05.12.2022 1081095

Söluskrá FastansVesturbakki 7

815 Þorlákshöfn

hero

11 myndir

22.870.000

306.568 kr. / m²

05.12.2022 - 144 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 28.04.2023

0

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

74.6

Fermetrar

Fasteignasala

Eignamiðlun Suðurnesja

[email protected]
420-4050

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Eignamiðlun Suðurnesja kynnir í SÖLU EÐA LEIGU atvinnuhúsnæði að Vesturbakka 7, Þorlákshöfn
 
Allar nánari upplýsingar hjá M. Sævar Pétursson sími. 420-4050 / 894-2252 netfang [email protected]

 
Um er að ræða geymsluhúsnæði að Vesturbakka 7, á besta stað við höfnina í Þorláksshöfn.

Húsið skilast í desember 2022.


Nánari lýsing:

Húsið skiptist í 12 einingar. Inntaksrými er í norður enda hússins og er sameiginlegt. Byggingin er á einni hæð. Gólf eru járnbent, staðsteypt og vélslípuð. Gólfin verða máluð með epoxymálningu. Gólfhitakerfi er í gólfum. Skolvaskur er í hverri einingu og tengi fyrir salerni. Hefðbundin lýsing er í húsinu og rafmagn, gert er ráð fyrir einum 3ja fasa tengli.

Einingarnar 12 eru að mismunandi stærðum frá 71,6 m2 til 74,6 m2 . Allar einingar eru með ræstivask og hægt að koma fyrir salerni. Lóðin verður malbikuð með nægum bílastæðum. Húsnæðið skilast fullfrágengið með lokaúttekt, byggingarstig 7.


Uppbygging húss:
Húsið er byggt ofan á steypta sökkla með hefðbundinni staðsteyptri plötu.
Útveggir:
Burðargrind hússins er úr límtré, klædd með PIR Quad Core samlokueiningum frá Kingspan. Veggeiningar eru 80mm á þykkt með microrib áferð. Litur RAL 7016. Málningarhúð á veggeiningum er 55 míkron á þykkt og valin sérstaklega til að verjast betur gegn UV-geislun (upplitun) og veðrun.
Milliveggir:
Milliveggir eru úr álstoðum klæddir með spónarplötum og gifsi, einagraðir með steinull. Veggirnir verða sparslaðir og málaðir.
Hurðir:
Innkeyrsluhurðir eru frá Gluggatækni, litur RAL 7016 með samlitum trégluggum. Stærð hurða 380x400. Húsið skilast með vönduðum tré gluggum og hurðum. Litur RAL 7016.
Þak:
Þak er byggt upp með 100mm þykkum PIR Quad Core samlokueiningum frá Kingspan. Málningarhúð 200 míkron. Litur RAL 7016.
Lóð:
Lóð verður malbikuð.

Á húsinu hvílir vaskkvöð sem kaupandi yfirtekur.
 
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ, og í síma 420-4050.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 70.000 með vsk, sbr. kauptilboð.

Ljósmyndir

Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

Pnr.HeimilisfangKaupverðStærðFermetraverðTegundFastan.Dags.Noth.
22.870.000 kr.74.60 306.568 kr./m²250420704.04.2023

Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007

Sótt frá Þjóðskrá

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010101

Iðnaður á 1. hæð
74

Fasteignamat 2025

16.150.000 kr.

Fasteignamat 2024

14.250.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband