni. Á votrýmum eru flísar á gólfum og veggir flísalagðir að hluta þar sem á við. Parket og flísar koma frá Ebson ehf.
Smelltu á link til að skoða íbúð í 3D
Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661 6056 eða með tölvupósti á netfangið [email protected]
Nánari lýsing
Forstofa og gangur er með parket á gólfi og fataskáp sem nær upp í loft.
Stofa og borðstofa er í opnu alrými með eldhúsi. Parket á gólfi. Innfelld lýsing þar sem á við. Út frá stofu er svalarhurð út á timburverönd sem snýr vel á móti sól í suður.
Eldhúsinnrétting er bæði með eyju og innréttingu á einum vegg, bæði efri og neðri skápar við vegg með lýsingu þar á milli. Innréttingar ná upp í loft. Gert er ráð fyrir innbyggðum ísskáp og frysti sem og uppþvottavél ( frontur fylgir með til að setja framan á uppþvottavél ) Bökunar-ofn og combi-ofn í vinnuhæð. Borðplata er ljós kvartssteins plata frá Granítsmiðjunni. Undirlímdur vaskur og spanhelluborð. Eyjan er með kvartssteins plötu sem nær niður á gólf á sitthvorri hliðinni, skúffur þar á milli. Gert er ráð fyrir að hægt sé að sitja við eyjuna.
Inn af stofu er rými/ herbergi með fataskáp og opnanlegum glugga. Íbúðin skilast með hurð og karm í geymslu íbúðar, kaupendur hafa því val um hvort þau nýti rýmið sem herbergi með engri hurð eða hvort þau setji upp hurð og karm síðar á sinn kostnað. Þá er hurðin og karmurinn til.
Baðherbergi er með flísalagt gólf ásamt flísalögðum veggi að hluta. Upphengt salerni og handklæðaofn. Sturta er með innfelldum blöndunartækjum og sturtugleri. Baðinnrétting er með skúffum og handlaug og speglaskáp þar fyrir ofan með borð lýsingu. Innfelld lýsing þar sem á við. Innrétting þar með aðstöðu og tengingu fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi er rúmgott með parket á gólfi og fataskápum sem ná upp í loft.
Sér 4,7 fm. geymsla í sameign, fylgir með íbúðinni.
Sér stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni merkt B01.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Gólfhiti er á allri íbúðinni.
Innréttingar eru sérsmíðaðar frá VOKE3 frá Litháen. Léttir veggir eru gipsveggir. Borðplötur í eldhúsi eru ljósar kvartssteinsplötur frá Granítsmiðjunni. Eldhústæki eru af gerðinni AEG frá Ormsson. Helluborð er AEG Spanhelluborð. Bakaraofn er AEG, sjálfhreinsandi með kjötmæli. Combi ofn er AEG. Allt rafmagn full frágengið með innfelldum ljósum þar sem á við og skyldukúplum.
Húsið er fjölbýlishús upp á fjórar hæðir byggt samkvæmt arkítektarteikningum Davíðs Kristjáns Pitt. Húsið er staðsteypt á hefðbundinn hátt úr járnbendri steypu. Húsið er einangrað að utan og klætt með ál, flísum og timburklæðningu. Þak er svokallað viðsnúið þak, ábræddur tjörupappi, með vatnsþolinni einangrun. Þakkantur frágengin samkvæmt teikningu hönnuðar. Gluggar eru danskir álklæddir trégluggar frá Rationel. Gólfhiti er samkvæmt teikningu hönnuðar. Gólfhitalagnir eru ísteyptar á neðstu hæð hússins, á efri hæðum eru lagnir á einangrun og andrít flotað yfir gólfið. Lóð er sléttuð og tyrfð. Stígar hellulagðir með snjóbræðslu að hluta. Bílastæði á lóð eru fulllfrágengin.
Lóðarfrágangur var í höndum Lólalausna ehf.
Byggingaraðili er Vesturvík ehf.
Byggingarmeistari er Pétur Þórarinsson, Haghús ehf.
Byggingarstjóri er Anton Kjartansson, Verkþing ehf.
Umhverfið: Betri staðsetning á höfuðborgarsvæðinu fyrir náttúruunnendur og útivistarfólk er vandfundin. Urriðaholt liggur við friðlandið í Heiðmörk sem er stærsta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins og er tengt beint við það með göngu- og hjólastígum. Glæsilegir golfvellir, vötn og hæðir umlykja svæðið. Góðar samgönguæðar tengja svo hverfið við alla staði borgarinnar. Í göngufæri er svo Urriðaholtsskóli sem starfar á tveimur skólastigum, bæði á leik- og grunnskólastigi.
Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald, þegar það verður lagt á. Skipulagsgjald er 0,3% af brunabótamati íbúðar.
Nánari upplýsingar veita: Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma 661-6056 / [email protected] og Gunnar Sverrir löggiltur fasteignasali í síma 862-2001 / [email protected]
Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar má finna á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Við erum að vinna að uppfærslu á Verðmati Fastans. Það kemur aftur von bráðar.
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 1157984
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 72.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 68.300.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 58.450.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 878.313
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 83
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 31.08.2023
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 08.09.2023
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur : 31.08.2023
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 210
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Urriðaholtsstræti 40
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 2022
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 3
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 2
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 0
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 1
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Urriðaholtsstræti
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 40
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina