06.06.2023 1133002

Söluskrá FastansÁlfhólsvegur 137

200 Kópavogur

hero

25 myndir

99.500.000

692.897 kr. / m²

06.06.2023 - 3 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 09.06.2023

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

143.6

Fermetrar

Fasteignasala

Fasteignamarkaðurinn

[email protected]
570-4500
Bílskúr
Verönd

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega glæsilegt og mjög mikið endurnýjað 125,0 fermetra raðhús auk 18,6 fermetra bílskúrs á eftirsóttum og rólegum stað með stórri suðurlóð með heitum og köldum potti við Álfhólsveg 137c í Kópavogi.

Fasteignamat eignarinnar fyrir árið 2024 er kr. 89.300.000.-

Eignin hefur verið mjög mikið endurnýjuð á sl. 5 árum:
- 2018 var skipt um þakjárn og þakpappa á húsinu auk þess sem þakrennur og niðurföll voru endurnýjuð
- 2018 voru gler og gluggar hússins endurnýjuð að stórum hluta en yfirfarið og endurbætt að hluta
- 2019 var skipt um eldhúsinnréttingu og tæki
- 2019 var lóðin öll girt af
- 2020 var skipt um gólfefni á 1. hæð hússins og lagðar gólfhitalagnir á 1. hæð hússins.
- 2020 var baðherbergi á efri hæð endurnýjað og loftræsting í baðherbergi
- 2020 var sett lofræsting í öll svefnherbergi efri hæðar hússins
- 2020 raflagnir og tafla á 1. hæð hússins endurnýjuð.  Sett reykskynjarakerfi í húsið sem stýrt er í gegnum app. 


Lýsing eignar:

Forstofa, flísalögð og rúmgóð og með góðum fataskápum.
Samliggjandi stofur, flísa- og parketlagðar, bjartar og rúmgóðar með útgengi á glæsilega afgirta og skjólsæla viðarverönd til suðurs með heitum og köldum potti og tyrfða lóð með hlöðnum veggjum.
Eldhús, flísalagt og með glugga til norðurs. Mjög fallegar innréttingar úr hnotu og hvítar sprautulakkaðar með náttúrusteini á borðum og fallegri múráferð á milli skápa. Ný tæki eru í eldhúsi og innbyggð uppþvottavél.

Gengið er upp á efri hæð hússins um fallegan uppgerðan og nýlega teppalagðan viðarstiga:
Stigapallur, parketlagður.
Barnaherbergi I, parketlagt og stórt með loftræstingu.
Barnaherbergi II, parketlagt og með loftræstingu.
Hjónaherbergi, stórt, parketlagt og með fataskápum og loftræstingu.
Baðherbergi, nýendurnýjað og með gólfhita. Flísalagt gólf og veggir, innrétting, vegghengt wc, handklæðaofn, flísalögð sturta með sturtugleri og loftræsting.

Gengið er niður í kjallara hússins um fallegan uppgerðan og nýlega teppalagðan viðarstiga:
Stórt þvottaherbergi, flísalagt með góðum innréttingum með stæðum fyrir vélar í vinnuhæð og vaski.  Mögulegt er að setja glugga til norðurs í þvottaherbergi og úbúa eitt auka svefnherbergi í hluta þess rýmis þar sem það er nægilega stórt. 

Bílskúr er með hita, rennandi heitu og köldu vatni, vaski, niðurfalli í gólfi og wc skál.  Hiti er í innkeyrslu fyrir framan bílskúr og er ný stýring á þeim hita. 

Lóðin er mjög mikið endurnýjuð með stórri og skjólsælli viðarverönd til suðurs með heitum og köldum potti og komin grind fyrir grillskýli á lóðinni. Tyrfð flöt utan við verönd þar sem er m.a. pláss fyrir trampólin. Lóðin er öll nýlega afgirt með viðargrindverki.  Lóð norðan við húsið er malbikuð og hellulögð.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á rólegum og grónum stað austarlega og neðan við Álfhólsveg þaðan sem stutt er í leikskóla, barnaskóla o.fl. 

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]

 

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010101

Íbúð á 1. hæð
147

Fasteignamat 2025

91.550.000 kr.

Fasteignamat 2024

91.400.000 kr.

040101

Íbúð á 1. hæð
147

Fasteignamat 2025

91.950.000 kr.

Fasteignamat 2024

91.750.000 kr.

020101

Íbúð á 1. hæð
143

Fasteignamat 2025

89.400.000 kr.

Fasteignamat 2024

89.300.000 kr.

030101

Íbúð á 1. hæð
143

Fasteignamat 2025

88.500.000 kr.

Fasteignamat 2024

88.500.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband