Söluauglýsing: 1083517

Hraunás 10

210 Garðabær

Verð

169.900.000

Stærð

267.5

Fermetraverð

635.140 kr. / m²

Tegund

Rað/Par

Fasteignamat

124.150.000

Fasteignasala

Miklaborg

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 43 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Miklaborg kynnir: Virkilega glæsilegt 267,5 fermetra parhús á tveimur hæðum með fjórum svefnherbergjum, glæsilegum stofum, þremur baðherbergjum og innbyggðum bílskúr á frábærum útsýnisstað innst í götu við Hraunás í Garðabæ. Verulega aukin lofthæð er á efri hæð hússins. Gólfsíðir gluggar að hluta í stofum á efri hæð með og mjög stórar svalir til suðurs og vesturs. Glæsilegt útsýni er úr stofu og af svölum. Fallegur og gróinn garður með stórri viðarverönd. Hellulagt bílastæði með hitalögnum er fyrir framan húsið og þrjú hellulögð gestastæði eru þar við hliðina.Nánari upplýsingar veitir Óskar í gegnum netfangið [email protected] eða í síma 691-1931

Lýsing eignar: Efri hæð: Forstofa: flísalögð og björt. Innri forstofa: flísalögð og með fataskápum. Gestasnyrting:  flísalagt gólf og mosaiklagðir veggir. Vaskborð með frístandandi vaski á og skúffum undir. Fastur spegill á einum vegg í gestasnyrtingu. Samliggjandi stofur: mjög stórar, bjartar og glæsilegar með mjög mikilli lofthæð og innfelldri lýsingu í loftum. Mjög fallegur arinn er í stofum. Úr stofum er fallegt útsýni yfir hraunið, að Álftanesi, út á sjóinn og að Snæfellsjökli.  Úr stofum er einnig útgengi á mjög stórar og skjólsælar svalir til suðurs og vesturs. Eldhús: opið við stofu að hluta, flísalagt og með góðri borðaðstöðu með föstum leðurklæddum bekk á einum vegg. Vandaðar hvítar innréttingar og eyja með helluborði og háfi og vönduð tæki í eldhúsi, þ.m.t. innbyggð uppþvottavél. Granít er á borðum innréttingar og eyju. Úr eldhúsi er útgengi á sömu svalir og úr stofu.

Neðri hæð: Gengið er úr holi efri hæðar hússins niður á neðri hæð um steyptan parketlagðan stiga með mjög fallegu handriði úr stáli, gleri og viði. Sjónvarpshol: rúmgott, parketlagt og með föstum hillum og vinnuborði.  Úr sjónvarpsholi er útgengi á skjólsæla viðarverönd til suðurs og vesturs með skjólvegg og þaðan á lóð. Hjónaherbergi: stórt, parketlagt og með fataskápum. Innaf hjónaherbergi er rúmgott baðherbergi, flísalagt gólf og mosaiklagðir veggir. Vaskborð með frístandandi vaski og skúffum undir, fastur spegill á einum vegg, handklæðaofn og stór mosaiklögð sturta. Barnaherbergin: eru þrjú öll rúmgóð með parketi á góflum. Baðherbergi: flísalagt gólf og mosailagðir veggir að hluta, baðkar, vegghengt wc og vaskborð með frístandandi vaski og skúffum undir. Fastur spegill . Þvottaherbergi: mjög stórt og veglegt, flísalagt og með miklum innréttingum með vaski og vinnuborði. Í hluta þvottaherbergis er fataherbergi með góðum innréttingum. Bílskúr: er flísalagður í gólf, hiti, rafmagn og rennandi heitt og kalt vatn og miklir skápar. Þakgluggi, gluggar og göngudyr eru á bílskúr. Lóðin: er fullfrágengin og glæsileg en viðhaldslítil með verönd, tyrfðri flöt og trjágróðri neðan við hús, bílastæðum og stéttum fyrir ofan hús og viðarveröndum með steyptum skjólveggjum norðvestan við húsið.

Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen, lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 691-1931- [email protected]

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband