Söluauglýsing: 1059122

Suðurbraut 5

200 Kópavogur

Verð

59.500.000

Stærð

79

Fermetraverð

753.165 kr. / m²

Tegund

Hæðir

Fasteignamat

44.450.000

Fasteignasala

Fastborg

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 14 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu


Borg fasteignasala kynnir í einkasölu rúmgóða og bjarta 3 herb. hæð í tvíbýli við Suðurbraut 5 í Vesturbæ Kópavogs. Sérinngangur er í íbúð, garðurinn er gróinn og er honum eignaskipt milli íbúða samkvæmt samkomulagi. Heildarflatamál íbúðar er 79,0 fm skv skráningu í þjóðskrá en þar sem íbúðin er að hluta til undir súð er gólfflötur íbúðar stærri en uppgefinn fermetrafjöldi. Einnig er risherbergi utan fermetrafjölda íbúðar þar sem það er ekki að fullu manngengt. Íbúðin samanstendur af anddyri, holi, tveimur svefnherbergjum, eldhúsi, baðherbergi og stofu. Frá holi er stigi upp í risherbergi og geymslurými. Íbúðin er björt, skipulögð og lítið undir súð. Eignin er klædd að utan með bárujárni og stenað að hluta bakatil. Skipt var um járn á þaki 2014. Búið er að draga í nýtt rafmagn, skipta um gler í flestum gluggum, skólp og dren var endurnýjað 2001. Frábær staðsetning í þessu sívinsæla og gróna hverfi. Göngufæri er í sundlaug og íþróttaaðstöðu, stutt í skóla og leikskóla og alla þá þjónustu sem Hamraborg hefur upp á að bjóða. Bókið skoðun og fáið allar frekari upplýsingar hjá Heiðu í síma 779-1929  og á netfanginu [email protected]

Nánari lýsing eignar:
Sérinngangur er inn í íbúð
Forstofai: rúmgott með flísum á gólfi, fatahengi, steyptur stigi með harðvið upp á íbúðarhæð.
Hjónaherbergi: er rúmgott með plastparketl á gólfi,  gott skápaspláss.
Svefnherbergi með plastparketi á gólfi.
Baðherbergi: flísar á gólfi, baðkar með sturtuaðstöðu.
Eldhús: með plastparketi á gólfi, hvítri nýlegri eldhúsinnréttingu.Tengi er fyrir uppþvottavél, þvottavél og þurkara. Rúmgóður borðkrókur.
Hol: parketlagt með viðarstiga upp á risloft.
Risloft: Viðarfjalir á gólfi, ekki að fullu manngengt, þakgluggar. Rafmagnskynding.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa með parketi á gólfi.

FASTEIGNAMAT NÆSTA ÁRS VERÐUR KR. 56.050.000,-

Forsendur söluyfirlits
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Ljósmyndir

Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband