19.04.2023 1119460
Goðheimar 5
104 Reykjavík
28 myndir
96.800.000
601.616 kr. / m²
19.04.2023 - 16 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 05.05.2023
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
160.9m²
Fermetrar
Tegund
HæðirByggingarár
1959Fasteignamat
79.650.000Inngangur
SameiginlegurFastanúmer*
2021376Byggingarnúmer*
1006484Brunabótamat
64.940.000Verðmat Fastans
Reiknar verðmat...
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Nánari lýsing: Komið er inn í sameiginlegan stigagang með íbúð á efstu hæð. Á stigapalli er innangengt í aðalrými íbúðar en einnig rúmgott herbergi sem áður voru tvö og lítið mál að breyta aftur. Á stigapalli er einnig sér gestasnyrting.
Gengið er inn í rúmgóða forstofu þar sem stór gluggi birtir upp rýmið. Korkparket frá Þ.Þorgrímssyni er á allri íbúðinni nema baðherbergi og þvottahúsi.
Eldhús: Bjart eldhús með miklu skápaplássi, borðkrók og gluggum með opnanlegum fögum. Nýleg rúmgóð innrétting að hluta sem búið er ofni og combi örbylgjuofni í vinnuhæð, innbyggðum ísskáp og frystiskáp. Eldri hluti innréttingar er með helluborði, gufugleypi og uppþvottavél.
Stofa/borðstofa: Bæði stofan og borðstofan eru rúmgóðar í björtu samliggjandi rými. Úr stofu er útgengt út á suð-vestur svalir.
Hjónaherbergi: Hjónaherbergið er rúmgott með sérsmíðuðum dökkum fataskáp og útgengt út á litlar svalir.
Svefnherbergi: Að undanskildu hjónaherbergi eru tvö svefnherbergi, rúmgott barnaherbergi og annað sem er í dag bæði innangengt frá stigapalli og íbúð. Þar hefur veggur verið tekinn niður að hluta.
Baðherbergi: Baðherbergin eru tvö. Stærra baðherbergið er með flísalagt gólf og hluti veggja. Hvít innrétting með handlaug, hvítur skápur og baðkar með sturtuaðstöðu. Gestasalernið er með handlaug, hvítum skáp.
Þvottaherbergi: Sér þvottahús er innan íbúðar. Hvít innrétting með miklu skápaplássi, skolvaski og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gluggi með opnanlegu fagi og dúkur á gólfi.
Geymsla: Á jarðhæð sameignar er sérgeymsla með glugga og hillum.
Bílskúr: Bílskúrinn er með tengi fyrir rafhleðslu og nýlegri bílskúrshurð með gönguhurð og rafdrifnum hurðaopnara, vaskainnrétting með heitu og köldu vatni. Bílskúrinn er skráður skv. FMR 26,7 fm.
Að sögn eiganda hafa miklar framkvæmdir verið gerðar á húsinu. Hluti af þakpappa og norðurhlið hússins lagfærð árið 2016. Gluggar á austurhlið voru endurnýjaðir árið 2017 og hluti glugga á suðurhlið voru endurnýjaðir árið 2019. Sett var ný bílskúrshurð, nýir gluggar í bílskúr og bílskúrsgólf flotað árið 2019. Þrjár nýjar hurðir þar af tvær eldvarnar sett upp. Nýtt parket var lagt á íbúðina árið 2019. Unnið var í rafmagni og vatni í bílskúr ásamt því að drena við enda bílskúrs árið 2020. Hluti af eldhúsinnréttingu og öll þvottahúsinnrétting var endurnýjuð árið 2021.
Niðurlag: Virkilega falleg og skemmtileg sérhæð með bílskúr á vinsælum stað þar sem göngufæri er í flesta þjónustu, eitt vinsælasta útivistarsvæði Reykjavíkur og góðar almenningssamgöngur. Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson fasteignasala GSM 844-6516, netfang: [email protected]. Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér [email protected]
Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 1119460
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 96.800.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 64.940.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 79.650.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 601.616
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 160.9
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 19.04.2023
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 05.05.2023
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur : 23.04.2023
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 104
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Goðheimar 5
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : hæðir
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 1959
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 6
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 4
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 0
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 3
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Goðheimar
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 5
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina