Söluauglýsing: 1059168

Ölduslóð 14

220 Hafnarfjörður

Verð

99.900.000

Stærð

197.2

Fermetraverð

506.592 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli

Fasteignamat

83.700.000

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 199 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Ölduslóð 14, 220 Hafnarfjörður er vel skipulögð 5 herbergja íbúð á jarðhæð með bílskúr og auka íbúð í kjallara. Húsið er vel staðsett á góðum og eftirsóttum stað í Hafnarfiði. Húsið var byggt árið 1955 og er um að ræða 107 fm íbúð á hæð, 59 fm aukaíbúð í kjallara og 31,2 fm bílskúr. Íbúðin skiptist í 4 svefnherbergi, baðherbergi, stofu/borðstofu, eldhús og þvottahús. Aukaíbúðin skiptist í eldhús, baðherbergi, geymslu, stofu/borðstofu og svefnherbergi.
Búið er að fara í miklar endurbætur síðustu ár. Íbúð á hæð var tekin í gegn þar sem meðal annars var skipt um eldhúsinnréttingar og tæki, baðherbergi tekið í gegn, parket, skolp endurnýjað, rafmagn og rafmagnstöflur. Bílskúrinn var einnig endurnýjaður að innan, en þar var gólf epoxy málað, veggir málaðir, rafmagn lagt í bílskúr ásamt því að búið er að draga fyrir bílahleðslu. Vinna stendur nú yfir á múrviðgerðum á húsinu, en sú vinna er á lokametrunum. 

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 197,2 fm og þar af er íbúð á hæð 107 fm, aukaíbúð í kjallara 59 fm og bílskúr 31,2 fm | Fasteignamat 2023 er 83.700.000,-

Nánari lýsing:
Anddyri:
Komið er inn í rúmgott anddyri með flísum á gólfi og fatahengi. Innangengt í þvottahús.
Gangur/hol: Rúmgóður gangur þar sem gengið er inn í aðrar vistverur. Parket á gólfi. 
Stofa/borðstofa: Björt og falleg. Parket á gólfi.
Eldhús: Með dökkgrárri innréttingu og nýjum tækjum. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I: Stórt og rúmgott með parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Rúmgott með parket á gólfi.
Svefnherbergi III: Rúmgott með parket á gólfi.
Svefnherbergi IIII: Rúmgott með parket á gólfi.
Baðherbergi: Nýuppgert með upphengdu salerni, sturtu með innbyggðum blöndunartækjum og sérsmíðuðum innréttingum. Flísar í hólf og gólf.
Þvottaherbergi: Innangengt úr forstofu. Með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 
Bílskúr: 31,2 fm frístandandi bílskúr sem var byggður árið 1981. Mikið endunýjaður að innan, m.a. nýr vaskur og blöndurnartæki, nýtt rafmagn og rafmagnstafla. Búið að draga í fyrir bílahleðslu.

Aukaíbúð nánari lýsing:
Eldhús: Gengið er beint inn í eldhús með borðkrók. Steypt gólf.
Baðherbergi: Með sturtuklefa og nýlegri innréttingu. Flísar á gólfi.
Geymsla: Með tengi fyrir þvottavél.
Stofa: Rúmgóð og björt með parket á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott með parket á gólfi.

Íbúðin er vel staðsett á fjölskylduvænum stað þar sem stutt er í leikskóla, skóla og verslanir.
- - -
Allar nánari upplýsingar veita Ásgeir Þór löggiltur fasteignasali á netfangið [email protected] og Oddný María aðstoðarmaður fasteignasala á netfangið [email protected] eða í síma 497-7700
- - -
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum og hvetjum við væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Kostnaður kaupanda vegna kaupa á þessari eign er stimpilgjald kaupsamnings, 0,4% af fasteignamati fyrir fyrstu kaupendur, 0,8% fyrir aðra einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjöld eru 2.700 kr. fyrir hvert skjal. Kynntu þér fasteignaþjónustu Procura og nýja þjónustu okkar við leit að fasteign fyrir þig.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband