28.07.2023 1149284
Jöfursbás 11
112 Reykjavík
26 myndir
44.192.765
797.703 kr. / m²
28.07.2023 - 188 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 01.02.2024
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
55.4m²
Fermetrar
Tegund
FjölbýliByggingarár
2021Fasteignamat
44.600.000Inngangur
-Fastanúmer*
-Byggingarnúmer*
-Brunabótamat
32.350.000Verðmat Fastans
Reiknar verðmat...
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Eignin samanstendur af forstofu, 2 svefnherbergjum, eldhúsi/stofu, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél. Úgengi er úr stofu á svalir.
Nánari lýsing:
Forstofa: Er með flísum á gólfi ásamt fataskáp.
Eldhús: Er í opnu rými, góð innrétting sem nær upp í loft, span helluborð.
Stofa/borðstofa: Er í björtu og opnu rými með góðum gluggum með útgengi á svalir til suð/vesturs.
Svefnherbergi: Er vel skipulegt með fjórföldum fataskáp, rennihurðir sem loka herberginu fara inn í vegg. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Er með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Er með upphengu salerni, vaski í lítilli innréttingu og ásamt sturtuklefa. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. Dúkur á gólfi.
Byggð Þorpsins-Vistfélags í Jöfursbási 11 í Gufunesi er brotin upp í þriggja til fimm hæða þyrpingu íbúðarhúsa sem hverfist um miðlægt torg og garða. Íbúðir eru samtals 137. Göngustígar í nágrenni eru tengdir inn og í gegnum í svæðið. Áhersla er á vandaða hönnun og góða rýmisnýtingu íbúðanna sem eru af fjórum gerðum; stúdíó, tveggja, þriggja og fjögurra herbergja. Þrír stiga- og lyftukjarnar eru í íbúðarhúsunum og eru þau tengd saman um svalaganga og brýr. Byggðin hefur létt yfirbragð og er fjölbreytt í lita- og efnisvali. Um er að ræða 5 íbúðarhús, 3ja hæða í suðurhluta og 4ra hæða í vestur- og miðhluta og 5 hæða í austurhluta lóðarinnar.Staðsetning húsa innan hverfisins er ákvörðuð eftir veðurfræðilegri ráðgjöf til að mynda skjól um sólríka garða og torg.
Húsin eru verksmiðjuframleidd úr steyptum einingum sem gerðar eru innanhúss við bestu aðstæður. Burðarkerfi húsanna er byggt upp með forsteyptum svokölluðum samlokueiningum í útveggjum. Undirstöður eru forsteyptar en botnplata er staðsteypt. Innveggir á milli íbúða og íbúða og gangs eru úr forsteyptum einingum. Einangrun útveggja er forsteypt í samlokuútveggjaeiningarnar. Gluggar og hurðir eru úr timbri, formálaðir og settir í eftirá. Svalir og svalagangar eru úr forsteyptum einingum sem sitja á stálsúlum.
Sameiginleg sameign allra áfanga eru byggðir í öðrum áfanga utan hjóla- og vagnagreymslu sem er byggð samhliða fjórða áfanga.
Íbúðirnar eru á sjávarlóð nyrst í Gufunesi. Frá lóðinni er glæsilegt útsýni yfir Geldinganes og Viðey. Í hverfinu og meðfram lóðinni verða göngu- og hjólastígar á borgarlandi meðfram ströndinni sem tengjast grónum íbúðasvæðum í Grafarvogi fyrir sunnan og ofan þessarar nýju byggðar. Megin stígar innan lóðar eru malbikaðir, við aðkomu og innganga eru stéttar hellulagðar. Lögð er áhersla á algilda hönnun þar sem aðgengi allra er tryggt. Gert er ráð fyrir trjágróðri við megin gönguleiðir og til rýmismyndunar við dvalarsvæði. Íbúðarhúsin mynda garðrými fyrir skjólgott torg, leikvöll og grasfleti. Torgið er við aðalinngang hverfisins við sameiginleg rými íbúa. Leik- og dvalaraðstaða er norðan megin gegnt ströndinni. Tekið er tillit til sólarátta og byggð skipulögð þannig að garðrýmin eru í góðu skjóli fyrir veðri og vindum.Lögð er áhersla á sameiginlegan frágang allra garðrýma.
Við íbúðarbyggðina eru matjurtagarðar í landi Reykjavíkurborgar til afnota fyrir íbúa til ræktunar. Þar er heimilt að gera vermireiti og gróðurskýli.
Sérnotafletir verða fyrir íbúðir á jarðhæðum og á svölum á efri hæðum sem snúa í suður eða vestur. Verandir á sérafnotareitum eru með föstu hellulögðu yfirborði og heimilt er að gróðursetja runnagróður við sérafnotareiti.
Deiliskipulag fyrir Gufunes, nýjasta hverfi Reykjavíkur, byggir á verðlaunatillögu hollensku arkitektastofunnar jvantspijker + Felixx sem árið 2016 hreppti fyrstu verðlaun í hugmyndasamkeppni um Gufunessvæðið. Í vinningstillögunni segir að Gufunes eigi að verða eins konar ventill fyrir ungt fólk sem kýs grósku og borgarbrag í stað úthverfa. Tillagan nýtir óhefluð umhverfisgæði og staðaranda sem grunn að samfélagi þar sem tækifæri, hagkvæmni og upplifun verða í forgrunni.
Ítarlegri upplýsingar veitir Páll lögg,fasteignasali í síma 8619300 eða [email protected]
Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá, við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Remax því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 1149284
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 44.192.765
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 32.350.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 44.600.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 797.703
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 55.4
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 28.07.2023
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 01.02.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur :
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 112
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Jöfursbás 11
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 2021
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 3
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 2
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 0
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 1
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur :
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Jöfursbás
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 11
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
Ekki tókst að sækja eignir.
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina