24.09.2022 1054443

Söluskrá FastansGrandavegur 1

107 Reykjavík

hero

23 myndir

76.800.000

731.429 kr. / m²

24.09.2022 - 7 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 30.09.2022

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

105

Fermetrar

Fasteignasala

Domusnova

[email protected]
894 3003
Kjallari
Snjóbræðsla
Svalir
Geymsla
Hleðslustöð

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

KRISTÍN EINARS. lgf. og DOMUSNOVA KYNNA: Á eftirsóttum stað í Vesturbænum fallega, bjarta og mikið endurnýjaða 4ja herbergja íbúð á 3ju hæð á við Grandaveg 1.
Eignin er skráð 105fm að stærð og skiptist í forstofugang, alrými með eldhúsi borðstofu og stofu, þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og sérgeymslu á jarðhæð. 
Þvotthús er á hæðinni deilt með einni íbúð, auk þess sem sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð með sérinngangi.  Einungis eru tvær íbúðir á hæð.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í þjónustu, íþróttasvæði K.R og fallegar gönguleiðir við Ægissíðuna.
 

Nánari lýsing:
Anddyri/forstofugangur með góðum fataskáp. 
Stofa/borðstofa eru í opnu rými með stórum gluggum á þrjá vegu.  Útgengt er á góðar suðursvalir frá stofunni. 
Eldhús: í eldhúsinu er falleg hvít innrétting með hvítum borðplötum og flísum á milli efri og neðri skápa. Spanhelluborð og nýlegur bakaraofn. Tengi er fyrir uppþvottavél.
Þrjú rúmgóð svefnherbergi, með fataskápum í einu þeirra.
Baðherbergi: flísalagt í hólf og gólf með walk in sturtuaðstöðu. Smekkleg innrétting og handklæðaofn. Vifta með útsogi.  Baðherbergið var endurnýjað 2016.
Sameiginlegt þvottahús fyrir þessar tvær íbúðir sem eru á hæðinni, hvor með sína vél og þurrkara. 
Sérgeymsla í sameign.
Hjóla-og vagnageymsla: Er í sameign á jarðhæð með sérinngangi  
Gólfefni íbúðarinnar eru eikarparket, flísar og harðparket á svefnherbergjum.  Parketið slípað 2016.
Innihurðir pússaðar og lakkaðar 2019.
Fjórar rafhleðslustöðvar eru á bílastæðum hússins.


Hér er um að ræða fallega og mikið endurnýjaða 4ja herbergja íbúð á þriðju hæð með suðursvölum á góðum stað í Vesturbænum
stutt er í leik-, grunnskóla,  leiksvæði og íþróttaiðkun.
Einnig er ýmis verslun og þjónusta í göngufæri. Snjóbræðsla er í gangstétt fyrir framan húsið.  


Nánari upplýsingar veita:
Kristín Einarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.894 3003 / [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010101

Íbúð á 1. hæð
105

Fasteignamat 2025

80.250.000 kr.

Fasteignamat 2024

77.200.000 kr.

010201

Íbúð á 2. hæð
130

Fasteignamat 2025

84.900.000 kr.

Fasteignamat 2024

81.450.000 kr.

010202

Íbúð á 2. hæð
115

Fasteignamat 2025

78.100.000 kr.

Fasteignamat 2024

75.100.000 kr.

010301

Íbúð á 3. hæð
105

Fasteignamat 2025

76.300.000 kr.

Fasteignamat 2024

73.300.000 kr.

010302

Íbúð á 3. hæð
115

Fasteignamat 2025

77.800.000 kr.

Fasteignamat 2024

74.700.000 kr.

010401

Íbúð á 4. hæð
77

Fasteignamat 2025

62.300.000 kr.

Fasteignamat 2024

60.000.000 kr.

010402

Íbúð á 4. hæð
73

Fasteignamat 2025

60.100.000 kr.

Fasteignamat 2024

57.850.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband