19.03.2023 1109881
Eskihlíð 8
105 Reykjavík
23 myndir
76.900.000
676.937 kr. / m²
19.03.2023 - 5 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 24.03.2023
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
113.6m²
Fermetrar
Tegund
FjölbýliByggingarár
1955Fasteignamat
66.750.000Inngangur
SameiginlegurFastanúmer*
2029722Byggingarnúmer*
1004504Brunabótamat
40.800.000Verðmat Fastans
Reiknar verðmat...
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu:
Björt, vel skipulögð, og mikið endurnýjuð 113,6 fm. þriggja herbergja íbúð í fjölbýlishúsi við Eskihlíð 8A, 105 Reykjavík. Húsið hefur fengið gott viðhald undanfarin ár. Íbúðin er þriggja herbergja íbúð á annarri hæð í rótgrónu hverfi.
Eignin er skráð 113,6 fm. sem samanstendur af anddyri, holi, gangi, stofu og borðstofu, eldhúsi, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi og lítilli geymslu innan íbúðar. Sér geymsla (6,0 fm) og sameiginleg hjóla-vagnageymsla er í sameign.
Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið [email protected]
Smelltu á link til að skoða íbúðina í 3-D
Nánari lýsing:
Komið er inn í rúmgott og opið flísalagt/parketlagt anddyri og hol. Holið tengir saman eldhús, stofu og svefnherbergjagang. Stofa og borðstofa eru í opnu alrými sem er rúmgott og bjart með gegn heilu eikarparketi og útgengi út á vestur svalir. Eldhúsið er með flísum á gólfi og opið að holinu, gott skápapláss í innréttingu ásamt góðu vinnuplássi. Ofn er í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél, helluborð og vifta þar fyrir ofan. Á föst eyja við innréttingu sem hægt er að sitja við. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu. Eldhúsið er mjög bjart og rúmgott með glugga sem snýr í austurátt. Baðherbergið er flísalagt með dökkum flísum á gólfi og ljósum flísum í kringum sturtu. Stór veggspegill á einum vegg, upp hengt salerni og innrétting með handlaug, skúffum og tengi og aðstöðu fyrir þvottavél. Opnanlegur gluggi er inn á baðherbergi. Hjónaherbergið er rúmgott með fataskápum,. Barnaherbergi er einnig rúmgott með fataskáp. Samstætt gegn heilt eikarparket er á gólfum íbúðarinnar fyrir utan forstofu, eldhús og baðherbergi þar sem gólf eru flísalögð. Eldhúsinnréttingar, innihurðir og fataskápar eru hvít að lit.
Hjóla-vagnageymsla er í sameign, ásamt sér geymslu sem er (6,0 fm) og sameiginlegt þvottaaðstaða og þurrkherbergi. Sameign er vel um gengin. Sameiginlegur garður er snyrtilegur og með leiktækjum. Ljósleiðari er í húsinu og er aðkoman að húsinu snyrtileg og gott aðgengi að bílastæðum.
Um er að ræða flotta eign í barnvænu hverfi. Snyrtilegt umhverfi og stutt göngufæri er í leikskóla, skóla, heilsugæslu og ýmsa þjónustu. Eignin er mjög miðsvæðis og í göngufæri við miðborgina, Klambratún, Kringluna, Öskjuhlið og Valsheimilið.
Viðhald sem hefur farið fram undanfarin ár.
Árið 2023: Þak verður málað. Í eigninni sjálfri á eftir að flota og setja upp nýtt svalahandrið en búið að greiða fyrir þær framkvæmdir og munu þær verða kláraðar um vorið. Kostnaður við viðgerðir á íbúð vegna framkvæmda árið 2022 og 2023 voru um 2.200.000 og hefur verið greitt af seljanda.
Árið 2022, húsið var múrviðgert og málað að utan. Sömuleiðis var skipt um þakrennur. Gluggar og svalir og svalahandrið voru tekin í gegn sem voru komin á tíma.
Árið 2021, var lögn fóðruð út í götu.
Árið 2020, var geymsla í kjallara flotuð.
Árið 2019, voru frárennslislagnir og skólp endurnýjað ásamt því að drenað var við húsið.
Árið 2018, var stigagangur málaður og skipt um teppi í stigagangi.
Árið 2015, var íbúðin endurnýjuð að innan að miklu leiti í gegn. Td. var skipt um eldhúsinnréttingu baðinnréttingu, alla skápa og gólfefni að hluta til.
Nánari upplýsingar: Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali í síma 661-6056, [email protected]
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 1109881
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 76.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 40.800.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 66.750.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 676.937
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 113.6
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 19.03.2023
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 24.03.2023
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur : 19.03.2023
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 105
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Eskihlíð 8A
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 1955
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 4
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 2
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 0
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 1
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Eskihlíð
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 8
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina