14.03.2023 1108270

Söluskrá FastansSmiðjustígur 11

845 Flúðir

hero

29 myndir

40.900.000

696.763 kr. / m²

14.03.2023 - 17 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 31.03.2023

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

58.7

Fermetrar

Fasteignasala

Gimli Fasteignasala

[email protected]
690 0811
Há lofthæð
Gólfhiti
Sólpallur

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Gimli fasteignasala og Ólafur B Blöndal löggiltur fasteignasali kynna: 
 
-----------------FLÚÐIR HRUNAMANNAHREPPI ------------------ 
 
SMIÐJUSTÍGUR 11 A - 11 E.
 
NÝ FULLBÚIN GLÆSILEG RAÐHÚS Á EINNI HÆÐ. 
TIL AFHENDINGAR STRAX FULLBÚIN AÐ UTAN SEM INNAN. 
 
Um er að ræða einstaklega vel skipulögð, smekklega útfærð og vönduð ný raðhús í grónu hverfi á Flúðum.  

 
Húsin eru í þremur stærðum: 
Tvö 2ja herbergja hús sem bæði eru endahús, brúttó stærð 58,7 fm.  Verð 40,9 millj. 
Tvö 3ja herbergja hús sem eru brúttó stærð 68,6 fm.og 67,1 fm.          Verð 45,9 - 46,5 millj. 
Eitt  4ra herbergja hús sem er brúttó stærð 79,4 fm.                             Verð 52,5 millj. 
 
Almennt: 
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar og afhendast fullbúnar samkvæmt byggingastigi 4 samkv. ÍST 51:2021 
Útveggir langhliða eru timbur en allir veggir milli íbúða eru steinsteyptir ásamt gaflveggjum. 
Húsin eru klædd að utan með grálituðu innbrenndu áli, þ.e. þak og útveggir ásamt því að gaflar og hluti bakhliðar eru viðarklædd með lerki.  
Sérgeymslur fylgja með hverri íbúð ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu í miðjurými hússins með útgengt í garðinn til suðurs. 
Útgengi er úr stofu íbúða í suðurgarð og fylgir sólpallur með hverri og einni íbúð.  
Mikil lofthæð er íbúðunum eða tæpir 4,40 mtr. sem eykur á rými, birtu og glæsileika, ásamt því að fallegir bitar setja smekklegan svip.  
Risgeymslur eru yfir hverri íbúð, þ.e. yfir baðherbergi.  
Smekklegir ljóskastarar eru í stofuloftum íbúða og í svefnherbergjum, innfelld loftljós á baðherbergi. 
Aðgengi að lagnaleið fyrir rafmagnskapal fyrir bílhleðslu er til staðar fyrir framan hvert hús.  
Sorpgeymslur verða uppsettar á bílaplani fyrir miðju húsalengjunnar.  
Bílaplön eru malbikuð og lóðin við húsið frágengin og tyrfð við enda og til suðurs.  
 
 
NÁNARI LÝSING ÍBÚÐA: 
Allar íbúðirnar skilast fullbúnar að innan, fullmálaðar með gólfefnum.  
Eldhús með hvítlökkuðum vönduðum innréttingum frá HTH með fræstum gripum: 
Vönduð eldhústæki frá AEG. Innbyggð uppþvottavél, ísskápur með frysti, spanhelluborð með fjórum hellum og veggofn.  
Baðherbergi eru fullbúin með flísum, walk in sturtu með glerveggjum, hvítlökkuð innrétting með spegli, ljósum og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.  
Gólfefni eru grátt harðparket á öllum rýmum nema baðherbergi.  
Íbúðirnar afhendast án fataskápa.  
Gólfhiti er í öllum rýmum íbúða. 

Handbók með ítarlegri upplýsingum á eftirfarandi slóð:
https://www.landstolpi.is/static/files/Radhus/handbok_smidjustigur-11-a-e.pdf
 
Flúðir og nágrenni eru sérlega heillandi svæði til búsetu vegna mjög góðra innviða sveitarfélagsins, þjónustu, skólamála, afþreyingar, náttúrufegurðar og veðursældar.   Mikil uppbygging er að eiga sér stað á Flúðum og má til gamans nefna að lóðum fyrir alls 25 íbúðir við Fannborgartanga, fyrsta áfanga Byggðar á Bríkum, var úthlutað á fundi sveitarstjórnar þann 2. febrúar 2023.  Alls bárust 150 umsóknir um þær lóðir sem auglýstar voru og er nú unnið hörðum höndum að úthlutun áfanga nr. 2.  


 
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Björn Blöndal Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali, í síma milli kl. 9:00 og 17:00 alla virka daga. 690 0811, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til [email protected] 
 
Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur... 
 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:  
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.  

Forsendur söluyfirlits:  
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.  
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.  

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

Engir þinglýstir kaupsamningar fundust á þessari eign

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

Ekki tókst að sækja eignir.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

  1. ViðbyggingSamþykkt

    Byggingarfulltrúi | Reykjavík

    Sótt er um leyfi til að stækka bíslag á mhl. 01, endurklæða með báruðu alusinkklæðningu, endurnýja glugga og breyta geymslu í kjallara í íbúðarrými sem á að vera hluti af 0101 og endurnýja mhl. 03 í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 11 við Smiðjustíg . Samþykki meðlóðar hafa dags. 20. sept. 2010, umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 8. okt. 2010 og umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 7. okt. 2010 fylgir. Stækkun: 6,0 ferm., 17,7 rúmm.

    7700 + 1363

  2. ViðbyggingFrestað

    Byggingarfulltrúi | Reykjavík

    Sótt er um leyfi til að stækka bíslag á mhl. 01, endurklæða með báruðu alusinkklæðningu, endurnýja glugga og breyta geymslu í kjallara í íbúðarrými sem á að vera hluti af 0101 og endurnýja mhl. 03 í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 11 við Smiðjustíg . Stækkun: XX ferm., XX rúmm.

    7700 + XX

  3. Nr. 11B garðveggur br 39332Samþykkt

    Byggingarfulltrúi | Reykjavík

    Sótt er um leyfi til að hækka og breyta áferð á garðvegg á suður- og vesturlóðarmörkum sbr. BN039332 dags. 27.01.2009 við húsið á lóð nr. 11b við Smiðjustíg. Bréf frá hönnuði dags. 25. sept. 2009, bréf frá burðarvirkishönnuði dags. 27. maí 2009 og rafrænt bréf frá Fasteign ríkissjóðs og Garðyrkjustjóri dags. 24. sept. 2009

  4. (fsp) svalir, stækkun kvisturFrestað

    Byggingarfulltrúi | Reykjavík

    Spurt er hvort leyft yrði að byggja svalir yfir aðalinngang á suðurgafli og stækka kvist á austurhlið til samræmis við kvist á vesturhlið íbúðarhússins á lóð nr. 11 við Smiðjustíg.

    Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa

  5. ReyndarteikningarAnnað

    Byggingarfulltrúi | Reykjavík

    Sótt er um leyfi fyrir núverandi innra og ytra fyrirkomulagi ásamt skráningu hússins nr. 11 (matshl. 01) á lóðinni nr. 11 við Smiðjustíg í samræmi við reyndarteikingar. Jafnframt er sótt um leyfi fyrir skráningu skúrs (matshl. 03) á lóðinni. Erindinu fylgir afsal dags. 10. apríl 2001.

    Var samþykkt 14 mars 2003 Samræmist ákvæðum laga nr 73/1997

  6. ReyndarteikningarFrestað

    Byggingarfulltrúi | Reykjavík

    Sótt er um leyfi fyrir núverandi innra og ytra fyrirkomulagi ásamt skráningu hússins nr. 11 (matshl. 01) á lóðinni nr. 11 við Smiðjustíg í samræmi við reyndarteikingar. Jafnframt er sótt um leyfi fyrir skráningu skúrs (matshl. 03) á lóðinni. Erindinu fylgir afsal dags. 10. apríl 2001.

  7. ReyndarteikningarFrestað

    Byggingarfulltrúi | Reykjavík

    Sótt er um leyfi fyrir núverandi innra og ytra fyrirkomulagi ásamt skráningu hússins nr. 11 (matshl. 01) á lóðinni nr. 11 við Smiðjustíg í samræmi við reyndarteikingar. Jafnframt er sótt um leyfi fyrir skráningu skúrs (matshl. 03) á lóðinni. Erindinu fylgir afsal dags. 10. apríl 2001.

  8. ReyndarteikningarFrestað

    Byggingarfulltrúi | Reykjavík

    Sótt er um leyfi fyrir núverandi innra og ytra fyrirkomulagi ásamt skráningu hússins nr. 11 (matshl. 01) á lóðinni nr. 11 við Smiðjustíg. Jafnframt er sótt um leyfi fyrir skráningu skúrs (matshl. 03) á lóðinni.


Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).

PóstlistiÁbendingarHafa samband