Söluauglýsing: 1109174

Grasarimi 32

112 Reykjavík

Verð

137.000.000

Stærð

185.9

Fermetraverð

736.955 kr. / m²

Tegund

Einbýli

Fasteignamat

117.850.000

Fasteignasala

Fjárfesting Fasteignasala ehf

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 14 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Fjárfesting fasteignala s.562 4250 kynnir í einkasölu, einbýlishús á tveimur hæðum við Grasarima 32 í Grafarvogi. Fallegur garður og 30 fm. timburverönd út frá stofu. Húsið er með 3ja til 4ra herbergja íbúð á efri hæð  og  tvær íbúðir í kjallara. Húsið er skráð 185,9 fm, þar af 34 fm bílskúr. Í kjallara er  ca.100 fm. óskráð rými þar sem komið hefur verið fyrir tveimur innréttuðum íbúðum með sérinngangi og mögulegum aukatekjum.

Á aðalhæð hússins er forstofa, tvær samliggjandi stofur, tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, eldhús með borðkrók og þvottahús. Á neðri hæð eru tvær tveggja herbergja íbúðir og bílskúr.

Vinsamlegast pantið skoðunartíma hjá Guðmundi H Valtýssyni löggiltum fasteignasala s. 865 3022 eða [email protected]

Nánari lýsing efri hæð
Forstofa er flísalögð og með fataskáp. 
Rúmgott eldhús með vönduðum innréttingum og borðkrók. Þvottahús, innaf með innréttingum og útgengi út í garð.
Stofa og setustofa eru bjartar og rúmgóðar, þar sem gengið er út á ca. 30 fermetra suðursólpall úr setustofu
Hjónaherbergi er rúmgott með sér baðherbergi og góðum fataskápum, gengið er út á norður svalir úr hjónaherbergi, parket á gólfi.
Svefnherbergi er mjög rúmgott með parketi á gólfi.
Á svefnherbergisgangi eru mjög góðir fataskápar.

Nánari lýsing neðri hæð.
Á neðri hæð eru stúdíó íbúð og tveggja herbergja íbúð með sameiginlegum inngangi.
Í forstofu á neðri hæð er einnig þvottaaðstaða, gólf er flísalagt.
Í stúdíó íbúðinni er komið inn á lítinn gang, gengt dyrum er baðherbergi með sturtu og salerni og er það flísalagt. Á hægri hönd er gengið inn í opið rými þar sem er eldhús og stofa, harðparket er á gólfi.

Í tveggja herbergja íbúðinni er komið inn í stofu og þaðan er gengið yfir í eldhús, baðherbergi og svefnherbergi.
Stofan er rúmgóð með parketi á gólfi.
Eldhúsið er með góðri innréttingu og borðkrók, flísar á gólfi.
Baðherbergið er með sturtu og salerni og innréttingu við vask.
Svefnherbergið er lítið með harðparketi á gólfi. 

Bílskúrinn er rúmgóður, þar er heitt og kalt vatn, gólf er málað.
Garður er stór og gróinn og húsið hefur fengið góða umhirðu og viðhald.

Seljendur leita að 3ja til 4ra herbergja íbúð með lyftu og bílageymslu í Grafarvogi, helst við Sóleyjarima.
Allar nánari upplýsingar gefur Guðmundur H Valtýsson viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali s. 865 3022 eða [email protected]

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband