28.10.2022 1064784

Söluskrá FastansGoðheimar 5

104 Reykjavík

hero

16 myndir

Tilboð

0 kr. / m²

28.10.2022 - 21 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 18.11.2022

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

97.4

Fermetrar

Fasteignasala

Landmark

[email protected]
624 8080
Kjallari
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Opið hús 1. nóvember milli kl. 12:00 og 12:30. Verið velkomin. 
LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Hlynur Ragnarsson Löggiltur fasteignasali (s: 624 8080 / [email protected]) kynna í einkasölu: Vel skipulagða 3ja herbergja íbúð með glæsilegu útsýni á efstu hæð í 3ja hæða húsi á vinsælum stað í Goðheimum og er eignin skráð samtals 97,4 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands. Gróinn og fallegur garður. Í sameign á jarðhæð er geymsla og  kyndiklefi. Þetta er björt íbúð sem býður upp á ýmsa möguleika með 2 svefnherbergjum, baðherbergi, eldhúsi, stofu og geymslu í sameign. Viðarpanell er í lofti í íbúðinni og parket á gólfum. Flísar á baðherbergi og í forstofu. Búið er að skipta um ofna í íbúðinni, endurnýja glugga og gler á suður- og austurhlið. Búið er að klæða hluta af norðurhlið, alla austurhlið og hluta af suðurhlið hússins. Skólplagnir endurnýjaðar og þakpappi endurnýjaður að sögn seljandaÍbúðin er laus við kaupsamning  - fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2023: 59.050.000 kr.

Nánari lýsing: Íbúðin er vel skipulögð og skiptist í sameiginlegan inngang og teppalagðan stiga upp á 3ju hæð, flísalagður stigapallur, eldhús, stofu, baðherbergi, 2 svefnherbergi og geymslu í sameign á jarðhæð. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi. Anddyri/stigapallur á 3ju hæð er flísalagður. Pallurinn hefur verið stækkaður en frágangur eftir. Eldhús er með viðarinnréttingu og hvítri borðplötu. Bakaraofn og helluborð. Svefnherbergi eru tvö. Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp. Hitt svefnherbergið er búið að stúka niður í tvö minni herbergi með opið á milli. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Stór gluggi með opnanlegu fagi. Flísalögð sturta. Geymsla er í sameign á jarðhæð. 

Þetta er íbúð með glæsilegu útsýni á rólegum stað í Goðheimum. Stutt er í verslun, þjónustu og í Laugardalinn.

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Hlynur Ragnarsson Löggiltur fasteignasali í síma 624 8080 eða [email protected]
 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010001

Íbúð á jarðhæð
113

Fasteignamat 2025

65.750.000 kr.

Fasteignamat 2024

63.800.000 kr.

010101

Íbúð á 1. hæð
162

Fasteignamat 2025

95.100.000 kr.

Fasteignamat 2024

92.000.000 kr.

010201

Íbúð á 2. hæð
160

Fasteignamat 2025

94.350.000 kr.

Fasteignamat 2024

91.300.000 kr.

010301

Íbúð á 3. hæð
97

Fasteignamat 2025

69.300.000 kr.

Fasteignamat 2024

67.350.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband