25.07.2023 1148825

Söluskrá FastansNaustavör 58

200 Kópavogur

hero

13 myndir

98.000.000

967.423 kr. / m²

25.07.2023 - 45 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 08.09.2023

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

101.3

Fermetrar

Fasteignasala

Fasteignasalan TORG

[email protected]
699-4610
Lyfta
Svalir
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Fasteignasalan TORG kynna:  Fallega 3ja herb íbúð á  3. hæð merkt 3-12 i í nýju glæsilegu álklæddu lyftihúsi við Naustavör 58. Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir með. Íbúðin sjálf er 96 fm. og sérgeymsla í kjallara er 5,3 fm. íbúðin er því samtals  skráð 101,3 fm.  Sérsmíðar innréttingar frá Brúnás. AEG eldhústæki og blöndunartæki frá Tengi. Hiti í gólfum.  Naustavör 52-58 er nýtt 4 hæða fjölbýlishús sem er frábærlega vel staðsett í nýju bryggjuhverfi við Kársnes í Kópavogi.  Traustur byggingaaðili Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. Íbúðin er tilbúin til afhendingar við kaupsamning.
Allar nánari upplýsingar og skoðun veitir  Sigríður Rut Stanleysdóttir löggiltur fasteignasali gsm. 699-4610 eða [email protected]

  

Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu með góðum fataskáp.
Eldhús með fallegri innréttingu og vönduðum AEG eldhústækjum. Borðplötur Virgo Quartz steini frá S. Helgasyni. Útgengi út austursvalir.
Opið eldhús og stofurými. .
Baðherbergi/þvottahús með flísum á gólfi og veggjum, stórri sturtu með glerþili, innbyggðum vönduðum blöndunartækjum frá Tengi, og fallegri innréttingu frá Brúnás. Þvottahús er inn á baðherbergi.
Hjónaherbergi með góðum fataskáp sem ná uppí loft.
Svefnherbergi með góðum fastaskáp.
Allar innihurðar frá Parka.  Íbúðin skilast með gólfefnum á baði og þvottaherbergi en að öðru leyti án gólfefna.

Í kjallara er stæði í lokaðri bílageymsla og góð sérgeymsla.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.

Afhending á íbúð, sameign, lóð og bílageymslu verður í mars 2023.
Sjá allar nánar upplýsingar  í skilalýsingu byggingaraðila
 
Naustavör 52-58, SKILALÝSING 25.3.2022
1.    Frágangur innanhúss íbúða
 
1.1.   Gólfefni
Íbúðin sjálf verður afhent án gólfefna, nema á baðherbergi og þvottahúsi verða flísar frá Álfaborg.
1.2.   Veggir
Útveggir íbúðarinnar eru sandsparslaðir. Léttir innveggir eru hlaðnir úr vikur- eða gjallplötum, grófpússaðir og sandsparslaðir eða hefðbundnir gipsplötuveggir sparslaðir. Veggir eru grunnaðir og málaðir með tveimur yfirferðum af akrýlmálningu, gljástig 5 eða sambærilegt.
1.3.   Loft
Steypt loft eru slípuð, og slétt sandspörtluð. Loft eru grunnuð og máluð með tveimur yfirferðum af plastmálningu, gljástig 2 eða sambærilegt. Loft og veggir á baðherbergjum og þvottahúsum eru máluð með viðurkenndri votrýmismálningu. Á völdum stöðum og íbúðum er hluti lofta hljóðloft á 4h og 3h
1.4.   Gler
Tvöfalt hefðbundið K-gler, verksmiðjugler er í öllum gluggum. Ábyrgð framleiðanda er samkvæmt skilmálum Samverk glerframleiðanda.
1.5.   Sólbekkir
Sólbekkir verða þar sem við á úr plastlögðum spónaplötum.
1.6.   Hurðir
Inngangshurð EICS-30, EICS-35 eða EICS-42 eftir því sem við á. Inngangshurð inn í íbúðina verður spónlögð. Innihurðar eru yfirfelldar, sléttar og sprautulakkaðar hvítar. Í sumum íbúðum eru innri anddyrishurðar eins og teikningar arkitekts sýna og þær eru með glerramma í hurðarspjaldi þar sem við á. Hurðir eru frá PARKA.
1.7.   Fataskápar
Fataskápur er í forstofu og svefnherbergjum. Í sumum hjónaherbergjum eru fataherbergi með rennihurð fyrir. Innréttingar verða frá Brúnás og eru að innan úr ljósgráum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir verða spónlagðar eða sprautulakkaðar þar sem við á.
1.8.   Eldhús
Eldhúsinnrétting verður frá Brúnás og að innan úr ljósgráum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir verða spónlagðar eða sprautulakkaðar. Borðplötur verða úr Virgo Quartz steini frá S. Helgasyni. Vaskur og blöndunartæki verða í innréttingu frá Tengi. Vaskur verður undirlímdur í borðplötu. Einnig mun fylgja  helluborð, ofn með blæstri, örbylgjuofn, innbyggð uppþvottavél með áklæddum fronti ásamt ljósagufugleypi frá Bræðrunum Ormsson. Ísskápar fylgja þar sem þeir eru innbyggðir í innréttingu.
1.9.   Baðherbergi
Á baðherbergi er gólf flísalagt og verða veggir flísalagðir upp í loft. Innrétting frá Brúnás verður að innan úr ljósgráum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir verða sprautulakkaðar. Borðplötur eru úr Virgo Quartz steini. Á baðherbergi verða ýmist speglaskápar eða speglar eftir því sem við á. Handlaug ásamt hitastýrðu blöndunartæki verður í innréttingu eftir því sem við á frá Tengi. Handklæðaofn þar sem við á, upphengt og innbyggt salerni með hæglokandi setu ásamt flísalögðum sturtubotni með sturtuhlið úr gleri. Innbyggt blöndunartæki verður í sturtu frá Tengi.
1.10.    Þvottahús
Í þvottahúsi er gólf flísalagt og innréttingar frá Brúnás úr ljósgráum spónaplötum með ræstivask og blöndunartæki í borði. Ekki eru ræstivaskar í innréttingu í sameiginlegu þvottahúsi/ baði.  Borðplata verður úr plasti. Niðurfall er í gólfi og tengingar fyrir þvottavél og þurrkara, gert er ráð fyrir barkalausum þurrkara.
1.11.    Sérgeymsla
Steypt loft, veggir og gólf í sérgeymslum eru hreinsuð og máluð. Skilveggir á milli geymslna eru ýmist steyptir eða með timburgrind og málaðri plötuklæðningu án innréttinga. Sérgeymslur inn af bílastæðum eru án innréttinga með stálhurð þar sem við á. Rafmagnstengill er í sérgeymslu. 
 1.12.    Hitakerfi
Íbúðirnar eru upphitaðar með gólfhita en sameign með ofnakerfi skv. teikningum. Gólfhita- sem og ofnakerfi í sameign fylgir frágengið og verða hitastýrðir lokar á því. 
1.13.    Loftræsi-, vatns- og þrifalagnir
Loftræsi-, vatns, - og þrifalagnir fylgja frágengnar skv. teikningum. Forhitari er á heitu neysluvatni.
1.14.    Rafmagns- og sjónvarpslagnir
Rafmagns- og sjónvarpslögn fylgir frágengin með einum mynddyrasíma í íbúð. Loftnetstengill verður í alrými ásamt tölvutengli. Tölvutenglar verða í herbergjum. Ljósleiðari verður í húsinu. Innfelld lýsing í alrými ( stofu og eldhúsi) samkvæmt teikningu er með dimmum.
 
2.    Frágangur sameignar
 
2.1.       Anddyri og stigahús
Steyptir innveggir í sameign og geymslum eru hreinsaðir og málaðir. Sameign á hverri íbúðarhæð og stigagangur eru sandspartlaðir, grunnaðir og málaðir tveimur yfirferðum af plastmálningu. Anddyri er flísalagt með uppsettum póstkössum, íbúðartöflu og dyrabjöllu. Stigar og stigapallar eru teppalagðir en það er gert nokkru eftir að íbúðareigendur hafa flutt inn. Stigahlaup að kjallara er flíslagt. Á stigum og pöllum eru uppsett handrið. Raflögn í sameign fylgir frágengin með ljósakúplum þar sem venja er að hafa þá ásamt lýsingu í lofti þar sem við á. Loftræsilagnir eru lagðar samkvæmt teikningum.
 2.2.       Hurðir
Allar útihurðar fylgja frágengnar. Aðalhurð er úr áli. Innri anddyrishurð er úr áli með mótorknúinni hurðarpumpu. Hurðir frá bílgeymslu gegnum brunastúkur verða með rafmagnsopnun.
 2.3.       Lyftur
Fólkslyfta er í húsinu af gerðinni Mono Space eða sambærileg frá Kone og verður tilbúin til notkunar í stigahúsi.
2.4.       Lokað bílageymsluhús
Bílgeymsla er í kjallara hús með máluðu lofti og Herakustik þar sem við á. Útveggir verða einangraðir ýmist að utan- eða innanverðu eftir því sem við á. Þeir eru hreinsaðir og slípaðir að innanverðu og málaðir. Hitablásarar og loftræsikerfi fylgir frágengið í samræmi við teikningar. Gólf er steypt og vélslípað án frekari meðhöndlunar en bílastæði eru merkt. Sprungur geta myndast á yfirborði gólfsins sem verða ekki meðhöndlaðar frekar. Hurð fyrir bílgeymslu fylgir frágengin með sjálfvirkum opnunarbúnaði og einni fjarstýringu á hvert stæði. Rafmagnstengill fylgir hverju stæði.
2.5.       Hjóla- og vagnageymslur
Steyptir innveggir í hjóla- og vagnageymslu eru hreinsaðir slípaðir og málaðir. Gólf eru slípuð og máluð.
2.6.       Sorp og sorpgeymslur
Sorpgeymsla er í bílageymslu. Veggir eru með múrfiltun og málaðir.  Gólf eru slípuð og lögð epoxy.
 
3.    Frágangur utanhúss
3.1.       Klæðning og einangrun
Útveggir verða einangraðir ýmist að utan- eða innanverðu eftir því sem við á og álklætt að mestu að utan. Kjallaraveggir og veggir 1 hæðar að hluta eru með múrfiltun og í steypulit.
3.2.       Steypt þak
Þakplata er steypt með vatnshalla að niðurföllum. Ofaná steypa plötu kemur tvöfalt lag af eldsoðnum tjörupappa. Einangrun er 200 mm rakaþolin þrýstieinangrun. Ofan á einangrun kemur vatnsvarnardúkur með öndun, einangrun er fergt með sjávarmöl/völusteinum. Niðurföll eru tengd regnvatnslögnum.
3.3.       Svalir
Svalagólf eru steypt og slípuð eða með múrfiltun eftir því sem við á. Svalahandrið eru úr áli og gleri frá Ál og gler eða sambærilegt. Útiljós og rafmagnstengill er á svölum. Svalaloft eru slípuð, grunnuð og máluð. Þaksvalir eru með gagnvarði furu þar sem við á.
3.4.       Svalalokun
Möguleiki er á svalalokun samkvæmt aðalteikningum arkitekts garðmegin. Glerlokun yrði þá frá  Ál og gleri sem kaupendur geta keypt aukalega eftir á. Sjá nánar á aðalteikningum arkitekts.
3.5.       Gluggar
Gluggar eru álklæddir timburgluggar frá Berki. Opnanleg gluggafög fylgja frágengin, svo og allar úti- og svalahurðir að fullu frágengnar með þéttiköntum.
 3.6.       Lóð
Lóð verður fullfrágenginn samkvæmt leiðbeinandi teikningu landslagsarkitekts. Stéttar næst húsi verða hellulagðar og snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið samkvæmt teikningu. Bílastæði eru malbikuð. Ekki verða hlið eða hurðir í gönguopum inn á timburverandir á sérafnotareitum íbúða.
 
 
4.    Handbók hússins
Útbúinn verður sérstök handbók vegna hússins þar sem fram koma helstu upplýsingar um söluaðila efnis sem notað var í húsinu ásamt skýringum á helsta búnaði. Upplýsingar eru oft sóttar á heimasíður hinna ýmsu aðila og geta því slæðst með allskonar smávægilegar villur varðandi tæki og búnað þeirra og ber byggingarfélagið ekki ábyrgð á þeim.
 5.    Hönnuðir
Arkitekt: Guðmundur Gunnlaugsson. Archus.
Verkfræðihönnun: VEKTOR - hönnun & ráðgjöf.
Raflagnahönnun: Svanbjörn Einarsson, Tesla ehf.
Lóðahönnun: Inga Rut Gylfadóttir, Landslag ehf.
 6.    Teikningar
Í kaupsamningi kemur fram hvað teikningar arkitekts eru í gildi á þeim tíma þegar kaupsamningur er gerður. Á byggingartíma hússins áskilur byggingarfélagið sér rétt til að breyta þessum teikningum í samráði við arkitekt vegna tæknilegra úrfærsla sem upp geta komið í framkvæmdinni. Teikningar annarra hönnuða geta líka breyst vegna tæknilegra útfærsla og eða breytinga vegna búnaðar sem síðar er valinn inn í eða utan á húsið.
 7.    Byggingaraðili
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf., www.bygg.is
Verkefnastjóri Bygg  Konráð Jón Sigurðsson [email protected]
Verkefnastjóri Bygg Skarphéðinn Njálsson [email protected]
  
Frekari upplýsingar um efnisval og annað má nálgast hjá verkefnastjóra Byggingarfélagsins.
 
8.    Áætlaður afhendingartími
 
Áætlað er að íbúðir að Naustavör 52-58 verði afhentar á tímabilinu sep. 2022 – feb.2023. Hús nr.52 fyrst í sept.2022, 54 í okt.2022. og 56 og 58 í feb. 2023 eða fyrr.
 
 Sameign, lóð og bílgeymsla verður afhent samhliða afhendingu síðustu íbúða í stigagangi nr.58.
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingargjald er 2700,- kr af hverju skjali.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.
 

Ljósmyndir

Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

Pnr.HeimilisfangKaupverðStærðFermetraverðTegundFastan.Dags.Noth.
98.000.000 kr.101.30 967.423 kr./m²251218110.02.2024

98.000.000 kr.101.40 966.469 kr./m²251216918.03.2024

Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007

Sótt frá Þjóðskrá

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010110

Íbúð á 1. hæð
110

Fasteignamat 2025

100.200.000 kr.

Fasteignamat 2024

99.600.000 kr.

010111

Íbúð á 1. hæð
110

Fasteignamat 2025

99.400.000 kr.

Fasteignamat 2024

98.800.000 kr.

010210

Íbúð á 2. hæð
129

Fasteignamat 2025

108.800.000 kr.

Fasteignamat 2024

108.050.000 kr.

010211

Íbúð á 2. hæð
94

Fasteignamat 2025

90.150.000 kr.

Fasteignamat 2024

89.700.000 kr.

010212

Íbúð á 2. hæð
101

Fasteignamat 2025

93.350.000 kr.

Fasteignamat 2024

92.850.000 kr.

010310

Íbúð á 3. hæð
128

Fasteignamat 2025

108.700.000 kr.

Fasteignamat 2024

108.000.000 kr.

010311

Íbúð á 3. hæð
94

Fasteignamat 2025

90.350.000 kr.

Fasteignamat 2024

89.900.000 kr.

010312

Íbúð á 3. hæð
101

Fasteignamat 2025

93.500.000 kr.

Fasteignamat 2024

93.000.000 kr.

010408

Íbúð á 4. hæð
129

Fasteignamat 2025

112.250.000 kr.

Fasteignamat 2024

111.500.000 kr.

010409

Íbúð á 4. hæð
96

Fasteignamat 2025

93.500.000 kr.

Fasteignamat 2024

93.050.000 kr.

010410

Íbúð á 4. hæð
103

Fasteignamat 2025

96.900.000 kr.

Fasteignamat 2024

96.400.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.


    Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).

    PóstlistiÁbendingarHafa samband