Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu: Íbúð 0101: Vel skipulögð, flott og vönduð þriggja herbergja 103,8 fm íbúð á fyrstu hæð ( jarðhæð ) með sér þvottahúsi í nýju 10 íbúða lyftufjölbýli við Urriðaholtsstræti 40, 210 Garðabæ.
Íbúð þessi er öll útbúinn á þann veg að hún sé aðgengileg fólki í hjólastólum og með henni fylgir stærra stæði í bílageymslu en hefðbundið bílastæði.Steinn á borði, gólfhiti, innfelld blöndunartæki í sturtu, góð lofthæð og sérsmíðaðar innréttingar ásamt stórum sérafnotareiti, timburverönd með skjólveggjum. Gler rennihurð sem aðskilur stofu frá timburverönd.
Sér stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni merkt B02 ásamt 4,7 fm sér geymslu í sameign merkt 0104.
Samtals heildarstærð á íbúð og geymslu er 108,5 fm.Allar íbúðir í húsinu eru komnar með gólfefni.
Á votrýmum eru flísar á gólfum og veggir flísalagðir að hluta þar sem á við. Parket og flísar koma frá Ebson ehf.
Smelltu á link til að skoða íbúð í 3DBókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið [email protected]
Nánari lýsing:
Forstofa og gangur er með parket á gólfi og fataskápum sem ná upp í loft.
Stofa og borðstofa er í opnu alrými með eldhúsi. Parket á gólfi. Innfelld lýsing þar sem á við. Út frá stofu er gler rennihurð út á stóra timburverönd með skjólveggjum.
Eldhúsinnrétting er á einum vegg,
bæði efri og neðri skápar með lýsingu þar á milli. Innréttingar ná upp í loft. Gert er ráð fyrir innbyggðum ísskáp og frysti sem og uppþvottavél ( frontur fylgir með til að setja framan á uppþvottavél ) Bökunar-ofn og combi-ofn í vinnuhæð. Borðplata er ljós kvartssteins plata frá Granítsmiðjunni. Undirlímdur vaskur og spanhelluborð með kolasíuviftu þar fyrir ofan.
Þvottahús er við endan á eldhúsinnréttingu í sér rými. Innrétting með aðstöðu og tengingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Gott skúffu- og skápapláss ásamt skolvaski. Flísar á gólfi.
Baðherbergi er með flísalagt gólf og flísalagða veggi að hluta. Upphengt salerni og handklæðaofn. Sturta með innfelldum blöndunartækjum og sturtugleri. Baðinnrétting er með skúffum og handlaug og speglaskáp þar fyrir ofan með borð lýsingu. Innfelld lýsing þar sem á við.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með parket á gólfi og glugga á tvo vegu ásamt fataskápum sem ná upp í loft. Fyrir miðju á vegg þar sem fataskápar eru, þar er gert ráð fyrir tengi og aðstöðu fyrir sjónvarp. Innfelld lýsing þar sem á við.
Herbergi II er rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Sér 4,7 fm geymsla staðsett á sömu hæð og íbúð, fylgir með íbúðinni.
Með íbúð fylgir stærra stæði í bílageymslu en hefðbundið bílastæði, merkt B02.Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Gólfhiti er á allri íbúðinni.
Innréttingar eru sérsmíðaðar frá VOKE3 frá Litháen. Léttir veggir eru gipsveggir. Borðplötur í eldhúsi eru ljósar kvartssteins plötur frá Granítsmiðjunni. Eldhústæki eru af gerðinni AEG frá Ormsson. Helluborð er AEG Spanhelluborð. Bakaraofn er AEG Veggofn, sjálfhreinsandi með kjötmæli. Combi ofn er AEG. Allt rafmagn full frágengið með innfelldum ljósum þar sem á við og skyldukúplum.
Húsið er fjölbýlishús upp á fjórar hæðir byggt samkvæmt arkítektarteikningum Davíðs Kristjáns Pitt. Húsið er staðsteypt á hefðbundinn hátt úr járnbendri steypu. Húsið er einangrað að utan og klætt með ál, flísum og timburklæðningu. Þak er svokallað viðsnúið þak, ábræddur tjörupappi, með vatnsþolinni einangrun. Þakkantur frágengin samkvæmt teikningu hönnuðar. Gluggar eru danskir álklæddir trégluggar frá Rationel. Gólfhiti er samkvæmt teikningu hönnuðar. Gólfhitalagnir eru ísteyptar á neðstu hæð hússins, á efri hæðum eru lagnir á einangrun og andrít flotað yfir gólfið. Lóð er sléttuð og tyrfð. Stígar hellulagðir með snjóbræðslu að hluta. Bílastæði á lóð eru fulllfrágengin.
Lóðarfrágangur var í höndum Lólalausna ehf.
Byggingaraðili er Vesturvík ehf.
Byggingarmeistari er Pétur Þórarinsson, Haghús ehf.
Byggingarstjóri er Anton Kjartansson, Verkþing ehf.
Umhverfið: Betri staðsetning á höfuðborgarsvæðinu fyrir náttúruunnendur og útivistarfólk er vandfundin. Urriðaholt liggur við friðlandið í Heiðmörk sem er stærsta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins og er tengt beint við það með göngu- og hjólastígum. Glæsilegir golfvellir, vötn og hæðir umlykja svæðið. Góðar samgönguæðar tengja svo hverfið við alla staði borgarinnar. Í göngufæri er svo Urriðaholtsskóli sem starfar á tveimur skólastigum, bæði á leik- og grunnskólastigi.
Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald, þegar það verður lagt á. Skipulagsgjald er 0,3% af brunabótamati íbúðar.
Nánari upplýsingar veita: Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma
661-6056 /
[email protected] og Gunnar Sverrir löggiltur fasteignasali í síma
862-2001 /
[email protected]Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar má finna á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eignanúmer : 1096370
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 86.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 0
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 58.350.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 800.922
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 108.5
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 08.02.2023
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 17.02.2023
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur : 09.02.2023
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 210
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Urriðaholtsstræti 40
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 2022
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 3
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 2
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 0
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 1
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Urriðaholtsstræti
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 40
Húsnúmer eignarinnar.