06.10.2022 1057338
Boðagrandi 5
107 Reykjavík
31 myndir
44.900.000
801.786 kr. / m²
06.10.2022 - 8 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 14.10.2022
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
56m²
Fermetrar
Tegund
FjölbýliByggingarár
1981Fasteignamat
35.500.000Inngangur
SameiginlegurFastanúmer*
2025038Byggingarnúmer*
1002827Brunabótamat
23.450.000Verðmat Fastans
Reiknar verðmat...
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Eignamiðlun kynnir:
Björt og notaleg tveggja herbergja íbúð á fjórðu hæð við Boðagranda. Samtals séreign er 56,0 fermetrar en þar af er íbúðin sjálf er 51,7 fermetrar og nýtist afar vel, og geymsla í kjallara 4,3 fermetrar. Íbúðin nýtist afar vel, með svölum til suðurs og ágætu útsýni yfir vesturbæinn. Húsið er nýlega endurnýjað að utan, gluggar eru nýir, þak endurnýjað. Frábær staðsetning, stutt í Grandann og miðbæinn, sundlaug Vesturbæjar og útivist á Gróttu.Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs.í síma 663-2508 eða [email protected].
Smellið hér til að sækja sölubækling.
Komið er inn í gang eða hol íbúðarinnar, þar sem er fataskápur á hægri hönd, baðherbergi og svefnherbergi. Beint af augum er hálfopið eldhús, rými fyrir matarborð við enda eldhúss, stofa til vinstri frá inngangi.
Stofan er björt og vistleg, með stórum glugga og svölum til suðurs. Milli stofu og eldhúss er rými fyrir matarborð. Gluggi til suðurs yfir matarborði. Eldhúsinnrétting á tveimur veggjum, með góðu rými miðað við stærð íbúðarinnar. Svefnherbergi er með rúmgóðum innbyggðum fataskáp og glugga til suðurs. Baðherbergi er flísalagt, með lítilli innréttingu og baðkari.
Parket er á öllum gólfum íbúðarinnar nema á baðgólfi þar sem eru flísar.
Íbúðin er að mestu leiti upprunaleg, en er einstaklega vel um gengin, hlýleg og björt. Sameign er vel um gengin og lítur húsið mjög vel út að utan. Gluggar eru nýlega endurnýjaðir, svalahandrið hafa verið endurnýjuð, þak yfirfarið, húsið steypuviðgert og málað.
Í kjallara er geymsla, sameiginleg hjólageymsla og sameiginlegt þvottahús.
Björt og afar vel nýtt íbúð með útsýni yfir vesturbæinn.
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupandendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 1057338
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 44.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 23.450.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 35.500.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 801.786
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 56
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 06.10.2022
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 14.10.2022
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur : 06.10.2022
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 107
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Boðagrandi 5
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 1981
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 2
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 1
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 0
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 1
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Boðagrandi
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 5
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina