Söluauglýsing: 1145098

DALAHRAUN 34

810 Hveragerði

Verð

74.900.000

Stærð

166.7

Fermetraverð

449.310 kr. / m²

Tegund

Rað/Par

Fasteignamat

9.960.000

Fasteignasala

Valborg

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 111 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Valborg fasteignasla kynnir í einkasölu Dalahraun 34, 810 Hveragerði.
Um er að ræða raðhús með fimm íbúðum, hver og ein með innbyggðum bílskúr. 
Stærð íbúðar með bílskúr verður 166,7 m2.
Gert er ráð fyrir bílastæði fyrir tvo bíla við hverja íbúð.
Öllum íbúðum verður skilað með fullfrágenginni lóð og steyptu bílaplani.


Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected].
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].


Sjá staðsetningu hér:

Skipting eignar er eftirfarandi:
Forstofa, stofa, eldhús, geymsla, baðherbergi, þvottahús og þrjú til fjögur svefnherbergi.

Gert er ráð fyrir fjórum svefnherbergjum í endaíbúðum og þremur svefnherbergjum í miðjuíbúðum.
Svefnherbergin eru frá 9,7 - 16,9 m2 að stærð.
Miðrými, eldhús & stofa er ca 47 m2 að stærð.
Bílskúr er 43,7m2 að stærð.
Heildarstærð eignar er 166,7 m2.

Sökklar eru steyptir í kubbamót.
Húsið er byggt úr timbri, þak er hefðbundið kraftsperruþak.
Að utan verður húsið klætt með liggjandi hvítri báruklæðningu en svartri Cembrid sléttplötuplöklæðningu í innskotum.
Þakkantar klæddir með sléttu svörtu áli, með svörtum þakrennum og þak klætt með aluzink.
Golfhiti er ísteyptur í öllu húsinu.

Hægt verður að velja um fullfrágengna íbúð með fullfrágenginni lóð, á byggingastigi 7-fullgerð bygging, eða tilbúna til spörslunar en þá eru loft óklædd en búið að setja upp tvöfalda grind í loft.
Þá verður gólfhiti tengdur með búnaði, raflögn ídregin, loftræsti útsog úr lokuðum rýmum með búnaði og lóð verður fullfrágengin.
Frágangur á lóð: Íbúðum verður skilað með fullfrágenginni lóð.
Búið verður að tyrfa garð og steypa plan.
Ruslaskýli samkvæmt kröfu.

Verð á íbúð nr. 34 sem er miðjuhús:
Fullfrágengin að innan og utan með fullfrágenginni lóð er kr. 88.500.000,-
Tilbúin til spörslunar að innan, fullfrágengin að utan og með fullfrágenginni lóð er kr. 74.500.000,-


Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected].
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband