29.07.2023 1149586

Söluskrá FastansJöfursbás 11

112 Reykjavík

hero

28 myndir

43.799.191

790.599 kr. / m²

29.07.2023 - 13 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 11.08.2023

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

55.4

Fermetrar

Fasteignasala

Domusnova

[email protected]
861 8466
Lyfta
Svalir
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Oscar Clausen lgf. og Domusnova kynna nýtt á sölu.
ÞRIGGJA HERBERGJA ÍBÚÐ Á 4. (EFSTU) HÆÐ MEÐ SVÖLUM OG MJÖG FALLEGU ÚTSÝNI.
ÍBÚÐIN ER Í HÚSI MERKTU E, Á 4.HÆÐ.  
HÆGT ER AÐ TAKA LYFTU UPP EÐA GANGA UPP STIGA UTAN Á HÚSI FRÁ PORTI ÞAR SEM LEIKSVÆÐI BARNA ER.
ÍBÚÐIN ER EINSTAKLEGA BJÖRT OG FALLEG.

Um er að ræða íbúð byggða af Þorpinu Vistfélagi á sjávarlóð í Gufunesi í Reykjavík. 
Lyftur eru í tengibyggingum þaðan sem gengið er svalagang að sér inngangi íbúðar.
Svalir til suðurs en einnig svala gangur framan við innang til norðurs.
Einstakt útsýni til sjávar.
Lýsing eignar:

Forstofa með flísum á gólfi og fatahengi.
Stofa/borðstofa með harðparketi á gólfi.  Útgengi á svalir til vesturs.
Eldhús með góðu skápaplássi. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi I er með góðum fataskápum.  Rennihurðir aðskilja svefnherbergi frá alrými (stofu/borðstofu/eldhúsi).
Svefnherbergi II er með harðparketi og glugga sem snýr til austur með einstöku útsýni yfir hafið.
Baðherbergi með upphengdu salerni og sturtu, vaskaskáp og speglaskáp yfir vaski.  Tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Dúkur á gólfi.
Í sameign er vinnuaðstaða/veislusalur, pósthús og þvottahús. 

Nánari upplýsingar veita:
Oscar Clausen löggiltur fasteignasali / s.861 8466 / [email protected]

Nánar um Þorpið:
Íbúðir Þorpsins vistfélags eru á sjávarlóð í nýju hverfi í Gufunesi. Frá lóðinni er glæsileg sjávarsýn og útsýni yfir Geldinganes og Viðey.  Í hverfinu og meðfram lóðinni verða göngu- og hjólastígar meðfram ströndinni sem tengjast grónum íbúðasvæðum í Grafarvogi.
 
Verkefnið er afurð úr samkeppni Reykjavíkurborgar um hagkvæmar íbúðir fyrir ungt fólk og  fyrstu kaupendur sem ganga fyrir öðrum kaupendum.  
 
Íbúðirnar eru af fjórum stærðum og mikil áhersla lögð á góða hönnun þannig að hver fermetri nýtist. Sérstakir geymsluskápar eru í hverri íbúð. Íbúðirnar eru staðlaðar, allar eins í grunninn, úr steyptum einingum frá Steypustöðinni. Byggðin hefur létt yfirbragð og er með fjölbreyttu lita- og efnisvali. Um er að ræða 5 íbúðarhús; 3ja hæða í suðurhluta og 4ra hæða í vestur- og miðhluta og 5 hæða í austurhluta lóðarinnar þar sem fyrsta byggingin er nú að rísa. Staðsetning húsa innan hverfisins er ákvörðuð eftir veðurfræðilegri ráðgjöf til að mynda skjól um sólríka garða og torg. Hverri íbúð fylgir góð sameign (vinnuaðstaða/veislusalur, pósthús og þvottahús)   Verkið er unnið af einu traustasta verktakafyrirtæki landsins, Eykt hf., og eru hannaðar af Yrki.
 
Við innganginn er sólríkt miðlægt torg fyrir framan sameigileg rými þar sem er veislusalur/kaffihús/vinnurými, sameiginlegt þvottahús og pósthús/búr fyrir aðsendan póst og vörur. Við torgið er leiksvæði fyrir yngri börn, einnig hjóla- og vagnageymsla.  
                       
Deiliskipulag fyrir Gufunes, nýjasta hverfi Reykjavíkur, byggir á verðlaunatillögu hollensku arkitektastofunnar jvantspijker + Felixx sem árið 2016 hreppti fyrstu verðlaun í hugmyndasamkeppni um Gufunessvæðið. Í vinningstillögunni segir að Gufunes eigi að verða eins konar ventill fyrir ungt fólk sem kýs grósku og borgarbrag í stað úthverfa. Tillagan nýtir óhefluð umhverfisgæði og staðaranda sem grunn að samfélagi þar sem tækifæri, hagkvæmni og upplifun verða í forgrunni. Leiðarljós og markmið uppbyggingar nýs hverfis í Gufunesi eru:

·         Þjóna starfsemi sem hentar illa innan borgarmarkanna eða í  miðbæ Reykjavíkur .
·         Losa um pressu sem m.a. ferðamannaiðnaðurinn setur á miðborgina og önnur nærliggjandi svæði.
·         Skapa jákvæðar forsendur fyrir skapandi iðnað, frumkvöðlastarfsemi, menningu og atburði á sviðum tónlistar, kvikmynda, lista, hönnunar og tísku, ásamt sprotafyrirtækjum            og öðrum smágerðum og hreinlegum atvinnurekstri.
·         Þjóna ævintýralegum frumbyggjum og ungum fjölskyldum sem kunna að meta óhefluð séreinkenni svæðisisins og kjósa að búa í suðupotti borgarbragsins.

Í Gufunesi verður blönduð byggð fyrir íbúðir, smærri atvinnurekstur, skapandi iðnað, menningu, menntun, sýningar- og atburði, ferðamannaiðnað og sjálfbærar samgöngur. Gufunesið verður þannig einstakt hverfi í borginni þar sem iðnaðarmannvirki, manngert landslag, afþreying- og útivist og stórfengleg fjallasýn við sjávarsíðu mynda órjúfanlega heild.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

Pnr.HeimilisfangKaupverðStærðFermetraverðTegundFastan.Dags.Noth.
31.642.000 kr.55.40 571.155 kr./m²250978916.04.2021

31.642.000 kr.55.40 571.155 kr./m²250980116.04.2021

31.642.000 kr.55.40 571.155 kr./m²250980005.05.2021

31.642.000 kr.55.40 571.155 kr./m²250980816.04.2021

31.642.000 kr.55.40 571.155 kr./m²250981616.04.2021

31.642.000 kr.55.40 571.155 kr./m²250978016.04.2021

31.642.000 kr.55.40 571.155 kr./m²250978116.04.2021

31.642.000 kr.55.40 571.155 kr./m²250979016.04.2021

31.642.000 kr.55.40 571.155 kr./m²250978316.04.2021

31.642.000 kr.55.40 571.155 kr./m²250981016.04.2021

31.642.000 kr.55.40 571.155 kr./m²250979916.04.2021

31.642.000 kr.55.40 571.155 kr./m²250979116.04.2021

31.642.000 kr.55.40 571.155 kr./m²250981706.05.2021

31.642.000 kr.55.70 568.079 kr./m²250977930.04.2021

31.642.000 kr.55.40 571.155 kr./m²250981816.04.2021

31.642.000 kr.55.40 571.155 kr./m²250979805.05.2021

31.642.000 kr.55.40 571.155 kr./m²250980905.05.2021

31.642.000 kr.55.40 571.155 kr./m²250978206.05.2021

31.642.000 kr.55.40 571.155 kr./m²250979205.05.2021

31.642.000 kr.55.40 571.155 kr./m²250981916.04.2021

31.898.000 kr.55.40 575.776 kr./m²250980719.05.2021

Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007

Sótt frá Þjóðskrá

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

Ekki tókst að sækja eignir.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband