30.03.2023 1113699

Söluskrá FastansVetrarbraut 11

815 Þorlákshöfn

hero

6 myndir

69.900.000

530.349 kr. / m²

30.03.2023 - 43 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 12.05.2023

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

131.8

Fermetrar

Fasteignasala

RE/MAX

[email protected]
662-6163
Bílskúr

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (s:662-6163/[email protected]) kynnir 3ja herbergja 131,8fm parhús með innbyggðum bílskúr í byggingu við Vetrarbraut 11, Þorlákshöfn. Húsið skilast fokhelt með grófjafnaðri lóð. Frábær staðsetning innst í botnlanga í glænýju hverfi í austur jaðri Þorlákshafnar þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla, íþróttaaðstöðu og falleg útivistarsvæði.  

Í húsinu verður forstofa, tvö svefnherbergi, rúmgott alrými (stofa/eldhús), baðherbergi og þvottahús ásamt bílskúr. Birt flatarmál hússins er 131,8fm og lóðarinnar 931,5fm.

Skil hússins miðast við eftirfarandi:

Frágangur utanhúss:
Sökklar: Sökklar eru steyptir og einangraðir að innan. Gólfplata: Gólfplata er steypt og einangruð með gólfhita í. Neysluvatnslagnir eru lagðar skv. verkfræðiteikningum, rör í rör.
Útveggir: Allir útveggir hússins eru úr timburgrind og einangraðir að innan. Húsið er klætt að utan með litaðri ál-smábáru frá Húsasmiðjunni (RAL 9005 - svart).
Gluggar og hurðir: Allir gluggar og útihurðir eru úr ál/tré. Tvöfalt verksmiðjugler frá viðurkenndum framleiðanda er í húsinu og flyst ábyrgð þess áfram til kaupenda. Framleiðandi er Ideal Combi. Litur
að utan er RAL 9005 (svart). Þak: Tvíhalla þak eru á húsinu, þakið er einangrað með 200mm steinull og klætt með Isola D-class pappa, og svörtu þakjárni. Þakkantur: Þakkantur er timburklæddur með listum. Niðurföll og þakrennur: Þakniðurföll eru úr áli frá Hagblikk og rennur eru úr plasti frá Húsasmiðjunni. Lóð: Lóð afhendist grófjöfnuð.

Frágangur innanhúss
Útveggir
: Allir útveggir gifsklæddir, sandspartslaðir, grunnaðir og málaðir eina umferð með ljósum lit. Berandi innveggir: Allir berandi innveggir gifsklæddir,sandspartlaðir grunnaðir og málaðir eina umferð með ljósum lit. Léttir innveggir: Léttir veggir eru gifsklæddir á stálstoðum 70mm, einangraðir, sandspartslaðir grunnaðir og málaðir eina umferð með ljósum lit. Loft: Loft alrýmis eru klædd gifsklædd, sandspörsluð og máluð með ljósum lit 2 umferðir. Gólf: Tilbúin til lagninga á gólfefnum (ekki rykbundin). Rafmagn: Rafmagnstafla er komin og búið að draga í fyrir vinnulýsingu. Pípulagnir: Skolp- og regnvatnslagnir eru tengdar fráveitukerfi götu. Hitalagnir eru í steyptri gólfplötu og tengdar við tengikistur. Klósettkassi fylgir ekki með. 

Hönnun, byggingarnefndar- og verkfræðiteikningar hússins unnar af Bent Larsen teiknistofa. Raflagnahönnun er unnin af Raflagnaþjónustu Suðurlands ehf.

Húsið skilast fokhelt með grófjafnaðri lóð.

Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða [email protected]

Um skoðunarskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 69.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.

 

Ljósmyndir

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010102

Parhús á 1. hæð
131

Fasteignamat 2025

38.850.000 kr.

Fasteignamat 2024

38.700.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband