28.11.2022 1078984

Söluskrá FastansHraunás 10

210 Garðabær

hero

53 myndir

169.900.000

635.140 kr. / m²

28.11.2022 - 18 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 16.12.2022

4

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

267.5

Fermetrar

Fasteignasala

Miklaborg

[email protected]
691-1931
Bílskúr
Svalir
Verönd
Arinn

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

***OPIÐ HÚS SUNNUDAGINN 4. DESEMBER FRÁ kl. 14:00-14:30, VELKOMINN!***Miklaborg kynnir: Virkilega glæsilegt 267,5 fermetra parhús á tveimur hæðum með fjórum svefnherbergjum, glæsilegum stofum, þremur baðherbergjum og innbyggðum bílskúr á frábærum útsýnisstað innst í götu við Hraunás í Garðabæ. Verulega aukin lofthæð er á efri hæð hússins. Gólfsíðir gluggar að hluta í stofum á efri hæð með og mjög stórar svalir til suðurs og vesturs. Glæsilegt útsýni er úr stofu og af svölum. Fallegur og gróinn garður með stórri viðarverönd. Hellulagt bílastæði með hitalögnum er fyrir framan húsið og þrjú hellulögð gestastæði eru þar við hliðina.Nánari upplýsingar veitir Óskar í gegnum netfangið [email protected] eða í síma 691-1931

Lýsing eignar: Efri hæð: Forstofa: flísalögð og björt. Innri forstofa: flísalögð og með fataskápum. Gestasnyrting:  flísalagt gólf og mosaiklagðir veggir. Vaskborð með frístandandi vaski á og skúffum undir. Fastur spegill á einum vegg í gestasnyrtingu. Samliggjandi stofur: mjög stórar, bjartar og glæsilegar með mjög mikilli lofthæð og innfelldri lýsingu í loftum. Mjög fallegur arinn er í stofum. Úr stofum er fallegt útsýni yfir hraunið, að Álftanesi, út á sjóinn og að Snæfellsjökli.  Úr stofum er einnig útgengi á mjög stórar og skjólsælar svalir til suðurs og vesturs. Eldhús: opið við stofu að hluta, flísalagt og með góðri borðaðstöðu með föstum leðurklæddum bekk á einum vegg. Vandaðar hvítar innréttingar og eyja með helluborði og háfi og vönduð tæki í eldhúsi, þ.m.t. innbyggð uppþvottavél. Granít er á borðum innréttingar og eyju. Úr eldhúsi er útgengi á sömu svalir og úr stofu.

Neðri hæð: Gengið er úr holi efri hæðar hússins niður á neðri hæð um steyptan parketlagðan stiga með mjög fallegu handriði úr stáli, gleri og viði. Sjónvarpshol: rúmgott, parketlagt og með föstum hillum og vinnuborði.  Úr sjónvarpsholi er útgengi á skjólsæla viðarverönd til suðurs og vesturs með skjólvegg og þaðan á lóð. Hjónaherbergi: stórt, parketlagt og með fataskápum. Innaf hjónaherbergi er rúmgott baðherbergi, flísalagt gólf og mosaiklagðir veggir. Vaskborð með frístandandi vaski og skúffum undir, fastur spegill á einum vegg, handklæðaofn og stór mosaiklögð sturta. Barnaherbergin: eru þrjú öll rúmgóð með parketi á góflum. Baðherbergi: flísalagt gólf og mosailagðir veggir að hluta, baðkar, vegghengt wc og vaskborð með frístandandi vaski og skúffum undir. Fastur spegill . Þvottaherbergi: mjög stórt og veglegt, flísalagt og með miklum innréttingum með vaski og vinnuborði. Í hluta þvottaherbergis er fataherbergi með góðum innréttingum. Bílskúr: er flísalagður í gólf, hiti, rafmagn og rennandi heitt og kalt vatn og miklir skápar. Þakgluggi, gluggar og göngudyr eru á bílskúr. Lóðin: er fullfrágengin og glæsileg en viðhaldslítil með verönd, tyrfðri flöt og trjágróðri neðan við hús, bílastæðum og stéttum fyrir ofan hús og viðarveröndum með steyptum skjólveggjum norðvestan við húsið.

Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen, lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 691-1931- [email protected]

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

Pnr.HeimilisfangKaupverðStærðFermetraverðTegundFastan.Dags.Noth.
71.500.000 kr.267.50 267.290 kr./m²225673328.07.2006

108.000.000 kr.267.50 403.738 kr./m²225673322.02.2018

87.500.000 kr.267.50 327.103 kr./m²225673301.09.2022

166.000.000 kr.267.50 620.561 kr./m²225673328.02.2023

Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007

Sótt frá Þjóðskrá

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010101

Parhús á 1. hæð
267

Fasteignamat 2025

172.650.000 kr.

Fasteignamat 2024

170.650.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.


    Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).

    PóstlistiÁbendingarHafa samband