20.01.2023 1091109
Hraungata 17
210 Garðabær
29 myndir
88.900.000
734.711 kr. / m²
20.01.2023 - 28 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 17.02.2023
3
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
121m²
Fermetrar
Tegund
FjölbýliByggingarár
2021Fasteignamat
74.550.000Inngangur
SameiginlegurFastanúmer*
2515205Byggingarnúmer*
1205943Brunabótamat
68.000.000Verðmat Fastans
Reiknar verðmat...
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 121fm. og þar af er geymsla 5,2fm.
Nánar um eignina:
Forstofugangur með innbyggðum fataskáp og parket á gólfi.
Gestasnyrting með glugga, innrétting og flísalagt í hólf og gólf.
Stórt opið rými sem er eldhús, stofa og borðstofa.
Eldhús með fallegri innréttingu frá Axis, eyja, innbyggð uppþvottavél, gufugleypir, tvennir ofnar og parket á gólfi. Borðplata á eyju verður frágengin fyrir afhendingu eignarinnar.
Stofa rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Útgengt er út á góðar suðursvalir úr stofunni.
Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Svenherbergi II með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi III með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, innrétting og innangeng sturta.
Þvottahús innaf baðherbergi með innréttingu og flísum á gólf.
Geymsla íbúðar er í kjallara hússins 5,2fm.
Urriðaholt er einstaklega vel staðsett þar sem náttúran umlykur hverfið á þrjá vegu. Frábær útivistarsvæði í göngufæri og barnvæn leiksvæði. Stutt er í úrval verslanna og þjónustu í Kauptúni. Skipulag Urriðaholts hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir gott samspil við náttúruna fyrir þar sem áhersla á lífsgæði er í fyrirrúmi. Frekari upplýsingar um Urriðaholt má finna hér.
Stutt lýsing á Hraungötu 15-17.
Húsið er 15 íbúða vandað fjölbýlishús, hannað af Kristni Ragnarssyni arkitekt, KRark. Allar íbúðir eru með svölum eða verönd og margar með fallegu útsýni. Frístandandi sér loftræsting fyrir allar íbúðir sem eykur mjög lífsgæði. Sameiginleg bílastæði á lóðinni. Einnig er sameiginleg hjólageymsla.
Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis ásamt vaski og Grohe blöndunartækjum frá Byko. Helluborð, blástursofn og gufugleypir eru af gerðinni AEG frá Ormsson. Allir fataskápar og baðinnréttingar eru sérsmíðaðar frá Axis. Innfelld LED lýsing í loftum. Baðherbergi og þvottahús eru flísalögð með 60x40 cm flísum á gólfi og veggir að hluta upp í loft. Svalahandrið úr gleri.
Í íbúðunum er frístandandi loftræstikerfi sem stuðlar að heilbrigði húss og íbúa, auk orkusparnaðar. Kerfið er með varmaendurvinnslu og endurnýtir við bestu aðstæður 80% af varmanum. Í því eru vandaðar loftsíur sem sía allt loft sem kemur inn. Ekki á því að vera þörf á að opna glugga í íbúðunum til loftunnar.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir lgfs. í síma 899-5949 eða á netfanginu [email protected]
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
Pnr. | Heimilisfang | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Tegund | Fastan. | Dags. | Noth. |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
79.900.000 kr. | 121.00 m² | 660.331 kr./m² | Fjölbýli | 2515205 | 07.06.2022 | ✅ | ||
79.200.000 kr. | 121.00 m² | 654.545 kr./m² | Fjölbýli | 2515205 | 04.11.2023 | ✅ |
Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007
Sótt frá Þjóðskrá
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Verðsaga
Byggt á þinglýstum kaupsamningum
Byggir á kaupsamningum sem deila heimilsfangi og stærð
Sótt frá Þjóðskrá
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Auglýsingasaga
Endurskráningar sömu eignar á mismunandi verð- og tímabilum
Fjöldi skráninga | Ásett verð | Fermetraverð | Tímabil. |
---|---|---|---|
2 skráningar | 89.790.000 kr. | 742.066 kr./m² | 26.05.2023 - 16.06.2023 |
2 skráningar | 84.900.000 kr. | 701.653 kr./m² | 17.03.2023 - 28.04.2023 |
2 skráningar | 86.900.000 kr. | 718.182 kr./m² | 16.02.2023 - 17.02.2023 |
1 skráningar | 88.900.000 kr. | 734.711 kr./m² | 20.01.2023 - 17.02.2023 |
5 skráningar | 79.900.000 kr. | 660.331 kr./m² | 01.03.2022 - 25.03.2022 |
Eignin hefur verið auglýst / endurskráð 12 sinnum síðan 2014.
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 1091109
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 88.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 68.000.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 74.550.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 734.711
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 121
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 20.01.2023
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 17.02.2023
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur :
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 210
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Hraungata 17
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 2021
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 4
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 3
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 0
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 3
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Hraungata
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 17
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina
Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.
Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).