20.06.2023 1137777

Söluskrá FastansMaríugata 24

210 Garðabær

hero

12 myndir

134.900.000

675.175 kr. / m²

20.06.2023 - 38 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 28.07.2023

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

199.8

Fermetrar

Fasteignasala

Gimli Fasteignasala

[email protected]
6900811
Bílskúr
Gólfhiti
Verönd

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Gimli fasteignasala og Ólafur B Blöndal löggiltur fasteignasali kynna:

MARÍUGATA 20 - 24 GARÐABÆ.
Glæsileg einlyft steinsteypt raðhús á frábærum stað í Urriðaholti. 
Hellulagt bílaplan með hitalögnum, steyptum skjólveggjum og timburverönd að framanverðu.
Húsin afhendast samkvæmt skilalýsingu hér að neðan. 
Afhending er haustið 2023 fullbúin að utan og máluð.

Ath. Möguleiki er að fá húsin afhent lengra komin og jafnvel fullbúin að innan samkvæmt nánara samkomulagi. 


Stærðir húsanna eru:
Hús nr. 20. 203,5 fm. 
Hús nr. 22. 194,6 fm.
Hús nr. 24.  199,8 fm.
Bílskúrar eru þar af 29,9 fm að stærð. 
Fjöldi svefnherbergja eru fjögur talsins í húsi nr. 20 og þrjú í nr. 22 og 24

NÁNARI LÝSING:
Maríugata 20,22,24 Garðabær Áætluð afhending er haust 2023  Arkitekt: Former former.is Burðar- og lagnahönnun: Verkfræðistofa Jóns Kristjánssonar Raflagnahönnun: Tera Skilalýsing: Almennt: Húsin skilast fullbúin að utan og afhendast á byggingarstigi nr. 2 ( Íst:51. 2021) ásamt viðbótum samkvæmt eftirfarandi skilalýsingu. Stærð húsa samkvæmt skráningartöflu hönnuða er á bilinu 194,6 – 203,5 fm. Brúttó, byggð úr forsteyptum vottuðum einingum frá Einingarversksmiðjunni ev.is Frágangur utanhúss: Útveggir: Útveggir eru forsteyptir og samanstanda af þremur lögum: burðarvegg, einangrun og veðrunarkápu úr veðrunarþolinni steinsteypu (slétt). þykkt burðarveggjanna er 150 mm, einangrunin er um 100 mm og veðurkápan um 70 mm. Húsin skilast máluð að utan í hvítum lit. Dökkur litur við inngang húsa. Gluggar og útihurðir: Hurðir og gluggar að utan eru ál/timbur og koma frá Byko. Svartir (RAL 9005) að utan og hvítir að innan (RAL 9010). Valin fura í gluggakörmum, samlímd fura í opnanlegum fögum og hurðum, sléttar hurðir eru úr krossvið. Opnanleg fög eru með barnalæsingu og næturlokun. Læsingar á hurðum eru hefðbundnar t.d. ASSA eða sambærilegt. Allt gler í gluggum og hurðum er einangrunargler með „heitum kant“ á milli glerja. Öryggisgler í gólfsíðum gluggum. Svört (RAL 9005) bílskúrshurð sem verður uppsett og stillt án mótors. Hurðir og gluggar skilast málaðir frá framleiðanda.
Þakið er uppbyggt með forsteyptum holplötum, einangrað að utan og klætt með þakpappa eða PVC dúk. Fergjað með úthagatorfi. Flasningar frágengnar og búið að tengja niðurföll við fráveitukerfi. Lóð: Lóð að framan skilast með hellulögn og snjóbræðslu ásamt sorptunnuskýli, steyptum skjólvegg og timburverönd. Að aftanverðu og hliðum skilast lóð grófjöfnuð, +/- 30 cm frá endanlegum jarðvegi. Rafmagn: Útilýsing og tenglar á húsi fullfrágengið. Frágangur að innan: Útveggir: Allir útveggir eru einangraðir með verksmiðjuáferð og íssteyptum rafmagnsdósum þar sem við á. Innveggir: Forsteyptir berandi innveggir eru að hluta í húsunum, ósparstlaðir. Aðrir milliveggir ekki uppsettir. Gólf: Gólf eru slödduð og tilbúin undir flot með nákvæmni +/- 1,5 cm. Rafmagn: Rafmagnsinntak verður komið í húsið. Rafmagnstafla uppsett fyrir vinnurafmagn. Dósir og rör verða innsteypt í forsteypta út- og innveggi. Vinnulýsing verður uppsett. Loft: Loft eru einangruð að utan án lagnagrindar og klæðningu að innan. Loftræsting: Loftræstirör verða komin upp úr þaki og frágengin. Eftir er að setja vélræna loftræstingu ef þörf krefur. Hitalagnir: Gólfhitarör verða ísteypt í botnplötu og tengd við gólfhitakistu. Heitavatnslögn veitustofnunar verður kominn inn í hús. Gólfhiti tengdur en eftir er að setja upp stjórnbúnað.
Neysluvatnslagnir: Neysluvatnslagnir verða innsteyptar í gólfplötu og komnar upp úr gólfi við tengi staði í báða enda ótengt. Neysluvatnsheimæð verður kominn inn í hús og tengd mælagrind. Fráveitulagnir: Allar fráveitulagnir frá húsinu verða tengdar í kerfi bæjarins. Að innan verða frárennslistútar í stokkum í gólfum. Afhending húsa: Lýsingu þessari er ekki ætlað að vera tæmandi um einstök atriði. Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, útlits- og tæknilegar breytingar meðan á byggingarframkvæmdum stendur. . Allar breytingar að ósk kaupenda þurfa að fara í gegnum skrifstofur seljanda og geta haft áhrif á afhendingartíma til seinkunnar. Breytingar geta leitt til kostnaðar auka. Byggingargjöld og gatnagerðargjald eru greidd. Seljandi greiðir heimtaugagjöld fyrir rafmagn og hita, en kaupandi greiðir 0,3% skipulagsgjald sem er innheimt við endanlegt brunabótarmat. Kaupandi skal ráða nýja byggingastjóra og meistara að verkinu við afhendingu og sér um úttektir eftir afhendingu eignar. Byggingaraðili er Brimhyrna ehf


Nánari upplýsingar veitir Ólafur Björn Blöndal Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali, í síma 6900811, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til [email protected]

Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 

Ljósmyndir

Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010101

Raðhús á 1. hæð
199

Fasteignamat 2025

160.650.000 kr.

Fasteignamat 2024

156.550.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband