13.10.2022 1059276
Rofabær 7
110 Reykjavík
7 myndir
59.900.000
900.752 kr. / m²
13.10.2022 - 15 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 28.10.2022
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
66.5m²
Fermetrar
Tegund
FjölbýliByggingarár
2022Fasteignamat
3.740.000Inngangur
SameiginlegurFastanúmer*
2519080Byggingarnúmer*
1015074Brunabótamat
-Verðmat Fastans
Reiknar verðmat...
Ekki tókst að greina fasteignasölu.
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Björn Jakob Björnsson, löggiltur fasteignasali hjá BG Legal ehf. fasteignasölu, kynnir í einkasölu:
Nýjar og glæsilegar 1 - 4 herbergja íbúðir í lyftuhúsi að Rofabæ 7 - 9 í Árbæ, Reykjavík. Stærðir eru frá 41 – 116 fm. 31 íbúð með 27 stæðum í lokaðri bílageymslu. Íbúðirnar skilast fullbúnar, án gólfefna, með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Frekari upplýsingar um íbúðirnar sem eru í sölu að Rofabæ 7 – 9 má finna á eftirfarandi kynningarsíðu: www.r79.is
Íbúð 103 er glæsileg tveggja herbergja íbúð á 1. hæð með stæði í bílakjallara. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin 66,5 fm, þar af er geymsla í kjallara 9,6 fm. Útgengt á 25,6 fm verönd.
Við hönnun hússins er tekið mið af því að lágmarka viðhald. Húsið er einangrað að utan með álklæðningu í tveimur mismunandi litum og gluggar eru úr ál-tré.
Helstu atriði við frágang innandyra:
Innréttingar frá Voke III
Borðplötur í eldhúsi eru almennt úr 20 mm þykkum HPL (high pressure laminate) með dökku yfirborði. Ánbaðherbergjum eru borðplötur úr hvítum Durastone með samlímdum vaski.
Eldhústæki frá Electrolux, spanhelluborð, ofn, uppþvottavél, háfur og ísskákpur.
Gólf baðherbergja og þvottahúsa eru flísalögð með 30 x 60 cm flísum frá Álfaborg.
Hvítar Dana innihurðir frá Parka.
Hús klætt að utan með vandaðri báruálklæðningu frá Límtré Vírnet.
Gluggar og svalahurðir eru úr ál-tré frá Húsasmiðjunni. Allt gler er K gler.
Öll blöndunartæki eru frá Grohe – söluaðili er Byko.
Nánari lýsing:
Anddyri: Fataskápur upp í loft.
Eldhús/stofa: Falleg innrétting með spanhelluborði, innfelldur ísskápur og uppþvottavél, bakaraofn. Útgengt út á svalir frá rýminu.
Stofa/borðstofa: Í samliggjandi rými með eldhúsi. Opið og bjart rými. Útgengt út á svalir.
Hjónaherbergi: Rúmgott með fataskáp upp í loft.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, upphengt salerni, sturta með glerskilrúmi, innrétting undir og við handlaug, handklæðaofn.
Svalir: Útgengt er út á 25,6 fm verönd á jarðhæð.
Geymsla: Er í sameign í kjallara 9,6 fm.
Sameign: Í sameign í kjallara er hjóla- og vagnageymsla.
Almennt um fasteignina:
Fjölbýlishúsið við Rofabæ 7-9 er staðsett í Árbæ í Reykjavík. Við hliðina á húsinu er útivistar- og leiksvæði sem eru skilgreind þannig í hverfisskipulagi sem var samþykkt árið 2020. Stutt er í skóla, leikskóla, verslun og þjónustu og í útvistaparadísina í Elliðárdalnum. Rofabær verður „borgargata” Reykjavíkur samkvæmt hverfisskipulagi. Byggingin er stölluð, þ.e. 2, 3 og 4 hæðir með 31 íbúðum. Á öllum hæðum eru íbúðir af fjölbreyttum stærðum og gerðum, þ.á.m. svokallaðar smáíbúðir sem eru eins og tveggja herbergja. Einnig eru vel skipulagðar þriggja herbergja íbúðir í vesturenda byggingarinnar og 5 atvinnubil á jarðhæð. Eitt stiga- og lyftuhús er í byggingunni og hafa íbúðir beint aðgengi frá stiga- og lyftuhúsi. Í kjallara hússins er sameiginleg bílgeymsla með bílastæðum fyrir 27 bifreiðar. Að auki eru í kjallara sérgeymslur fyrir allar íbúðir ásamt stórri vagna- og hjólageymslu og sameiginlegum tæknirýmum.
Þá verður hjólaskýli í porti norðan megin. Sameiginlegur þakgarður verður á 4. hæð og sérþakgarður fyrir þrjár íbúðir á 3. og 4. hæð. Aðalinngangur er staðsettur á 1. hæð. Eingöngu er notast við fyrsta flokks efni bæði innan- sem og utandyra. Léttir innveggir íbúða eru hlaðnir.
Umhverfið:
Betri staðsetning á höfuðborgarsvæðinu fyrir náttúruunnendur og útivistarfólk er vandfundin. Árbærinn liggur við Elliðaárdalinn sem er eitt stærsta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins með fjölmörgum göngu- og hjólastígum. Mikið trjálendi liggur meðfram ánni með mörgum fallegum stöðum eins og Elliðaárfoss. Góðar samgönguæðar tengja svo hverfið við alla staði borgarinnar.
Stutt er í skóla, leikskóla, verslun og þjónustu. Þá er næsta lóð við hliðina skilgreind sem leiksvæði bæði í aðal- og hverfisskipulagi Reykjavíkurborgar. Rofabær verður “borgargata” Reykjavíkur samkvæmt hverfisskipulagi.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er 0,3% af brunabótamati þegar það verður lagt á fasteignina.
Frekari upplýsingar veita:
Björn Jakob Björnsson
Löggiltur fasteignasali
[email protected] eða 897-0848
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 1059276
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 59.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 0
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 3.740.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 900.752
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 66.5
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 13.10.2022
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 28.10.2022
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur :
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 110
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Rofabær 7
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 2022
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 2
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 1
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 0
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 1
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Rofabær
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 7
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina