25.10.2022 1063620
Ásvegur 27
600 Akureyri
38 myndir
75.000.000
415.743 kr. / m²
25.10.2022 - 10 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 04.11.2022
3
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
180.4m²
Fermetrar
Tegund
HæðirByggingarár
1956Fasteignamat
42.900.000Inngangur
SérinngangurFastanúmer*
2144918Byggingarnúmer*
1056522Brunabótamat
65.250.000Verðmat Fastans
Reiknar verðmat...
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Ásvegur 27 - 201
Vel skipulögð og nokkuð endurnýjuð 4 herbergja hæð í tvíbýlishúsi ásamt stakstæðum bílskúr á vinsælum stað á neðri Brekku. Glæsilegt útsýni er úr íbúðinni til vesturs og austurs. Heildarstærð eignar er 180,4 fm, þar af er bílskúr 37,1 fm.
Eignin skiptist í forstofu (neðri og efri pall), hol, eldhús, búr, stofu, þrjú svefnherbergi, þvottahús og baðherbergi auk bílskúrs og geymslu.
Forstofa er með ljósum flísum á gólfi á neðri palli, stiga og efri palli. Opið fatahengi er á efri palli og útgengt út á litlar svalir til austurs þaðan sem er flott útsýni til austurs.
Hol og gangur er með parket á gólfi. Af gangi er lúga upp á loft.
Eldhús er með parket á gólfi, góðri hvítri innréttingu með neðri skápum, viðar borðplötu, innbyggðri uppþvottavél, bakaraofn og helluborð. Innrétting ásamt tækjum endurnýjað 2020 og fylgja öll tæki auk ísskáps.
Búr er við hlið eldhúss, með parket á gólfi og stýringu fyrir gólfhita sem er handstýrt. Það rými var áður stigauppganga milli hæða.
Svefnherbergi er inn af eldhúsi, þar er parket á gólfi, opið fatahengi og útgengt út á stórar svalir til vesturs. Það rými var áður nýtt sem stofa/borðstofa.
Stofa er björt með parket á gólfi og glæsilegu útsýni til vesturs. Þar er kamína sem tengist skorstein. Hefur ekki verið notuð lengi en virkaði þá vel.
Svefnherbergi eru tvö á gangi, bæði rúmgóð með parket á gólfi og annað þeirra með innbyggðum fataskáp.
Baðherbergi er með dökkar flísar á gólfi og ljósar á stærstum hluta veggja. Horninnrétting í kringum vask með góðu skápaplássi, upphengt salerni, handklæðaofn, baðkar og innbyggðum sturtuklefa.
Þvottahús er með ljósar flísar á gólfi, borðplata með vask, tvöföldum skáp bakvið hurð og stæði fyrir þvottavél.
Bílskúr er byggður seinna eða 1966 og einangraður 1993 að utan. Innkeyrsluhurð er til austurs en göngudyr til suðurs á lóð. Affall af húsinu er nýtt til kyndingar þar og í geymslu að sögn eiganda auk þess sem þar er bæði heitt og kalt vatn fyrir vask. Nýjir gluggar og gönguhurð eru í bílskúr og rafdrifin innkeyrsluhurð.
Annað:
-Gólfhiti er í allri íbúðinni utan þvottahúss og baðherbergis þar sem eru ofnar. Ofn í forstofu er óvirkur..
-Nýlegt gegnheilt viðarparket er á allri eigninni frá Birgisson utan ofangreindra rýma þvott/bað
-Ljósleiðari er tengdur
-Skólp endurnýjað ca. 1998
-Rafmagntafla hefur verið endurnýjuð
-Samkvæmt eignaskiptayfirlýsing þinglýst fyrri hluta árs 1996 var eigninni þá breytt úr einum eignarhluta í tvo
-Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu fylgir nyrðra stæðið á bílastæði efri eigninni og innkeyrsla að bílskúr
-Engin sameiginleg rými eru í húsinu
-Geymsla undir stiga aðgengileg utan frá fylgir efri hæð
-Sérstök þinglýst yfirlýsing segir að pallur við vesturhlið hússins fylgir neðri hæð, að öðru leiti er garður sameiginlegur
-Grunnmynd af íbúðinni hefur verið lítilega breytt af fasteignasölunni frá upprunalegu teikningunni þannig að hún sýni núverandi mynd.
Komið er að viðhaldi á svalagólfi og stigauppgöngu að utan. Einnig þarf að skoða þak á bílskúr og búnað fyrir innkeyrsluhurð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 1063620
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 75.000.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 65.250.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 42.900.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 415.743
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 180.4
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 25.10.2022
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 04.11.2022
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur : 25.10.2022
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 600
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Ásvegur 27 - 201
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : hæðir
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 1956
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 5
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 3
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 0
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 1
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Sérinngangur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Ásvegur
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 27
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina