22.04.2023 1120375

Söluskrá FastansEyrarvík 19

800 Selfoss

hero

14 myndir

46.900.000

509.783 kr. / m²

22.04.2023 - 34 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 26.05.2023

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

92

Fermetrar

Fasteignasala

Husfasteign Fasteignasala

[email protected]
8931984

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Seld með fyrirvara um fjármögnun.

HÚS Fasteignasala, Jens Magnús Jakobsson s: 8931984 og Snorri Sigurfinnsson lgf kynna í sölu Eyrarvík 19, 800 Selfoss. Endaraðhús í byggingu í nýju hverfi á Selfossi. Eignin er byggð úr timbri og klædd með bárujárni og standandi Stac Bond álklæðningu. Eigninni verður skilað á byggingastigi 5 (tilbúið til málunar).

Nánari lýsing á skilum:

·       Útveggir einangraðir með 150mm steinull
·       Loft einangrað með 200 mm steinull með áfastri vindvörn.
·       Rakasperra er sett innan á veggi og neðan í loft og gengið er frá henni á hefðbundinn hátt.
·       Á útveggi hússins kemur 34mm lagnagrind sem klæðist með gipsplötum
·       Milliveggir eru uppbyggðir með 70mm blikkgrind klæddir gipsplötum sem ysta lag, á böðum er ysta lag rakahelt.  Allir innveggir einangrast með 70mm steinull
·       Í loftin kemur tvöföld lagnagrind sem klæðist með einföldu gifsi. Lofthæð ca 2.6m
·       Búið er að tengja gólfhitakerfi og neysluvatn (án stýringa og hitanema).
·       Lagnagrind hita og neysluvatnslagna eru uppsettar ásamt forhitaragrind fyrir neysluvatn.
·       Búið er að leggja fyrir rafmagni og draga í fyrir vinnuljósum. Tenglar og rofar eru ófrágengnir og ekki búið að draga í fyrir þeim.
·       Búið að leggja kapal fyrir led lýsingu í loftin skv teikningu.
·       Rafmagnstafla er komin upp og tengd.
·       Búið er að leggja rör fyrir loftræstingu að þakblásara og tengja við stýringu við rafmagnstöflu.
·       Lóð afhendist þökulögð með mulning í plani.
·       Steypt 3 tunnu ruslatunnuskýli fylgir án loks.
·       Inntaksgjöld fyrir vatnsveitu, rafmagn og hitaveitu eru greidd.
·       Kaupandi skal áður en hann hefur framkvæmdir ráða nýjan byggingarstjóra að húsinu, sama gildir um alla aðra iðnmeistara að húsinu.
·       Kaupandi greiðir sjálfur skipulagsgjald sem er 0,3% af brunabótamati íbúðar. Gjaldið er lagt á eftir lokaúttekt.

Möguleiki er á að fá eignina fullkláraða og er það þá eftir nánara samkomulagi.

Nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá Jens Magnúsi Jakobssyni nema í löggildingu s. 8931984 eða [email protected] og Snorra Sigurfinnssyni lgf. [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, 0,4 % fyrir fyrstu kaupendur.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS Fsteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.



 

Ljósmyndir

Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010105

Raðhús á 1. hæð
92

Fasteignamat 2025

61.550.000 kr.

Fasteignamat 2024

60.650.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband