27.08.2023 1156415

Söluskrá FastansUrriðaholtsstræti 40

210 Garðabær

hero

22 myndir

72.900.000

878.313 kr. / m²

27.08.2023 - 5 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 01.09.2023

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

83

Fermetrar

Fasteignasala

RE/MAX

[email protected]
661 6056
Lyfta
Gólfhiti
Verönd
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu: 

Íbúð 0202: Vel skipulögð, flott og vönduð þriggja herbergja 78,3 fm. íbúð á  á 2. hæð frá aðalinngangi í nýju 10 íbúða lyftufjölbýli við Urriðaholtsstræti 40, 210 Garðabæ.

Í íbúðinni er eitt rúmgott svefnherbergi. Íbúðin er þó með möguleika á að hafa tvö svefnherbergi - Það fylgir með hurð og karmur í geymslu íbúðar ef kaupandi kýs að nota rýmið sem er inn af stofu sem svefnherbergi í stað þess að hafa það opið rými inn í eldhús og stofu.

Steinn á borði, gólfhiti, innfelld blöndunartæki í sturtu, góð lofthæð og sérsmíðaðar innréttingar ásamt sér 6,6 fm. timburverönd sem snýr vel á móti sól í suður.

Sér stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni merkt B01 ásamt 4,7 fm. sér geymslu í sameign merkt 0103. Samtals heildarstærð á íbúð og geymslu er 83,0 fm.

Allar íbúðir í húsinu eru komnar með gólfefni. Á votrýmum eru flísar á gólfum og veggir flísalagðir að hluta þar sem á við. Parket og flísar koma frá Ebson ehf.

Smelltu á link til að skoða íbúð í 3D

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661 6056 eða með tölvupósti á netfangið [email protected]

Nánari lýsing
Forstofa og gangur er með parket á gólfi og fataskáp sem nær upp í loft.
Stofa og borðstofa er í opnu alrými með eldhúsi. Parket á gólfi. Innfelld lýsing þar sem á við. Út frá stofu er svalarhurð út á timburverönd sem snýr vel á móti sól í suður. 
Eldhúsinnrétting er bæði með eyju og innréttingu á einum vegg, bæði efri og neðri skápar við vegg með lýsingu þar á milli. Innréttingar ná upp í loft. Gert er ráð fyrir innbyggðum ísskáp og frysti sem og uppþvottavél ( frontur fylgir með til að setja framan á uppþvottavél ) Bökunar-ofn og combi-ofn í vinnuhæð. Borðplata er ljós kvartssteins plata frá Granítsmiðjunni. Undirlímdur vaskur og spanhelluborð. Eyjan er með kvartssteins plötu sem nær niður á gólf á sitthvorri hliðinni, skúffur þar á milli. Gert er ráð fyrir að hægt sé að sitja við eyjuna.
Inn af stofu er rými/ herbergi með fataskáp og opnanlegum glugga. Íbúðin skilast með hurð og karm í geymslu íbúðar, kaupendur hafa því val um hvort þau nýti rýmið sem herbergi með engri hurð eða hvort þau setji upp hurð og karm síðar á sinn kostnað. Þá er hurðin og karmurinn til.
Baðherbergi er með flísalagt gólf ásamt flísalögðum veggi að hluta. Upphengt salerni og handklæðaofn. Sturta er með innfelldum blöndunartækjum og sturtugleri. Baðinnrétting er með skúffum og handlaug og speglaskáp þar fyrir ofan með borð lýsingu. Innfelld lýsing þar sem á við. Innrétting þar með aðstöðu og tengingu fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi er rúmgott með parket á gólfi og fataskápum sem ná upp í loft. 
Sér 4,7 fm. geymsla í sameign, fylgir með íbúðinni.
Sér stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni merkt B01.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Gólfhiti er á allri íbúðinni.

Innréttingar eru sérsmíðaðar frá VOKE3 frá Litháen. Léttir veggir eru gipsveggir. Borðplötur í eldhúsi eru ljósar kvartssteinsplötur frá Granítsmiðjunni. Eldhústæki eru af gerðinni AEG frá Ormsson. Helluborð er AEG Spanhelluborð. Bakaraofn er AEG, sjálfhreinsandi með kjötmæli. Combi ofn er AEG. Allt rafmagn full frágengið með innfelldum ljósum þar sem á við og skyldukúplum.

Húsið er fjölbýlishús upp á fjórar hæðir byggt samkvæmt arkítektarteikningum Davíðs Kristjáns Pitt. Húsið er staðsteypt á hefðbundinn hátt úr járnbendri steypu. Húsið er einangrað að utan og klætt með ál, flísum og timburklæðningu. Þak er svokallað viðsnúið þak, ábræddur tjörupappi,  með vatnsþolinni einangrun. Þakkantur frágengin samkvæmt teikningu hönnuðar. Gluggar eru danskir álklæddir trégluggar frá Rationel. Gólfhiti er samkvæmt teikningu hönnuðar. Gólfhitalagnir eru ísteyptar á neðstu hæð hússins, á efri hæðum eru lagnir á einangrun og andrít flotað yfir gólfið. Lóð er sléttuð og tyrfð. Stígar hellulagðir með snjóbræðslu að hluta. Bílastæði á lóð eru fulllfrágengin.

Lóðarfrágangur var í höndum Lólalausna ehf.
Byggingaraðili er Vesturvík ehf.
Byggingarmeistari er Pétur Þórarinsson, Haghús ehf.
Byggingarstjóri er Anton Kjartansson, Verkþing ehf.

Umhverfið: Betri staðsetning á höfuðborgarsvæðinu fyrir náttúruunnendur og útivistarfólk er vandfundin. Urriðaholt liggur við friðlandið í Heiðmörk sem er stærsta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins og er tengt beint við það með göngu- og hjólastígum. Glæsilegir golfvellir, vötn og hæðir umlykja svæðið. Góðar samgönguæðar tengja svo hverfið við alla staði borgarinnar. Í göngufæri er svo Urriðaholtsskóli sem starfar á tveimur skólastigum, bæði á leik- og grunnskólastigi.

Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald, þegar það verður lagt á. Skipulagsgjald er 0,3% af brunabótamati íbúðar.

Nánari upplýsingar veita: Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma 661-6056 / [email protected] og Gunnar Sverrir löggiltur fasteignasali í síma 862-2001 / [email protected]

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.  Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3.  Lántökugjald lánastofnunar -  Nánari upplýsingar má finna á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Við erum að vinna að uppfærslu á Verðmati Fastans. Það kemur aftur von bráðar.

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010101

Íbúð á 1. hæð
108

Fasteignamat 2025

91.000.000 kr.

Fasteignamat 2024

85.050.000 kr.

010202

Íbúð á 2. hæð
83

Fasteignamat 2025

73.100.000 kr.

Fasteignamat 2024

68.350.000 kr.

010201

Íbúð á 2. hæð
128

Fasteignamat 2025

96.350.000 kr.

Fasteignamat 2024

89.900.000 kr.

010203

Íbúð á 2. hæð
128

Fasteignamat 2025

96.350.000 kr.

Fasteignamat 2024

89.900.000 kr.

010301

Íbúð á 3. hæð
127

Fasteignamat 2025

97.600.000 kr.

Fasteignamat 2024

91.050.000 kr.

010302

Íbúð á 3. hæð
99

Fasteignamat 2025

80.600.000 kr.

Fasteignamat 2024

75.150.000 kr.

010303

Íbúð á 3. hæð
128

Fasteignamat 2025

97.850.000 kr.

Fasteignamat 2024

91.300.000 kr.

010401

Íbúð á 4. hæð
128

Fasteignamat 2025

100.500.000 kr.

Fasteignamat 2024

93.750.000 kr.

010402

Íbúð á 4. hæð
100

Fasteignamat 2025

83.300.000 kr.

Fasteignamat 2024

77.650.000 kr.

010403

Íbúð á 4. hæð
128

Fasteignamat 2025

100.750.000 kr.

Fasteignamat 2024

93.950.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband