07.02.2023 1095904

Söluskrá FastansNaustavör 58

200 Kópavogur

hero

12 myndir

141.000.000

1.090.487 kr. / m²

07.02.2023 - 24 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 03.03.2023

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

129.3

Fermetrar

Fasteignasala

Fasteignamarkaðurinn

[email protected]
570-4500
Lyfta
Svalir
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Fasteignamarkaðurinn ehf. sími 570-4500 kynnir til sölu glæsilega 3ja - 4ra herbergja íbúð á 4. hæð (efstu) í nýrri og glæsilegri 4ra hæða nýbyggingu við Naustavör 58 í Kópavogi. Íbúðin er 120,8 fermetrar auk 8,5 fermetra sér geymslu í kjallara. Samtals 129,3 fermetrar.

Eigninni fylgja 13,8 fermetra vestur svalir og lyfta er í húsinu. Sérmerkt bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu fylgir merkt B-01.

Eignin skiptist í: forstofu, sjónvarpshol, svefnherbergi, hjónaherbergi með fataherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi m/innréttingu, eldhús með eyju, stofu og borðstofu.

Allar innréttingar eru frá Brúnás, eldhústæki eru frá AEG og blöndunartæki frá Tengi.  Íbúðin skilast með flísum á gólfi á baði og þvottaherbergi. Sjá nánar í skilalýsingu. Hægt er að skoða nánar inná
www.bygg.is 

Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun er á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]


Naustavör 52-58, SKILALÝSING 25.3.2022
  • Frágangur innanhúss íbúða

  • Gólfefni

  • Íbúðin sjálf verður afhent án gólfefna, nema á baðherbergi og þvottahúsi verða flísar frá Álfaborg.

  • Veggir

  • Útveggir íbúðarinnar eru sandsparslaðir. Léttir innveggir eru hlaðnir úr vikur- eða gjallplötum, grófpússaðir og sandsparslaðir eða hefðbundnir gipsplötuveggir sparslaðir. Veggir eru grunnaðir og málaðir með tveimur yfirferðum af akrýlmálningu, gljástig 5 eða sambærilegt.

  • Loft

  • Steypt loft eru slípuð, og slétt sandspörtluð. Loft eru grunnuð og máluð með tveimur yfirferðum af plastmálningu, gljástig 2 eða sambærilegt. Loft og veggir á baðherbergjum og þvottahúsum eru máluð með viðurkenndri votrýmismálningu. Á völdum stöðum og íbúðum er hluti lofta hljóðloft á 4h og 3h

  • Gler

  • Tvöfalt hefðbundið K-gler, verksmiðjugler er í öllum gluggum. Ábyrgð framleiðanda er samkvæmt skilmálum Samverk glerframleiðanda.

  • Sólbekkir

  • Sólbekkir verða þar sem við á úr plastlögðum spónaplötum.

  • Hurðir

  • Inngangshurð EICS-30, EICS-35 eða EICS-42 eftir því sem við á. Inngangshurð inn í íbúðina verður spónlögð. Innihurðar eru yfirfelldar, sléttar og sprautulakkaðar hvítar. Í sumum íbúðum eru innri anddyrishurðar eins og teikningar arkitekts sýna og þær eru með glerramma í hurðarspjaldi þar sem við á. Hurðir eru frá PARKA.

  • Fataskápar

  • Fataskápur er í forstofu og svefnherbergjum. Í sumum hjónaherbergjum eru fataherbergi með rennihurð fyrir. Innréttingar verða frá Brúnás og eru að innan úr ljósgráum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir verða spónlagðar eða sprautulakkaðar þar sem við á.

  • Eldhús

  • Eldhúsinnrétting verður frá Brúnás og að innan úr ljósgráum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir verða spónlagðar eða sprautulakkaðar. Borðplötur verða úr Virgo Quartz steini frá S. Helgasyni. Vaskur og blöndunartæki verða í innréttingu frá Tengi. Vaskur verður undirlímdur í borðplötu. Einnig mun fylgja  helluborð, ofn með blæstri, örbylgjuofn, innbyggð uppþvottavél með áklæddum fronti ásamt ljósagufugleypi frá Bræðrunum Ormsson. Ísskápar fylgja þar sem þeir eru innbyggðir í innréttingu.

  • Baðherbergi

  • Á baðherbergi er gólf flísalagt og verða veggir flísalagðir upp í loft. Innrétting frá Brúnás verður að innan úr ljósgráum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir verða sprautulakkaðar. Borðplötur eru úr Virgo Quartz steini. Á baðherbergi verða ýmist speglaskápar eða speglar eftir því sem við á. Handlaug ásamt hitastýrðu blöndunartæki verður í innréttingu eftir því sem við á frá Tengi. Handklæðaofn þar sem við á, upphengt og innbyggt salerni með hæglokandi setu ásamt flísalögðum sturtubotni með sturtuhlið úr gleri. Innbyggt blöndunartæki verður í sturtu frá Tengi.

  • Þvottahús

  • Í þvottahúsi er gólf flísalagt og innréttingar frá Brúnás úr ljósgráum spónaplötum með ræstivask og blöndunartæki í borði. Ekki eru ræstivaskar í innréttingu í sameiginlegu þvottahúsi/ baði.  Borðplata verður úr plasti. Niðurfall er í gólfi og tengingar fyrir þvottavél og þurrkara, gert er ráð fyrir barkalausum þurrkara.

  • Sérgeymsla

  • Steypt loft, veggir og gólf í sérgeymslum eru hreinsuð og máluð. Skilveggir á milli geymslna eru ýmist steyptir eða með timburgrind og málaðri plötuklæðningu án innréttinga. Sérgeymslur inn af bílastæðum eru án innréttinga með stálhurð þar sem við á. Rafmagnstengill er í sérgeymslu. 

  • Hitakerfi

  • Íbúðirnar eru upphitaðar með gólfhita en sameign með ofnakerfi skv. teikningum. Gólfhita- sem og ofnakerfi í sameign fylgir frágengið og verða hitastýrðir lokar á því.

  • Loftræsi-, vatns- og þrifalagnir

  • Loftræsi-, vatns, - og þrifalagnir fylgja frágengnar skv. teikningum. Forhitari er á heitu neysluvatni.

  • Rafmagns- og sjónvarpslagnir

  • Rafmagns- og sjónvarpslögn fylgir frágengin með einum mynddyrasíma í íbúð. Loftnetstengill verður í alrými ásamt tölvutengli. Tölvutenglar verða í herbergjum. Ljósleiðari verður í húsinu. Innfelld lýsing í alrými ( stofu og eldhúsi) samkvæmt teikningu er með dimmum.

  • Frágangur sameignar

  • Anddyri og stigahús

  • Steyptir innveggir í sameign og geymslum eru hreinsaðir og málaðir. Sameign á hverri íbúðarhæð og stigagangur eru sandspartlaðir, grunnaðir og málaðir tveimur yfirferðum af plastmálningu. Anddyri er flísalagt með uppsettum póstkössum, íbúðartöflu og dyrabjöllu. Stigar og stigapallar eru teppalagðir en það er gert nokkru eftir að íbúðareigendur hafa flutt inn. Stigahlaup að kjallara er flíslagt. Á stigum og pöllum eru uppsett handrið. Raflögn í sameign fylgir frágengin með ljósakúplum þar sem venja er að hafa þá ásamt lýsingu í lofti þar sem við á. Loftræsilagnir eru lagðar samkvæmt teikningum.

  • Hurðir

  • Allar útihurðar fylgja frágengnar. Aðalhurð er úr áli. Innri anddyrishurð er úr áli með mótorknúinni hurðarpumpu. Hurðir frá bílgeymslu gegnum brunastúkur verða með rafmagnsopnun.

  • Lyftur

  • Fólkslyfta er í húsinu af gerðinni Mono Space eða sambærileg frá Kone og verður tilbúin til notkunar í stigahúsi.

  • Lokað bílageymsluhús

  • Bílgeymsla er í kjallara hús með máluðu lofti og Herakustik þar sem við á. Útveggir verða einangraðir ýmist að utan- eða innanverðu eftir því sem við á. Þeir eru hreinsaðir og slípaðir að innanverðu og málaðir. Hitablásarar og loftræsikerfi fylgir frágengið í samræmi við teikningar. Gólf er steypt og vélslípað án frekari meðhöndlunar en bílastæði eru merkt. Sprungur geta myndast á yfirborði gólfsins sem verða ekki meðhöndlaðar frekar. Hurð fyrir bílgeymslu fylgir frágengin með sjálfvirkum opnunarbúnaði og einni fjarstýringu á hvert stæði. Rafmagnstengill fylgir hverju stæði.

  • Hjóla- og vagnageymslur

  • Steyptir innveggir í hjóla- og vagnageymslu eru hreinsaðir slípaðir og málaðir. Gólf eru slípuð og máluð.

  • Sorp og sorpgeymslur

  • Sorpgeymsla er í bílageymslu. Veggir eru með múrfiltun og málaðir.  Gólf eru slípuð og lögð epoxy.

  • Frágangur utanhúss

  • Klæðning og einangrun

  • Útveggir verða einangraðir ýmist að utan- eða innanverðu eftir því sem við á og álklætt að mestu að utan. Kjallaraveggir og veggir 1 hæðar að hluta eru með múrfiltun og í steypulit.

  • Steypt þak

  • Þakplata er steypt með vatnshalla að niðurföllum. Ofaná steypa plötu kemur tvöfalt lag af eldsoðnum tjörupappa. Einangrun er 200 mm rakaþolin þrýstieinangrun. Ofan á einangrun kemur vatnsvarnardúkur með öndun, einangrun er fergt með sjávarmöl/völusteinum. Niðurföll eru tengd regnvatnslögnum.

  • Svalir

  • Svalagólf eru steypt og slípuð eða með múrfiltun eftir því sem við á. Svalahandrið eru úr áli og gleri frá Ál og gler eða sambærilegt. Útiljós og rafmagnstengill er á svölum. Svalaloft eru slípuð, grunnuð og máluð. Þaksvalir eru með gagnvarði furu þar sem við á.                               

  •  
  • Svalalokun

  • Möguleiki er á svalalokun samkvæmt aðalteikningum arkitekts garðmegin. Glerlokun yrði þá frá  Ál og gleri sem kaupendur geta keypt aukalega eftir á. Sjá nánar á aðalteikningum arkitekts.

  • Gluggar

  • Gluggar eru álklæddir timburgluggar frá Berki. Opnanleg gluggafög fylgja frágengin, svo og allar úti- og svalahurðir að fullu frágengnar með þéttiköntum.

  • Lóð

  • Lóð verður fullfrágenginn samkvæmt leiðbeinandi teikningu landslagsarkitekts. Stéttar næst húsi verða hellulagðar og snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið samkvæmt teikningu. Bílastæði eru malbikuð. Ekki verða hlið eða hurðir í gönguopum inn á timburverandir á sérafnotareitum íbúða.

  • Handbók hússins

  • Útbúinn verður sérstök handbók vegna hússins þar sem fram koma helstu upplýsingar um söluaðila efnis sem notað var í húsinu ásamt skýringum á helsta búnaði. Upplýsingar eru oft sóttar á heimasíður hinna ýmsu aðila og geta því slæðst með allskonar smávægilegar villur varðandi tæki og búnað þeirra og ber byggingarfélagið ekki ábyrgð á þeim.

  • Hönnuðir

  • Arkitekt: Guðmundur Gunnlaugsson. Archus.
    Verkfræðihönnun: VEKTOR - hönnun & ráðgjöf.
    Raflagnahönnun: Svanbjörn Einarsson, Tesla ehf.
    Lóðahönnun: Inga Rut Gylfadóttir, Landslag ehf.

  • Teikningar

  • Í kaupsamningi kemur fram hvað teikningar arkitekts eru í gildi á þeim tíma þegar kaupsamningur er gerður. Á byggingartíma hússins áskilur byggingarfélagið sér rétt til að breyta þessum teikningum í samráði við arkitekt vegna tæknilegra úrfærsla sem upp geta komið í framkvæmdinni. Teikningar annarra hönnuða geta líka breyst vegna tæknilegra útfærsla og eða breytinga vegna búnaðar sem síðar er valinn inn í eða utan á húsið.

  • Byggingaraðili

  • Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf., www.bygg.is
    Verkefnastjóri Bygg  Konráð Jón Sigurðsson [email protected]
    Verkefnastjóri Bygg Skarphéðinn Njálsson [email protected]


    Frekari upplýsingar um efnisval og annað má nálgast hjá verkefnastjóra Byggingarfélagsins.

  • Áætlaður afhendingartími

  • Áætlað er að íbúðir að Naustavör 52-58 verði afhentar á tímabilinu sep. 2022 – feb.2023. Hús nr.52 fyrst í sept.2022, 54 í okt.2022. og 56 og 58 í feb. 2023 eða fyrr.

     Sameign, lóð og bílgeymsla verður afhent samhliða afhendingu síðustu íbúða í stigagangi nr.58.

    Allar breytingar á íbúðinni sjálfri og einstaka hluta í henni að ósk kaupanda  hefur  áhrif á afhendingartíma til seinkunnar. Allar breytingar sem kaupendur hafa hug á að gera þarf að gera í samráði við verkefnastjóra skriflega og mun hann meta hvort þær séu framkvæmanlegar. Íbúðareigandi er sjálfur ábyrgur fyrir því að bæði viðkomandi söluaðilar efnis ásamt verkefnastjóra byggingarfélagsins séu upplýstir um allar breytingar með pósti ekki SMS.  Íbúðareigandi er sjálfur ábyrgur vegna viðbótarkostnaðar sem getur myndast hjá byggingarfélaginu vegna þessara breytinga. Byggingarfélagið tekur ekki á sig ábyrgð vegna skemmda sem kunna að verða á búnaði eða efnum sem íbúðareigandi hefur  sjálfur sett inn í íbúðina áður en formleg afhending hefur farið fram.

  • Til áréttingar
  • Seljandi áskilur sér rétt til að láta breyta teikningum á byggingartímanum í samráði við arkitekta og hönnuði að fengnu samþykki byggingaryfirvalda sé þess þörf vegna tæknilegra útfærslna.
  • Í nýjum íbúðum er mikill byggingaraki í steypuvirkinu. Þessi raki mun hverfa á einu til tveimur árum að mestu en það er þó algjörlega háð útloftun í íbúðinni. Nauðsynlegt er að fylgjast með vatnsmyndun (döggun) innan á gleri. Ef mikil bleyta safnast saman neðst á glerinu getur vatnið skemmt í gluggann, gólfefni, málningu og spörslun. Því er mikilvægt að hafa gluggafögin lítillega opin til að tryggja útloftun, sérstaklega þegar tekur að kólna.
  • Ekki má setja heita potta eða pönnur beint ofan á steinplötur í eldhúsum vegna sprunguhættu.
  • Íbúðareigandi gæti þurft að hreinsa sigti á blöndunartækjum nokkrum sinnum eftir að flutt er inn í íbúðina og fylgjast með niðurföllum í þvottahúsi, baði og úti á svölum.
  • Steypt svalagólf er nauðsynlegt að sílanbera á ca. 2ja ára fresti.
  • Nauðsynlegt er að sílanbera múrhúðun á ca. 2ja ára fresti.
  • Nauðsynlegt er að smyrja lamir á opnanlegum fögum og svalahurðum svo þau festist ekki.
  • Íbúðaeigendum er kunnugt um  dælur í dælubrunnum sem þarf að fylgjast með skipulega svo og niðurföll sem þarf að hreinsa sem og öryggisdælu.
  • Við afhendingu skal kaupandi skoða íbúðina ítarlega.  Ef einhverjir ágallar finnast skal kaupandi, áður en hann hefur framkvæmdir í íbúðinni, afhenda fulltrúa Bygg undirritað eyðublað þar sem þessir ágallar eru taldir upp.
  • Varast ber að setja plastfilmu eða merkingu á gler eða setja gardínur þétt að gleri vegna rakamyndunar og sprunguhættu.
  • Aðalhurðir á hverju stigahúsi svo og bílageymsluhurðir verður að fylgjast vel með og umgangast þannig að engar þvinganir verði við umgang þeirra.  Reglulegt viðhald hurðanna er nauðsynlegt.
  • Hafi kaupandi einhver umkvörtunarefni fram að færa vegna hinnar seldu íbúðar, skal hann strax beina umkvörtun sinni til verkstjóra- og  verkefnistjóra hússins.
  • Íbúðarkaupendur gera sér grein fyrir að í sérgeymslum og öðrum geymslum geta verið lagnir í loftum og á veggjum sem nauðsynlegar eru vegna lagnaleiða hússins.
  • Fylgja þarf fyrirmælum efnissala við frágang gólfefna.

Ljósmyndir

Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

Pnr.HeimilisfangKaupverðStærðFermetraverðTegundFastan.Dags.Noth.
141.000.000 kr.129.30 1.090.487 kr./m²251218926.09.2023

132.000.000 kr.129.00 1.023.256 kr./m²251216711.10.2023

Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007

Sótt frá Þjóðskrá

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010110

Íbúð á 1. hæð
110

Fasteignamat 2025

100.200.000 kr.

Fasteignamat 2024

99.600.000 kr.

010111

Íbúð á 1. hæð
110

Fasteignamat 2025

99.400.000 kr.

Fasteignamat 2024

98.800.000 kr.

010210

Íbúð á 2. hæð
129

Fasteignamat 2025

108.800.000 kr.

Fasteignamat 2024

108.050.000 kr.

010211

Íbúð á 2. hæð
94

Fasteignamat 2025

90.150.000 kr.

Fasteignamat 2024

89.700.000 kr.

010212

Íbúð á 2. hæð
101

Fasteignamat 2025

93.350.000 kr.

Fasteignamat 2024

92.850.000 kr.

010310

Íbúð á 3. hæð
128

Fasteignamat 2025

108.700.000 kr.

Fasteignamat 2024

108.000.000 kr.

010311

Íbúð á 3. hæð
94

Fasteignamat 2025

90.350.000 kr.

Fasteignamat 2024

89.900.000 kr.

010312

Íbúð á 3. hæð
101

Fasteignamat 2025

93.500.000 kr.

Fasteignamat 2024

93.000.000 kr.

010408

Íbúð á 4. hæð
129

Fasteignamat 2025

112.250.000 kr.

Fasteignamat 2024

111.500.000 kr.

010409

Íbúð á 4. hæð
96

Fasteignamat 2025

93.500.000 kr.

Fasteignamat 2024

93.050.000 kr.

010410

Íbúð á 4. hæð
103

Fasteignamat 2025

96.900.000 kr.

Fasteignamat 2024

96.400.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.


    Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).

    PóstlistiÁbendingarHafa samband