20.04.2023 1119711

Söluskrá FastansÍsleifsbúð 24

815 Þorlákshöfn

hero

37 myndir

65.600.000

546.211 kr. / m²

20.04.2023 - 8 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 28.04.2023

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

120.1

Fermetrar

Fasteignasala

Helgafell Fasteignasala

[email protected]
893 3276
Sólpallur
Heitur pottur
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali s. 893 3276 og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu nýlegt, fallegt og smekklega innréttaða 4ra herbergja miðjuraðhús í Ísleifsbúð 24. Birt stærð eignar er 120.1 fm. Frábær staðsetning á fallegum stað í suðurjaðri Búðarhverfis þar sem stutt er í alla helstu þjónustu skóla og leikskóla, íþróttaaðstöðu og falleg útivistarsvæði.  

*** LAUS VIÐ KAUPSAMNING ***


Skipulag eignarinnar:
Forstofa, eldhús, stofu / borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. 

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Nánari lýsing: 
Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu. 
Stofa / borðstofa: Í alrými er björt og rúmgóð stofa / borðstofa með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt út á stóran suðvestur sólpall með heitum potti.
Eldhús: Í alrými er eldhús með fallegri brúnni Ikea innréttingu, bakstursofn, örbylgjuofn, keramik helluborð, háfur, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Stórt parketlagt hjónaherbergi, góðir fataskápar. 
Svefnherbergi 2: Gott parketlagt herbergi. 
Svefnherbergi 3: Gott parketlagt herbergi. 
Baðherbergi: Fallegt og rúmgott baðherbergi, góð Ikea innrétting, stór spegill með ljósum, walk inn sturta, upphengt salerni, handklæðaofn, flísar á gólfi og veggjum.
Þvottahús: Flísalagt gólf, vinnuborð og hillur, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Flísalögð, lúga með stiga upp á rúmgott geymsluloft, hitastýring fyrir heita pottinn.
Húsið: Er byggt 2019 og er timburhús klætt með steni. Led lýsing er í öllum rýmum nema þvottahúsi og geymslu, gólfsíðir gluggar eru í húsinu sem gefa því mikla birtu.
Lóð: Framan við húsið er malarlögð innkeyrsla. Á suðvesturhliðinni er glæsilegur ca. 60-70 fm. sólpallur með heitum potti. 
Staðsetning: Smellið hér.

Hér er um að ræða virkilega fallega og vel staðsetta eign. Þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, sundlaug og íþróttahús. Eign sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir:
Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893 3276 eða [email protected].

Ertu í fasteignahugleiðingum - Þarftu að selja eignina þína?  Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, sanngjörn söluþóknun, sláið á þráðinn í síma 893 3276.

Þorlákshöfn:

Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi. 

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við verðmetum eign þína þér að kostnaðarlausu, þó kannski fyrir einn kaffibolla -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 74.400,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

Pnr.HeimilisfangKaupverðStærðFermetraverðTegundFastan.Dags.Noth.
28.700.000 kr.120.10 238.968 kr./m²250520406.08.2019

63.600.000 kr.120.10 529.559 kr./m²250520420.06.2024

70.000.000 kr.120.10 582.848 kr./m²250520417.07.2024

Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007

Sótt frá Þjóðskrá

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010105

Raðhús á 1. hæð
120

Fasteignamat 2025

59.800.000 kr.

Fasteignamat 2024

59.900.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.


    Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).

    PóstlistiÁbendingarHafa samband