21.10.2022 1061624

Söluskrá FastansHalldóruhagi 2

600 Akureyri

hero

16 myndir

66.900.000

640.191 kr. / m²

21.10.2022 - 7 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 28.10.2022

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

104.5

Fermetrar

Ekki tókst að greina fasteignasölu.

Gólfhiti
Svalir
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Halldóruhagi 2a íbúð 204 - Nýbygging

Glæsileg 5 herbergja íbúð með sér inngangi á efri hæð í vestur enda í litlu fjölbýlishúsi í Hagahverfi - stærð 104,5 m²
Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, fjögur svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Í sameigninni er sér geymsla, skráð 7,4 m² að stærð
Eignin afhendist fullbúin með gólfefnum.
Áætlaður afhendingartími eignar er lok október 2022


Skilalýsing þessi er hluti af kaupsamningi íbúða við Halldóruhaga 2a. Upplýsingar í skilalýsingu geta breyst á byggingartíma. Leitast verður við að halda sambærilegum gæðum byggingarhluta og íhluta, breytist þeir á byggingartíma.
Byggingaraðili: BB byggingar ehf. hefur stundað byggingarverktöku síðan 2001 og hefur sinnt stórum sem smáum verkefnum. Stefna fyrirtækisins er að veita góða þjónustu og skila vönduðum verkum. Hönnun: Hönnuður hússins er Steinmar Rögnvaldsson, Steinark teiknistofa .
Húsið er steinsteypt á tveimur hæðum og verða í því 7 íbúðir, 2ja, 3ja og 5 herbergja.
Íbúðum verður skilað fullfrágengnum sem og sameign og lóð.
Frágangur utanhúss:
Allir útveggir hússins eru einangraðir að utan með 100 mm harðpressaðri steinull. Húsið er klætt að utan með báruðu áli og timbri við innganga.
Gluggar og hurðir eru Áltré frá Ideal combi, hvítir að innan og utan og með tvöföldu einangrunargleri, sólstoppgler. Gluggar og hurðar eru settar í eftirá. Rennihurðir með sólargleri eru út á svalir/verandir úr öllum íbúðum.
Þak: Loftaplata í húsinu er steypt með uppstóluðu timburþaki með tvöföldum pappa. Hitaþræðir eru í þakrennum.
Lóð, bílaplan, verandir og svalir: Svalir eru steyptar með galvinseruðu járn handriði og klætt með plast plötum á efri hæðum, samskonar handrið verða við íbúðir á neðri hæðum. Stéttar við aðalinngang eru steyptar og eða malbikaðar með hitalögnum að hluta skv. teikningu. Lóð er þökulögð í samræmi við lóðarteikningar og bílaplön malbikuð.
Frágangur innanhúss:
Útveggir
eru allir sandspartslaðir og málaðir. Burðarveggir íbúða eru sandspartslaðir og málaðir. Allir léttir innveggir eru byggðir upp með stálstoðum og klæddir með krossvið og gifsi beggja vegna, sandspartslaðir og málaðir.
Loft: Öll loft í alrýmum og herbergjum íbúða eru klædd með hljóðdempuðum loftaplötum og með innfelldri lýsingu nema á baðherbergi, þar verður loft málað. Veggir og loft í sameignum eru sandspartslaðir og málaðir.
Gólf og Gólfefni: Gólf neðri hæðar er steinsteypt 12 cm plata með innsteyptum gólfhita, en gólf efri hæðar er 20-22 cm steinsteypt. Gólfefni verða harðparket 10-12mm þykkt í öllum rýmum íbúðar nema baðherbergjum, þar verða flísar. Gólf í sameign og geymslum er steinsteypt og með epoxy.
Raflögn: Raflögn er fullfrágengin. Innfelld lýsing er í helstu rýmum íbúða. Útiljós við innganga verða frágengin. Uppsettur reykskynjari fylgir hverri íbúð. sér rafmagnsmælir er fyrir hverja íbúð. Fyrir framan húsið verða fjórir rafhleðslustaurar með möguleika á einum tengli fyrir hverja íbúð
Hitaveita: Sameiginlegur hitaveitumælir er fyrir allt húsið og gólfhiti í öllum gólfum íbúða.
Innréttingar og skápar: Allar innréttingar koma frá GKS. Eldhús er með plastlagðri svartri (Nero oak) innréttingu með grárri borðplötu og innbyggður ísskápur með frysti og uppþvottavél fylgja með öllum íbúðum. Í þeim íbúum sem er eyja í eldhúsi þar er helluborð í eyjunni með innbyggðri viftu með kolasíu. Vaskar í eldhúsum eru svartir, mjúklokun á skúffum og skápum á baði og eldhúsi, hnífaparabakki og ruslafata fylgir. Baðinnrétting er svört plaslögð ( Nero oak) með grárri borðplötu og speglaskápur fyrir ofan. Gólf og tveir veggir á baðherbergi verður flísalagt. Vélrænn loftræsting er frá baðherbergjum. Hreinlætistæki verða að viðurkenndri gerð. Fataskápar eur plastlagðir svartir, (Nero oak).
Innihurðir: Innihurðir verða yfirfelldar hvítar.
Hver íbúð er sjálfstætt brunahólf og fylgja reykskynjari og handslökkvitæki hverri íbúð.

Allt efni og teiknaðar, þrívíddarmyndir eru birtar með fyrirvara um hugsanlegar villur.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar þess verður krafist, (0,3% af brunabótamati eignar).

Eignin er í einkasölu

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

Ekki tókst að sækja eignir.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband