Söluauglýsing: 1086554

Esjubraut 2

300 Akranes

Verð

99.000.000

Stærð

233.9

Fermetraverð

423.258 kr. / m²

Tegund

Einbýli

Fasteignamat

74.750.000

Fasteignasala

Miklaborg

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 2 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Miklaborg kynnir: Glæsilegt einbýlishús í modenisma stíl með sérlega skjólsælum og fallegum garði. Húsið er að mestu á einni hæð en bílskúr, þvottahús og herbergi með baði eru á neðri hæð. Þar er sér inngangur og möguleiki á leigutekjum. Húsið hefur fengið gott viðhald og glæsilegt sjávar útsýni er úr gluggum að framanverðu, eldhúsi og borðstofu/stofu. Vandaðir gluggar úr harðvið og gólfsíðir gluggar og rennihurð út á trépallpall og garð frá stofu sem snýr á móti suðri. Bókið skoðun: Elín Alfreðsdóttir lgf í síma 899-3090 eða [email protected]

Húsið er teiknað af Guðmundi Kr Kristinssyni arkitekt. Eignin skiptist í anddyri með rafmagnsgólfhita, opið hol þar sem svefnherbergisálma er á vinstri hönd en stofa, borðstofa og eldhús á hægri hönd. Innaf stofu er einnig opið herbergi sem er noðað sem skrifstofa. Því herbergi mætti loka ef það hentar að fjölga svefnherbergjum. Á svefnherbergisgangi eru tvö barnaherbergi og rúmgott hjónaherbergi. Baðherbergi með glugga og hol með glugga og sjávarútsýni, en það hol var áður notað sem skrifstofa og herbergið innaf stofu sem sjónvarpsherbergi. Frá holi er stigi niður þar sem eru þvottahús með gluggum og hurð og snyrting með handlaug. Innaf þvottahúsi er unglingaherbergi og úr því er innangent í bílskúr. Innaf bílskúr er búið að stúka af herbergi. Það herbergi er gluggalaust en vel loftræst með hraðastilltum mótor. Þakkantur er koparklæddur. Nýleg bílskúrshurð með rafmagnsmótor. Búið er að leggja vatn og rafmagn í bílskúr og búið að gera ráð fyrir lögnum fyrir heitan pott í garði ásamt rafmagni og frárennsli. Geymsla undir útitröppum   

*Frárennslislagnir endurnýjaðar alveg innanhúss í PVC 2020

*Nýlegt rafmagn að hluta til og endurnýjuð rafmagnstafla og 2 nýlegar greinatöflur í eldhúsi.

*Nýtt gler að mestu 2020-2022 (2 rúður á baðherbergið fylgja)

*Neysluvatnslagnir og ofnalagnir endurnýjaðar. 

*Nýr þakdúkur 2021

Eldhús er frá Alno og steinn á borðum. Boðkrókur með sjávarútsýni. Forstofa með rafmagnsgólfhita og nýlegum skápum. Baðherbergi var endurnýjað 2017 og þar er vönduð innrétting frá Ísleifi Jónssyni. Þvottahús endurnýjað 2021. 

Sérlega fallegt hönnunarhús sem er þess virði að skoða. Gott útsýni og skjólsæll garður. Húsið er að mestu á einni hæð og með allt að 5-6 svefnherbergjum. Hús sem fengið hefur gott viðhald. 

Nánari upplýsingar veitir Elín Alfreðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-3090 eða [email protected]

  

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband