Söluauglýsing: 1085500

Árskógar 8

109 Reykjavík

Verð

68.500.000

Stærð

93.6

Fermetraverð

731.838 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli

Fasteignamat

47.500.000

Fasteignasala

Híbýli Fasteignasala

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 155 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir í einkasölu:

Falleg, björt  og rúmgóð 3ja herbergja endaíbúð á 4. hæð við Árskóga 8, Reykjavík. Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Um er að ræða 93,6 fermetra íbúð í lyftuhúsi á 4. hæð, sem skiptist í  forstofu/hol, 2 svefnherbergi, rúmgóða stofu, með norðursvölum þar útaf með  glugga í tvær áttir, eldhús, baðherbergi með þvottahúsi innaf ásamt geymslu í kjallara. 

Nánari lýsing:
Forstofa/hol: Parket á gólfi og góðir fataskápar.
Stofa: Rúmgóð stofa með stórum gluggum til norðurs og austurs, svalir þar útaf.
Eldhús: hvít innrétting með ljósum viðarköntum, flísar á milli efri og neðri skápa.
Svefnherbergi I: Gott herbergi við hol, fataskápar, gluggi til austurs. 
Svefnherbergi II: Rúmgott og bjart svefnherbergi, stórir fataskápar úr beyki, parket á gólfi. 
Baðherbergi: Flísalagt að hluta, sturta, góð innrétting með niðurfelldum vaski. Þvottahús er innaf baðherbergi.
Sérgeymsla:  Í kjallara er geymsla, lakkað gólf.

Húsið var nýlega málað húsið og viðgert að utan og skipt um hluta glerja, lyftur teknar í gegn og dren endurnýjað. Innangengt er í félagsmiðstöðina Árskóga þar sem er skipulagt félagsstarf á vegum Reykjavíkurborgar og hægt er að fá keyptan mat og síðdegiskaffi virka daga. Ýmis þjónusta er í boði í húsinu og er þar m.a. hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa. Húsvörður er í byggingunni. Eigninni fylgir hlutdeild í samkomusal á jarðhæð auk hlutdeildar í húsvarðaríbúð. Íbúar við Árskóga 6 og 8 standa fyrir fjölbreyttu félagslífi og eru viðburðir í húsinu á þeirra vegum. Stutt er í helstu þjónustu í Mjóddinni, s.s. heilsugæslu, verslanir og fl. Góð eign á góðum  stað. 

Kvöð er á eigninni um að kaupendur skulu vera 60 ára eða eldri og félagar í Félagi eldri borgara í Reykjavík.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu [email protected]
Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800 / [email protected]


 

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband